Tíminn - 04.02.1973, Blaðsíða 8

Tíminn - 04.02.1973, Blaðsíða 8
Kgill Kgilsson vift afgreiftsluhorftið í Týli aft Austurstræti 20, þar sem verzlunin hefur verift til húsa frá upphafi, og átt vift mikil þrengsli aft búa. Hann heldur hcr á Canon inyndavcl af mjög vandaðri gerft, en fruman vift hann eru sjó naukar, en af þeim hcfur verzlunin fyrirliggjandi mesta úrval á landinu, yfirleitt milli 20 og :!0 tegundir. I þessum húsakynnum er einnig gleraugnadeild. Cr verzlun Týli aft Austurstræti 7, sem opnuft var i október i haust. Kins og sjá má er þarna mikið úrval af gleraugum og loftvogum, en i verzluninni fást einnig alls konar Ijósmyndavörur, eins og i Austur- stræti 20. Umboð fyrir fjölda ljós- myndavörufyrirtækja — Svo hafið þið alltaf fyrirliggj- andi fjölbreyttar ljósmyndavör- ur. Hverjar eru þær einkum og frá hvaða fyrirtækjum? — Eins og ég áður sagði, fengum við árið 1964 einkaumboð fyrir Agfa-Gevaert A.G., en það fyrirtæki framleiðir allra handa ljósmyndavörur, sem við höfum allar á boðstólum. Þá höfum við og einkaumboð fyrir Canon myndavélar óg söluumboð fyrir Nikon. Einnig höfum við einka- umboð fyrir fjölmörg japönsk fyrirtæki, sem framleiða t.d. leifturljós, sýningarvélar og margt fleira. Einnig önnumst við um dreifingu á Osram leiftur- ljósaperum og Varta rafhlöðum. Nýtt litmyndaverkstæði i uppsiglingu — Þá er að geta þess, sem nú er stærsta nýjungin í rekstrinum, að innan skamms munum við fara af stað með nýtt litmyndaverkstæði, þar sem framkallaðar verða lit- myndir á pappir, en ,,slides”myndirnar munum við eftir sem áður senda til Kaup- mannahafnar, þar sem þær eru afgreiddar á þrem dögum. Tæknifræðingur frá Agfa kom nú i vikunni til að leggja siðustu hönd á uppsetningu vélanna og stillingu þeirra. Agfa verksmiðj- urnar krefjast þess, til að hæstu gæði séu tryggð á framkölluninni. Uppsetning þessa verkstæðis er gerð i samráði og samvinnu við Skyndimyndir s.f., og verður það rekið af fyrirtækjunum báðum. Takmark okkar er að geta framkallað og stækkað litmyndir á svo skömmum tima, að af- greiðslufresturinn verði ekki lengri en tveir dagar. Það ætti ekki að vera svo miklum vand- kvæðum bundið, þvi að filmu- framköllunarvélin getur fram- kallað 120 filmur á klukkustund, og stækkunarvélin á að geta 'stækkað milli 3000 og 4000 myndir á klukkustund, en hægt er að út- búa allar stærðir af litmyndum upp i 13x18 cm. Þá verður og hægt að útbúa með þessum vélum jóla- kort af stærstu gerð. Óbrotgjörn mynd af ást- inni sinni i veskinu Það var eiginlega ekki rétt, sem ég sagði i upphafi, að þetta væri framköllun á pappir, þvi að hann er alls ekki notaður, heldur er það plasttegund, sem mynd- irnar eru kopieraöar yfir á. Með þvi tekur stækkun helmingi skemmri tima, heldur en ef um væri að ræða pappirsnotkun. Með þessari plastnotkun verða svo myndirnar mun áferðar- fallegri og varanlegri og endingarbetri, þvi að þær er ekki hægt að brjóta. Eftir að þessi tækni verður kom- in i gagnið, geta menn þvi gengið méö mynd af kærustunni eða eiginkonunni i veskinu sinu, án þess að hún láti nokkurn tima á sjá. Þeir ættu að vera margir, sem vilja gripa það fegins hendi, að