Tíminn - 04.02.1973, Blaðsíða 23

Tíminn - 04.02.1973, Blaðsíða 23
Sunnudagur 4. febrúar 1973. TÍMINN 23 Nýja hraunið í Eyjum á laugardagsmorgun ein báran stök” „Ekki er Ég vil byrja þessar linur minar á þvi að þakka .dagblaðinu „Timanum” fyrir birtingu greinar minnar, er ég sendi blað- inu og birtist i þvi laugardaginn 18. nóvember s.l. og sömuleiðis fyrirfram þakkir fyrir birtingu þessarar greinar, sem ég sendi þvi nú. Þvi eins og strákarnir á stöðinni okkar segja við mig stundum, „þetta er blaðið þitt”, og það eru orð að sönnu. Samvinnumaður mun ég verða þó svo að manni finnist eitthvað stundum öðruvisi en manni likaði bezt. Maður verður að taka þvi, en þetta er nú nokkurs konar for- máli fyrir þvi sem á eftir kemur. „Ekki er ein báran stök”. Þetta gamla orðtak varð mér að orði þegar mér var afhent ný jólataxtatafla daginn fyrir Þorláksmessu, gefin út af stjórn landssambands leigubifreiða- stjóra, um leiö og ég leit yfir þetta rauöprentaða plagg sé ég strax að blöstu við mér villurnar i þvi, þó svo að við gætum lagfært þær, þvi töluna einn erum viö færir um aö skrifa, og hana settum við framan við töluna 2 og þar með var mynduð sú rétta tala 12 i staðinn fyrir 2. Þrjár aðrar villur voru i töflunni og læt ég þeirra ógetið. Nú er svo komið að viö leigubil- stjórar höfum fengiö nokkra sárabót, þó svo að það heföi þurft að vera heldur hærri tala sem við fengum. Mér datt i hug að það hefði verið sanngjarnari tala 30% eftir að hafa orðið fyrir jafn mikilli taxtaskerðingu og við höfum orðið fyrir nú s.l. fjögur til fimm ár. Það sem áunnizt hefur er ekki hægt að þakka stjórn stéttarfélagsins okkar „Frama” heldur þrotlausri baráttu þeirra manna, sem höfðu það af að ná i taxtagrundvöll frá þeim aðila, sem enginn mun véfengja, og þeim mönnum ber okkur að þakka. Ég vil geta þeirra með nöfnum: Daniel Pálsson og Kristján Jensson hafa staðið saman i baráttunni frá Bæjarleið- um og svo munum við minnast unga mannsins frá BSR, Úlfs Markússonar, sem hefur unnið af mikilli elju og hann flutti sitt mál á Glæsibæjarfundinum með þeim skörungsskap að af honum meg- um viö áreiðanlega mikils vænta. Þá átti af stjórn „Frama” að visa tillögu hans frá, en þá var ég ásamt meirihluta fundarmanna fljótur til að mótmæla þeirri til- lögufrávisun og kröfðumst við þess aö hún yrði borin undir at- kvæði og þá sáu þeir úr stjórninni að þeir urðu undan að láta og til- lagan var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta og þar með lauk þessari frávisunarleiö stjórnarinnar en fyrir bragðið fengum við i raun og veru viður- kenningu á 40 st. vinnuviku á lægri taxta og yfirvinnuálag. Eftir að grein min birtist 18. nóvember var eins og margir fé- lagsmenn vöknuðu við vondan draum. Það færðist llf i menn, þegar lögð var fram með óyggj andi rökum afkoma stéttarinnar, Einnig var sýnt að allar þær til- lögur sem við höfðum lagt fram á fyrrihluta aðalfundarins s.l. vor höfðu verið hunzaðar, og ekki farið eftir neinu, sem þar kom fram til úrbóta aða ábendingar. Formaðurinn, Bergsteinn Guð- jónsson, lætur samþykkja tillögu frá sér um að kjósa 15 til 17 manna ráð, til að vera stjórninni sem ráðgefendur I þvi að finna réttan textagrundvöll. Eftir að þetta hefur verið gert, að hans til- hlutan, eru nokkrir fundir haldnir á sumrinu, sem allir enda á einn veg, enginn taxtagrundvöllur finnst. Þetta gjörist i stað þess að fara eftir ábendingu okkar um að láta þetta i tölvu einhvers fyrir- tækis sem slikt framkvæmir. Það hefði getað gerzt á milli fyrri hluta og siðari hluta aðalfundar. Svo þegar það var komið i lag átti að leggja það fyrir verðlagsráð, sem ég er alveg viss um að borið hefði góðan árangur. Það er ekki heillavænlegt fyrir stjórn „Frama”að vera að semja og láta birta vitur á verðlagsráð, þegar þeir sjálfir eru ekki færir um að leggja fyrir verðlagsráö réttan taxtagrundvöll þeirrá. Réttar grundvallartölur munu verðlagsstjóri og verðlagsráö aldrei véfengja. A laugardags- kvöldið 20. þ.m. var ég svo hepp- inn að