Tíminn - 04.02.1973, Blaðsíða 31
Sunnudagur 4. febrúar 1973. TÍMINN 31
Unglingalið United var ósigrandi i fimm ár. Hér á myndinni, sést unglingaliðið, sem sigraði 1955,
standandi frá vinstri: Edwards <lézt), Beekett, Brennan, Hawkesworth, Khodes og Queenan. Fremri
röðin fra vinstri: Jones (lézt), Fidler, Colman, fyrirliði (lézt), McGuinness og Bobby Charlton.
,,Við munum koma til með að sjá
knattspyrnusnilling aftur, en það mun aðeins vera
til einn Duncan Edwards", sagði Sir AAatt Busby
BOBBY CHARLTON — sést hér
hlaupa inn á völlinn-i Bclgrad i
Júgóslaviu, þar sem United lék
gegn Rauðu stjörnunni. Nokkr-
um dögum siðar lá hann á
sjúkrahúsi í Munchen — þegar
hann fór að átta sig á hlutanum,
spurði hann strax um Duncan
Edwards. Honum var þá
svarað, að hann væri i næsta
herbergi mjög illa særður og
seinna um daginn fékk hann þá
yfirþyrmandi frétt — að hann væri
látinn.
sterkur hann var, stöðugur eins
og stórt eikartré. Enn hefur eng-
inn leikmaður komið fram i
Englandi, sem hefði eins mikla
snilligáfu — hann gat leikið allar
stöður á vellinum. Hann var snill-
ingur á öllum sviðum knatt-
spyrnu. Duncan var likamlega
hraustur og sagt er, að það hafi
þurft að sérsniða peysur fyrir
hann, þegar hann keppti fyrir
Manchester United og England —
þó virtist hinn gifurlegi brjóst-
kassi hans alltaf ætla að sprengja
þær utan af sér.
Stóri Dunk hafði mikið sjálfs
traust, sem gerði honum kleift
að vera fremstur i sókn og skora
þrennu ,,Hat tricks” á móti
landsliðsvörnum, draga sig siðan
afturog spila sem tengiliður þess
á milli. Leikni hans sem tengi-
liður er það sem lengst mun lifa i
minnum manna, svo gifurlega
kraft og mikla yfirferð hafði
hann.
Eftirmenn hans á leikvelli geta
að visu verið betri en hann á
einstökum sviðum knattspyrn-
unnar, en eitt er vist — að það
slær honum enginn við i þvi, að
geta spannað yfir mörg svið.
Stanley Matthews og Tom
Finney voru töframenn með
boltann, en aldrei sást til þeirra
sú yfirferð, kraftur, skotharka
eða útsjónarsemi i spili, sem ein-
kenndi Stóra Dunk. Eusebio var
sérfræðingur i þvi að gera mörk
úr erfiðum stöðum, en hver sá
hann i miðjuslagnum á vellinum,
þar sem þolið kemur fram.
Margar smásögur hafa mynd-
azt um þennan unga mann Ekki
er hægt að ljúka þessu spjalli,
nema ein af þeim fylgi.
Eitt sinn átti Duncan að spila
með enska landsliðinu gegn þvi
welska. Svo skemmtilega vildi til,
að þjálfari welska landsliðsins,
Jimmy Murphy, var þá þjálfari
Manchester United .og þekkti
Duncan þvi vel. Jimmy Murphy
lagði weizka landsliðinu
lifsreglurnar fyrir leikinn og
reyndi að telja þeim trú um, að
núna myndu þeir vinna erkióvin-
inn. Þegar welska liðið hljóp inn á
völlinn, hinkraði einn leikmann-
anna við, greip um handlegg
Murphy og sagði: ,,Ég hef heyrt
mikið talað um þennan „STÓRA
DUNK”, hvernig er bezt að spila
á móti honum? Murphy svaraði
að bragði, hreinskilinn að vanda :
, ,,Gerðu sjálfum þér greiða og
vertu ekki fyrir honum”.
