Tíminn - 04.02.1973, Blaðsíða 12

Tíminn - 04.02.1973, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Sunnudagur 4. febrúar 1973. Húsagerð á íslandi Burstabærinn islenzki — samanstóð af misjafn- lega mörgum einingum, svo sem,: göngum, stofu, baðstofu, eldhúsi, búri og skemmu og þessi innan- skipan hans bauð ekki einasta upp á ákveðið sam- býlisform, heldur jafnframt ákveðið útlit. Ásar og fjöll endurspeglast i ytra formi hans, — okkur finnst liann spretta út úr islenzku landslagi. Úr löngu skráðum sögum hugljómast hann okkur, umleikinn rómantiskum blæ, með endurminningu um ljúfa vetrarmorgna og rökkurstundir. í reynd heyrir hann minningunni til og kynni okkar flestra af hon- um eru bundin byggðasöfnum landsins. t torfbæjum öreiga æska spann óskanna gullinþráð og orti sér ævintýri, sem aldrei var sagt né skráð. Við bjarma frá blaktandi týru sást blómskrúðug framtiðarströnd. Með hendur á hlummi og orfi vann hugurinn riki og lönd. Þau byggingaform, sem nú- tima lslendingar þekkja, eru i aðalatriðum eftirfarandi: Ein- býlishúsið, fjölbýlishúsið og há- hýsið. Megin þorri bústaða i sveit og smærri þorpum eru einbýlishús. t stærri kaupstöðum og bæjum kemur fjölbýlishúsið, eða nábýl- ishúsið fyrst fram. Ýmist i formi raðhúsa, keðjuhúsa eða hreinna fjölbýlishúsa (blokkir) og á sið- ustu árum koma fyrstu háhýsin til sögunnar og virðast ætla að ná verulegum vinsældum. Einbýlishúsið er i flestum til- fellum einnar hæðar hús, eða ein og hálf hæð, sem fer eftir lands- lagi. 1 flestum tilfellum býr að- eins ein fjölskylda i þessum ibúð- um og þarf þvi ekki að taka eins mikið tillit til granna sinna, sem i öðrum húsformum. Byggingarform á tslandi fyrr á timum mótaðist mjög af þeim efniviði, sem tiltækastur var. Stór Burstafell i Vopnafirði. hluti bæjarhúsa til sveita og i þorpum var gerður að veggjum til úr grjóti og torfi og með torf- þaki. Hinn fremur lélegi og frum- stæði húsakostur, sem menn urðu að búa við árhundruðum saman, átti fyrst og fremst rót sina að rekja til hins mjög takmarkaða innflutnings á húsaviði og svo hins, að slikan munað gátu lands- menn ekki veitt sér af efnahags- ástæðum. A timabilinu 1880-1900 hófu menn til sveita almennt stórfelld- ar húsaumbætur frá þvi sem áður var, bæði hvað viðkom bæj- ar og útihúsum. Veggir vorp að visu, eins og áður, úr grjóti og torfi, en innanþiljur úr timbri, einnig þakið, sem svo siðan var tyrft yfir. En timbrið vildi fúna og reyndist ekki endingargott. TAKIÐ upp Thule Um aldamótin 1900 kom áður óþekkt húsagerðarefni á markað- inn, var það bárujárnið. Reyndist það endingarbetra en timbrið, viðhaldskostnaður minni og varð það þvi mjög eftirsótt til húsa- gerðar. Það, sem að framan hefur verið sagt, á fyrst og fremst við al- mennt. A stærri stöðum, svo sem Reykjavik og Akureyri höfðu timburhús og hlaðin hús verið byggð um nokkurn tima. Arið 1862 segir blaðið Norðanfari svo frá um Akureyri: Alls eru nú hér i bænum 45 timburhús, smá og stór til ibúðar og gejmjslu. 20 með torfþaki, 6 með einum vegg og þaki af torfi og 40 með veggjum og þaki af torfi, en framgafli af timbri. Torfhúsin eru flest i suðurhluta bæjarins og nokkur i ytri parti hans. Það er vonandi, að byggingarnefndin láti sér annt um, að torfhúsum þessum fremur fækki en fjölgi og ekki sé farið kringum byggingarlög bæjarins, sér i lagi, hvað snertir aðgerðir gamalla torfhúsa. Hér ætti að gera komizt á, að öll ibúðarhús og geymsluhús væru annað tveggja af timbri eða steini. A sama tima er sagt frá þvi, að á Isafirði séu 19 ibúðarhús úr timbri. Þá segir svo i Þjóðólfi laust eftir 1860 um höfuðstað Islands, Reykjavik: Til fróðleiks og samanburðar um viðgang Reykjavikurkaupstaðar á hinum siðustu 40 árum skal þess getið, að árið 1820 voru hér aðeins 34-36 timburhús af öllu tagi. Arið 1830 voru þau orðin 58-60, en nú munu þau vera nálægt 135. 1 greininni segir enn fremur: Stærð, her- bergjafjöldi og prýði húsanna er þó miklu meiri að tiltölu, hjá þvi sem hér var fyrir 30-40 árum, heldur en f jölgun húsanna sjálfra, þó að hún sé mikil. Fyrir 1820 voru hér fá hús og smá og óséleg herbergi i ibúðarhúsum. Nú eru þau fleiri og stærri og að öllu lag- legri. Þá voru hér engin ibúðar- hús tviloftuð né með annarri yfir- byggingu. Nú eru hér þrjú mikil pakkhús, tviloftuð og sex ibúðar- hús, tviloftuð og átta ibúðarhús önnur með yfirbyggingu til ibúðar. Eftir aldamótin, með tilkomu fjölþættari byggingarefna, fer byggingarformið að breytast. Járnklædd timburhús þjóta upp og standa mörg þeirra enn i dag. Sum þessara húsa voru mjög falleg, en mikið var þó byggt af formljótum húsum eins og geng ur. Knud Zimsen fyrrv. borgar- stjóri i Reykjavik mun vera sá,er fyrstur semur frumvarp að byggingarsamþykkt fyrir Reykjavik, það mun hafa verið 1903. Uppkastið að þessari byggingarsamþykkt mæltist mis- jafnlega fyrir, mun flestum hafa fundizt þær breytingar, sem gert var ráð fyrir i frumvarpinu,ganga of langt. Það var einkum þrennt, sem samþykktin beinist einkum að: Minnka brunahættu i bænum, vinna að greiðari umferð um bæ- inn og koma i veg fyrir óheilnæmi ibúðarhúsnæðis. Munu spjótin Eitt hinna mörgu bárujárnshúsa við Tjarnargötu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.