Tíminn - 04.02.1973, Blaðsíða 27

Tíminn - 04.02.1973, Blaðsíða 27
Sunnudagur 4. febrúar 1973. TÍMINN 27 Tviburarnir hafa gaman af ýmsum leikjum eins og aðrir drengir, en þeir liafa ætið þurft að gæta sin mjög að verða ekki fyrir hnjaski. — A myndinni er John. an sjúkdóm á heimilinu, — segir Bjarni. — En við urðum að þrauka. Máttum ekki gefast upp. Og drengirnir hafa heldur ekki gefizt upp. Þeir hafa ætið verið i góðu skapi og litiö einstaklega björtum augum á framtiðina, enda þótt sjúkdómurinn hafi á stundum varpaðdimmum skugga yfir heimilið. Aukirtn skilningur Tviburarnir John og Ingi luku góðum prófum i skóla. En nú hefur sjúkdómurinn hindrað frek- ari skólagöngu allavega um tima. Þeir hafa fengið töflur við sárs- aukanum, en þær gera þá sljóa og dasaða, þannig að þeim verður erfitt um nám. Eins og fyrr segir liggur Ingi i dag á sjúkrahúsi með gulu. Allar heimsóknir til hans eru bannaðar. Það er þungbært lif fyrir ungan og fjörmikinn dreng. Þeir, sem koma i héimsókn, verða að standa úti i garði og tala við Inga gegnum gluggann. John er heima á smábýli föður sins og tekur lifinu með ró. Hann er fölur og gengur varlega um. Oft verður hann að styðjast við hækjurnar. Sjúkdómurinn hefur vissulega settsin mörk á hann, en lifsgleðina hefur enginn megnað að svipta hann. Hann talar lágum rómi og segir frá æskuárum sin- um. Og inn á milli hlær ha'nn oft. — Lifið hefur oft verið okkur bræðrunum sannkölluð kvöl, — segir hann. — Þjóðfélagið hefur sýnt þessum sjúkdóm næsta litinn skilning. Það hefur verið eins og að reka höfuðið i múrvegg. En al- mennur skilningur hefur þó auk- izt verulega á siðari árum. Leikny Borgan, sem ber erföa- eiginleika sjúkdómsins i sér, hefur ef til vill orðið að liða mest. Sjálf segir hún: Það varð mér ægilegt áfall, er i ljós kom, hver sjúkdómurinn var. Ég hafði enga hugmynd um, hvaö blæði var, og hafði aldrei heyrt getið um slikan sjúkdóm i minni ætt. Oft var erfitt að ganga með slikar hugsanir, og mörg varð vökunóttin gegnum árin. En hugsunin um, að þetta skyidi ganga, blés i mig kjarki, og við uxum sifellt i þeirri trú, að með sameiginlegu átaki og góðri trú, myndi okkur takast að skapa sonum okkar örugga tilveru. Og drengirnir hafa greinilega notiö alls þess bezta, i uppeldinu er tök voru á, og eru ánægðir með bernzku sina. Eðli sjúkdómsins Orsök sjúkdóms er galli i gen- myndun blóðsins, er gerir það að verkum, að i þvi myndast ekki blóðlifrur. Læknavisindin hafa til þessa ekki komizt ýkja langt i þvi að lækna blæði. Tilraunir hafa verið gerðar með lifrar- og miltaflutn- inga á hundum, en þær hafa ekki tekizt sem skyldi. Sem stendur er eina tiltæka ráðið að koma þeim faktor, sem vantar inn i blóðið, er blæðingar fara af stað. Hin nauð- synlegu efni eru unnin úr blóði heilbrigðs manns. En þegar blæð- ara fer að blæða, þarf oft til margar sprautanir, unz blæðing- arnar stöðvast. Eins og fyrr segir, eru það að- eins konur, sem bera erfðaeigin- leika fyrir blæöi. Er hægt að sýna fram á þetta. Faktorarnir VII og IX eru i eölilegu magni i blóði heilbrigðs fólks. En i blóði konu, sem ber áðurnefnda erfðaeigin- leika, og getur fætt af sér syni með blæði, eru þessir faktorar aðeins i helmingsmagni miðað við það, sem nauðsynlegt er. Það eru þvi 50% likur fyrir þvi, að sonur hennar sé blæðari. Blæðararnir lifa oft löngu en áhættusömu lifi. Þeir eru stöðugt háðir blóöi heilbrigðs fólks. Fyrir fáum árum fólst læknismeöhöndl- un þeirra til að stöðva blæðingar i þvi að sprauta i þá blóðvökva og plasma, en nú hefur tekizt að ein- angra nauðsynlega blóðfaktora, sem þegar hefur verið greint frá. Biæði er ekki nýr sjúkdómur, þvi að hans er m.a. getið i lögum Mósesar og i lagasafni Gyðinga. Hann hefur þannig verið þekktur i minnst 2.000-2.500 ár. — Stp Sjúkrahúsið hefur ætiö veriö sem annað heimili fyrir tviburana. Nú liggur Ingi i einangrun meö gulu. Ennfremur nýkomið: Flautur, 6 og 12 volta — Viftur í bíla, 6 og 12 volta — Fótapumpur — Farangursstrekkjarar 71ST ARMULA 7 - SIMI 84450 Húsbyggjendur — Verktakar Kambstál: 8, 10, 12, 16, 20, 22 og 25 m/m. Klippum og beygjum stál og járn eftir óskum viðskiptavina. STÁLBORG H.F. Smiðjuvegi 13, Kópavogi. Simi 42480. iWMSM i—^ al ti lanti' Magnús E. Baldvinsson Laugavcgí 12 - sson Æ li 2 2 8 0tjéjá k — 111■■»■1 • ViS velium mintiri það borgar sig - runtal . ofnar h/f. t t <- Síðumúla 27 . Reykjavík Símar 3-55-55 og 3-42-00 i nýkomnir í allar tegundir Chevrolet bifreiða PANTANIR óskast sóttar sem fyrst SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA Véladeild ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.