geta hvert sem þeir fara, alltaf haft mynd af ástinni sinni jafnungri og laglegri meðferðis. Það má i sambandi við uppsetningu þessa verkstæðis geta þess, að það verður að taka tillit til ýmissa furðulegra hluta frá leikmannssjónarmiði. Nú i vikunni er t.d. væntanlegur annar tæknifræðingur frá Agfa verk- smiðjunum, og mun sá ganga frá stillingu framköllunartækjanna, en henni þarf að breyta, vegna þess, hve islenzka vptnið er súrefnisrikt. Þvi gengur fram- köllunin i allt öðru visi fyrir sig en i nokkru öðru landi, þar sem allt vatn er kannski hreinsað skólp. Við urðum að senda sýnishorn af vatninu til verksmiðjanna, þar sem þeir i upphafi neituðu að trúa þvi,að svo lifandi vatn sem hið is- lenzk væri til. —Hvenær áttu svo von á að þið getið farið af stað með nýja verk- stæðið. — Vonandi verður það eftir um það bil viku, segir Hilmar. Eftir það vona ég að menn geti fengið litmyndina sina i hendur tveim dögum eftir að þeir tóku hana. Það er i mörgu að snúast hjá stjórnendum þessa athafnasama fyrirtækis og við hálfskömmumst okkar fyrir að tefja þá frá sinum daglegu störfum. Siminn hringir stöðugt, reikningar streyma að til afgreiðslu, og hvarvetna sinnir fólkið starfi sinu af kappi. Við kveðjum þvi eftir að hafa farið um helztu sali og deild- ir fyrirtækisins og heimsótt Týli verzlanirnar i Austurstræti. Hilmar er þó þotinn áður til að koma i gang litmyndaverkstæð- inu, þar sem þýzki sérfræðingur- inn er að störfum. Erl gleraugu i þeim stil, sem flest eldra fólk notaði, og margir vilja kaila einu nafni ,,ömmugler- augu.” Þessi gleraugu voru annars tið- ust milli 1940 og 50 og þessar um- gerðir kallast Churchill-umgerð- ir, sennilega af þvi, að hvar sem mynd sést af Churchill gamla með gleraugu, þá eru þau i þess- um stil. Sveiflurnar eru furðulegar eins og t.d. i þessu þegar umgerðir, sem legið hafa i 10-15 ár og ekki hreyfzt, seljast upp á örskammri stund, vegna þess, að þá er orðið „stæli” eins og unga fólkið segir, að ganga með þær. Það er meira að segja svo „stæli”, að þeir eru margir, sem hafa keypt sér svona umgerðir, og látið setja i þær venjuleg gler, vegna þess, að þeir hafa i raun séð agætlega en samt viljað tolla i tizkunni. Þessar umgerðir eru nú svo til alveg uppseldar og við erum að leita -fyrir okkur um, hvort hægt sé að fá nýjar birgðir einhvers staðar erlendis frá. Helzt eiga þau að vera gyllt eða silfurlituð, og umgerðirnar örgrannar með beinum spöngum. Þó að við séum allir af vilja gerðir til að gera fólki allt til hæfis i þessum málum, getur það orðið dálitið erfitt, þegar málin taka skyndi- lega svo óvænta stefnu. En e.t.v. er þetta aðeins það, sem alltaf má eiga von á eins og sagt er, að sagan endurtaki sig, þá leiti tizk- an ætið i sömu farvegi, en renni bara aðeins skamma hrið i hverj- um þeirra. mmmKAá ; LI !*- mú l 4 ** f' y i 1 ’ m- J ppf 1 1 1 B ' l 11 ; / - - '• iLffV æ&m&íæéMé : i r > _j I J 1 Starfsfólk verzlunarinnar I Austurstræti 20 viö afgreiðsluborftift. Allar innréttingar í þessu nýja myndirnar gefa hugmvnd um. húsnæfti eru mjög skemmtilegar eins og Timamyndir: —Róbert

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.