Tíminn - 29.04.1973, Blaðsíða 8

Tíminn - 29.04.1973, Blaðsíða 8
og hefur reynzt afbragðsvel, og stjórnar hann bókhaldi og rekstri á peningalega sviðinu. Ragnheiður dóttir min, hefur siðan hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskólanum, verið hér innkaupastjóri og hún kaupir allar vörur inn fyrir Vörumark- aöinn. Við kaupum vörur bæði frá heildsölum og einnig beint frá útlöndum. Ég hef reynt að leggja áherzlu á góð kaup f niðursoðnum og ferskum ávöxtum erlendis frá. Við bjóöum til sölu öll þekktustu erlend vörumerki i matvælum, og við kaupum mikið af innlendum iðnfyrirtækjum, eins og til dæmis hreinlætisvörur og niöursuðu- vörur. Engir bananar — Eru nokkur brögö um að fyrirtæki vilja ekki skipta við ykkur, af þvi að þið seljið með þessum afslætti? — Nei, ekki höfum við orðið vör við það. Yfirleitt skilja menn, að þetta er sérstök verzlun og þjónar á sérsviði. Ég held að enginn neiti okkur um vörur, nema. Banana- salan, sem vill ekki selja okkur nema við endurseljum á sama verði og aðrar verzlanir gera. — Hvað er það sem mestu máli skiptir, svo unnt sé að reka svona verzlun? — bað er veltuhraðinn. Heildar vörusala okkar nam á siðasta ári um 112.000.000 kr. Fyrstu þrjá mánuöi þessa árs hefur aukningin numið 63 af hundraði. Þaö stafar held ég fyrst og fremst af þvi, að viö erum smám saman að finna út réttu vöruflokkana fyrir svona sérverzlun og fólk er fariö að sjá, að þaö er ekki allsstaðar sama vöruverð i bænum. — Má ekki gera ráö fyrir aukinni samkeppni á þessu sviði? — Jú vafalaust. En hins vegar geta svona verzlanir ekki komið að fullu i staöinn fyrir venjulegar verzlanir. Ef of margir fara út á sömu braut, er hætt við aö þetta detti allt um sjálft sig. — Er aðeins selt gegn stað- greiðslu? — Lánsviðskipti eru aðeins i heimilisrækjum og á húsgögnum. Hlutfallið i lánsviðskiptum hlýtur þvi að vera mjög svipað hjá okkur og öðrum, sem selja húsgögn og raftæki. Sérstök húsgögn Húsgögnin hjá okkur eru dálitið á öðru sviði, en hjá öðrum hús- gagnaverzlunum. Við látum sem mest framleiða fyrir okkur ákveðnar gerðir húsmuna og hafa þær notið mikilla vinsælda, eru i takt við smekk fólksins og þarfir. Hjá okkur starfar ungt fólk og það mótar auðvitað vöruvalið og stöndum við i mikilli þakkarskuld við það. bótt menn séu reyndir i verzlun og viöskiptalifinu, verða með einhverjum hætti að skapast nauðsynleg tengsl við almenning, smekk hans og kröfur. Verzlunin -V '■. . Séð yfir hluta af húsgagnadeildinni i Vörumarkaðinum hf. endurnýjast þvi meö nýju starfs- fólki, og nýjum timum. — Að lokum vil ég segja þetta. Vörumarkaðurinn er verzlun að nýrri gerð. Tilraun til að koma til móts við það fólk, sem vill — og ef til vill þarf, að beita hagsýni viö kaup á neyzluvörum. Fyrirmynd- ir að þessari verzlun voru engar til, þegar við hófum reksturinn. Það hefur oft verið langur vinnu- dagurinn hjá okkurhérna ogefvið hefðum ekki verið eins heppin með fólk og viðskiptavini, sem raun varð á, hefði ekki tekizt að koma þessu i kring. Sjálft rekstrarformið, hin sifellda við- leitni til að fá vörur og selja vörur ódýrar en aðrir, hefur orðið til þess, að beina viðskiptum okkar i att til ákveðinnar þróunar. Framleiðendur og heildsalar bjóða okkur ekki dýrar vörur, og það er oft hringt til okkar, ef kostur er á hagstæðu veröi. Þessi verzlunarmáti hefur þegar sannað gildi sitt á hinu afmarkaða sviði, sem honum var i upphafi ætlað. Sumsé hefur örvað seljendur til að bjóða hag- stætt vöruverð og kaupendur til að kynna sér mismunandi verð- lag á hinum ýmsa varningi, sem boðinn er til sölu, Og gæðin eru sizt minni hjá Vörumarkaðinum, hf. en hjá öðrum verzlunum, vil ég fullyrða. jg Búsáhaldadeildin ermjög fögur og sérkennileg. Þarna eru margir listrænir búshlutir seldir. mmmmmmmmmmmmmi :rV & I C'C'i & tVr':. • v: v, 0 i. * Tilkynning Þeir, sem telja sig eiga bila á geymslu- svæði „Vöku” á Ártúnshöfða, þurfa að gera grein fyrir eignarheimild sinni og vitja þeirra fyrir 14. maí. n.k. Hlutaðeigendur hafi samband við afgreiðslumann ,,Vöku” að Stórhöfða 3, og greiði áfallinn kostnað. Að áðurnefndum fresti liðnum verður svæðið hreinsað og bilgarmar fluttir, á kostnað og ábýrgð eigenda, á sorp- hauga, án frekari viðvörunar. Reykjavik, 27. april 1973. 'íW- • %) g & ; *-r 'A U M sKj y- v > .* W’, Gatnamálastjórinn i Reykjavik. Iireinsunardeild. Electrolux raftæki hjá Vörumarkaðinum. Þau eru sænsk, en framleidd um allan heim. Vörumarkaður- inn hefur haft umboð fyrir þessa raftækjategund f áratug. Electroluxheimilistækin eru alla vega lit og mjög glæsileg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.