Duncan Edwards var yngsti
leikmaðurinn, sem hefur leikið
með enska landsliðinu, aðeins 18
ára. Hann lék sinn fyrsta leik með
landsliðinu 1955, þegar England
lék gegn Skotlandi á Wembley.
Leiknum lauk með sigri enska
liðsins 7:2. Næstu þrjú árin átti
hann eftir að vinna marga sigra
fyrir England og Manchester
United, en það var einmitt þá,
sem liðið fékk nafngiftina „Busby
Babes”, eða Börn Busbey’s.
Hver er Busby? Sir Matt Busby
er nú um sextugt. Hann réðist til
Manchester United sem fram-
kvæmdastjóri árið 1945. Þá var
aðkoman ekki fögur — leikvang-
urinn að Old Trafl'ord var i rúst
eftir sprengjuárásir Þjóðverja,
ogfélagið i miklum öldudal.
Busby hafði hugmyndir og fljót-
lega tókst honum að rifa United
upp úr öldudalnum. Strax árið
1948 sigraði Manchester United i
bikarkeppninni ensku. Liðið var
aftur i úrslitum árin 1957 og 1958,
og árið 1963 hreppti United bikar-
inn öðru sinni eftir striðslok.
Frægasta timabilið i sögu
félagsins eru árin eftir 1950, en þá
var Busby að byggja upp ósgir-
andi lið, sem byrjaði á þvi að
sigra deildina 1952. Það sem
lofaði beztu, var,að unglingalið
félagsins var ósigrandi, en i þvi
voru nöfn eins og Edwards og
Charlton — þetta lið sigraði ensku
unglingakeppnina fimm ár i röð,
en úrslitaleikirnir fóru þannig:
1953United — Wolves 9:3
1954United—Wolves 5-4
1955 United — W.B.A. 7-1
1956United—Chesterf. 4:3
1957United — WestHam 8:2
A sama tima vinnur félagið
ensku 1. deildina, árið 1956, 1957
— siðan aftur 1965 og 1967.
Kóróna valdaferils Busby hjá
United er þá vafalaust keppnis-
timabilið 1967-68. Þá sigraði
félagið Evrópukeppni meistara-
liða, er liðið vann Benfica á
Wembley 4:1. Evrópumeistara-
titillinn haföi lengi verið takmark
Busby, árið 1958 kom Miinchen-
slysið i veg fyrir það takmark, en
þá var liðið búið að tryggja sér
rétt til að leika i fjögurra liða
úrslitum, með sigrkium yfir
Rauðu Stjörnunni frá Júgó-
slaviu
Busby hafði ákveðnar skoðanir
á Þvi, hvernig byggja ætti upp lið,
þegar hann tók við stöðu sinni hjá
United, og þeim hefur hann fylgt
dyggilega, eða þar til hann lét af
störfum hjá félaginu 1969. Busby
sagði: „Ég hef alltaf þráð^
skapandi knattspyrnu, ef ég má
komast svo að orði”, og hann
hefur einnig sagt: „Þegar ég
byrjaði i starfi framkvæmda-
stjóra United, vildi ég ákveðnar
leikaðferðir. Ég vildi stjórna
liðinu á þann hátt, sem mér
virtust leikmennirnir vilja láta
stjórna því — vildi þar með skapa
meiri einingu og tengsl milli ein-
staklinganna, en tiðkaðist meðan
ég var sjálfur leikmaður. Þá voru
leikmennirnir oft látnir afskipta-
lausir”. Busby lék á sinum tima
með Manchester City og Liver-
pool, þá var hann einnig fyrirliði
skozka landsliðsins.
Sem fyrr getur, hafði hann
ákveðnar skoðanir á knattspyrnu
— með þær fyrir augum byggði
Framhald á bls 39
SIR MATT BUSBY—maðurinn, sem skapaði „The Busby Babes”, sést hér á inynuinni naiaa a ninu tau^piaua idmiumi, c,vru|<uuiKarnum
fyrir sigur i meistarakeppni 1968. TIu árum áður kom MÍinchen-slysiö í veg fyrir það takmark. Þessi mynd var tekin I hinni hundrað ára gömlu
„Town Hall”, þegar hann var aðlaður.