Tíminn - 29.04.1973, Qupperneq 7
Sunnudagur 29. april 1973.
TÍMINN
7
Ebeneser Asgeirsson, forstjóri Vörumarkaöarins hf.
Frá álnavörumarkaðinum, sem er á 3. hæö Vörumarkaöarins ásamt sængurfatnaði.
Vörumarkaðurinn
opnar 1967
Þessi nýja verzlun var með
dálitð öðru sniði, en venja er um
matvöruverzlun. Ef fólk keypti
nokkurt vörumagn, fékk það
magnafslátt. Vara var yfirleitt
seld i stærri einingum og þannig
komizt hjá ýmsum almennum til-
kostnaði matvöruverzlana.
Fólkið kaupir hér kort á kr. 900 og
fær siðan afgreiddar vörur fyrir
kr. 1000.
Þetta varð strax vinsælt
verzlunarform og viðskiptin fóru
vaxandi. Gert var ráð fyrir, að
menn keyptu hér einkum þær
vörur, er hentugt er að kaupa i
stærri skömmtum.
Vörumarkaðurinn hætti siðan
við heimilistækjadeild og hús-
gagnadeild á 2. hæð hússins, þar
sem seld eru Electrolux —
rafmagns — heimilistæki, alls
konar búsáhöld og húsgögn. A 3.
hæð varð siðan deild fyrir álna-
vöru, áklæði og sængurfatnað.
Þar eru einkum seld kjólefni og
handhæg snið fyrir þá sem sjálfir
sauma fötin sin. Hin nýju fatasnið
gefa heimilunum áður óþekkta
möguleika til að sniða og sauma
tizkufatnað.
Þarna seljum við lika
acryl-sængur og dralonsængur,
sem nú ryðja sér til rúms, þvi þær
má þvo, og i samhengi við það,
seljum við efni i sængurföt, en þar
hafa einnig orðið til nýjungar,sem
gera þvott og frágang auðveldari
en áður var.
Þessi verzlun er með almennu
sniði.
1 húsgagnadeildinni er veittur
10% staðgreiðsluafsláttur nema
Texti:
Jónas
Guðmundsson
AAyndir:
Gunnar
V. Andrésson
af innfluttum húsgögnum, en þar
er álagningin svo lág að það er
ekki hægt. Hins vegar veitum við
þar 5% afslátt gegn staðgreiðslu.
Báðar þessar deildir hafa náð
vinsældum fyrir verð, gæði og
fallegar vörur
Eru vörurnar
ódýrari?
— Þvi hefur verið haldið fram
opinberlega, meðal annars af
fyrrverandi formanni Kaup-
mannasamtaka Islands, að það sé
blekking, að fyrirtæki geti selt
vörur á lægra verði, en almennt
gerist i verzlunum? Allt tal um
afsláttarkort sé aðeins blekking.
— Já. A sinum tima svaraði ég
þessu og sýndi fram á,að fólk fær
raunverulegan afslátt hjá okkur.
1 öllum tilfellum erum við fyrir
neðan leyfð verðlagsákvæði.
Þetta getur hver og einn kynnt
sér, sem vill gera samanburð.
Menn hafa reynt að koma þvi inn
hjá fólki, að hér sé ekki betra verð
en annars staðar, en við höfum
mikið af föstum viðskiptavinum,
sem hér koma reglulega og þeir
kæmu ekki hérna og keyptu, ef
þetta hefði við rök að styðjast.
— Á hverju byggist þetta þá?
— Það verður að gæta mikilla
hygginda i innkaupum. Veltu-
hraðinn verður að vera mikill og
tilkostnaður i lágmarki.
Hillur og hillukerfi, ásamt rán-
dýrum verzlunarinnréttingum,
sem flestar búðir eru með, sjást
ekki hér. Hér standa vörurnar
yfirleitt i kössum. Við brjótum
ekki niður i smá einingar, eins
og tiðkast i öðrum verzlunum. Til
dæmis skiptum við eplakassa,
eða appelsinukassa yfirleitt i
fjóra jafna hluta, en pökkum ekki
inn i neytendaumbúðir 2-3 eplum,
svo eitthvað sé nefnt. Þess vegna
er dreifingarkostnaður vörunnar
raunverulega minni, en þar sem
verzlað er á hefðbundinn hátt.
1 upphafi gerðum viö ráð fyrir
að fólk kæmi hér aðeins i örfá
skipti á hverju ári til að byrgja
sig upp með ákveðnar vöru-
tegundir, eða til stærri innkaupa,
en reynslan er hins vegar sú, að
flestir koma hér einu sinni,
tvisvar i mánuði til að verzla. Það
má þvi segja að fólkið hafi orðið
að læra að verzla hér, alveg á
sama hátt og við höfum orðið að
læra þennan verzlunarmáta lika.
Það var ekki farið eftir neinum
sérstökum fyrirmyndum, hvorki
innlendum, né erlendum við
stofnun verzlunarinnar, þótt siðar
hafi komið i ljós að svipuð fyrir-
tæki eru rekin erlendis.
Vöruvalið hefur lika aðlagazt
þörfum viðskiptavinanna. Við
seljum allar algengar matvörur.
Við seljum þó ekki kjöt, fisk, 'eða
mjólkurvörur ennþá, en það er
aðeins vegna skorts á húsrými.
1400 fermetra
húsnæöi
Vörumarkaðurinn hf. er hluta-
félag, eins og nafnið bendir til og
er i eigu fjölskyldu minnar.
Ragnheiður dóttir min starfar við
fyrirtækið og einnig sonur minn
Asgeir. Annað starfslið er ekki i
hópi eigenda.
Verzlunarrýmið er 1500 fer-
metrar á þrem hæðum og er
þegar orðið alltof litið. Viö getum
byggt við hér á baklóðinni um
1400 fermetra hús og höfum þegar
greitt nauðsynleg leyfi, en okkur
hefur ekki enn tekizt að afla fjár-
magns til að koma upp húsi, enda
þótt börf okkar sé brýn. Hjá fyrir-
tækinu starfa nú 15 manns og ég
vil leggja á það áherzlu aö við
höfum mjög gott starfslið. Hér
vinna allir eins og þetta væri
þeirra eigin fyrirtæki. Skrifstofu-
stjóri og prókúruhafi er Andrés B.
Sigurðsson. Hann kom til okkar
beint úr viðskiptadeild háskólans
Hluti af matvöruverzluninni. Þarna er oft þröng á þingi. Hér geta menn keypt allar helztu matvælategundir með afslætti.