fá sem farþega frá Hótel Sögu formann verðlagsráðs og ók ég honum upp i Hliðar og aftur vestur á Hótel Sögu. Hann hóf máls á þvi við mig, hvort viö vær- um ánægðir með hækkun þá. sem viö hefðum fengið og tjáöi ég hon- um að svo væri nú ekki, þvi við hefðum átt það mikið inni að upp- hæð til , en hins vegar mundum við láta þetta kyrrt liggja, þar til einhverjar hækkanir yröu aftur og mundum viö þá auðvitað fá okkar réttu úrlausn eins og aðrir. Mér skildist jafnvel á honum að hann heföi getaö fallizt á meiri hækkun okkur til handa en þetta sem varö ofaná i verölagsráði. Það sem áunnizt hefur i þessum taxtamálum okkar er að minum dómi fyrir mestu að vera búinn að ná réttum taxtagrundvelli og munum við framvegis reyna að fela þeim mönnum forystu féiags okkar, sem færir eru um það, og þeim forystumönnum sem skilja félagsmálalöggjöfina betur en þeir menn virðast gera, sem við stjórn hafa verið nú um langa hrið og mistökin hafa hent æ ofan i æ. Ég var svo óheppinn að geta ekki mætt á seinni hluta aðal- fundarins i vor, kom ekki fyrr en búið var að loka fundarstað á meðan að yfir stóð atkvæða- greiösla um sumarfri, sem ég hélt að væri lögboðið hjá öllum, en fé- lagsskapurinn okkar er skritinn að mörgu leyti og þetta virtist vera hitamál að mega taka sumarfrí. All margir reyndu að fella það, en sem betur fór voru þeir fleiri sem samþykktu að taka sumarfri, og gera bifreiðina út á meðan, svo þjónusta við fólk- ið þyrfti ekki að dragast saman eða vanta bíla á meðan við vær- um i frii. Það er ein þröngsýnin, að mega ekki hafa mann á móti sérá bilum okkar sérstaklega um helgar, það mundi bjarga miklu um þjónustu við fólkið að komast heim af skemmtistöðum borgar- innar. Þetta hefur ekki veriö leyft nema með ótal leyfum. Það er alveg óhugsandi að maður, sem fer i akstur kl. 5 til 6 að morgni, ekur allan daginn og kvöldið til kl. 12. eöa 1, sé fær um lengri vinnutima og verður að hætta ein- mitt þegar næturvinnan er öll eft- ir og væri þá gott að mega setja óþreyttan mann á bifreiðina til þess að þjóna fólkinu til morguns eftir þörfum og óskum þess. Það þekkist vlst ekki i nágrannalönd- um okkar að ekki megi vera nema einn og sami maður á bifreið, þar eru tveir og jafnvel þrlr á vöktum. 1 sambandi viö það sem kom fram við útreikning á taxtagrundvelli okkar, um að við áttum inni eða réttara sagt að stjórn „Frama” ásamt gjald- skrárnefnd höfðu reiknað af okkur á undanförnum 4—5 árum um 93,99% vil ég benda sérstak- lega á að litill hefði þessi hlutur verið á hvert ár, ef fram hefði komiðréttilega og enginn vitað af þvi hvorki einn eða neinn. En það er öðru máli að gegna þegar þetta kemur fram sem ein heild allt i einu og engin undur þó þeim, sem taka eiga við tölum frá slikri stjórn, láti sér fátt um finnast eins og verðlagsstjóra og verð- lagsráði mun hafa þótt. Það er margt sem maður gæti sett á pappirinn um ýmsa þá hluti sem okkar félagsskap snertir og þyrftu að fá lagfæringu, og eitt af þvi er það, sem maður getur talið skrípaleik, að sami maður skuli vera formaður i stjórn „Frama” og I landssambandi leigubifreiða- stjóra. Hvað varð um formanninn úr Hafnarfirði? Og hver kýs stjórn landssambandsins? Ég verð að segja það að svona lagaðir hlutir þurfa að fá úrbætur. það er vist nóg fyrir stjórn stéttarfélagsins Frama að hafa eitt félag um að hugsa, eftir framkomnum lélegum vinnu- brögðum nú siðustu árin. Eitt af þvi sem ég tel að eigi að vera ský- laus krafa til hvers einasta fé- lagsmanns, er að offra félaginu sinu dag hvern nokkrum minút- um til umhugsunar um þau mörgu mál, sem snerta þaö og okkar afkomu. Ég vil einnig benda á þá staðreynd að við bifreiðastjórar höfum lagt á okkur alltof langan vinnutima meira segja með þvi brotið lög um hvildartlma þann, sem okkur er lögboðinn. Ég er enn þá vongóöur um að takast megi að lækka tolla á vinnutækjum okkar, þó svo að það hafi ekki verið gert ennþá, og mundi það bæta um fyrir okkur Framhald á bls 39

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.