Tíminn - 29.04.1973, Side 10
10
TÍMINN
Sunnudagur 29. april 1973.
Annc Aker sýnir okkur aö enn er nógur snjór i Geilo
„Nú borgar fólkið fyrir
að halda við heilsunns"
segir Walshovd hóteleigandi á Geilo
ENN SEM komið er,
getur aðeins að finna
eina sundlaug, sem er i
tengslum við hótel á ís-
landi. 1 skiðastaðnum
Geilo i Noregi eru niu
sundlaugar, sem byggð-
ar hafa verið við hótelin
þar, þrátt fyrir að ekk-
ert hveravatn geti að
finna þar. Bardöla hótel
heitir vinsælasta hótelið
i Geilo um þessar mund-
ir. Þar er nú nýlokið
byggingu innisundlaug-
ar, að stærð 14x8 metrar
og að auki er smá skot út
úr lauginni, sem er ætl-
að ósyndum börnum.
Sundlaug þessi er mjög
skemmtileg, kringum
alla laugina eru teppi á
gólfum, og það sem ger-
ir það mögulegt að hafa
teppi á gólfunum er.að
þarna er húsið hitað upp
með leiðslum, sem
liggja i gólfinu, og þess
vegna þorna teppin jafn-
óðum. Þá eru borð og
stólar meðfram lauginni
og stórir gluggar eru á
þeirri hlið sundlaugar-
hússins, sem snýr út að
garðinum. Við annan
laugarbakkann er full-
komin háfjallasól og þar
inn af mjög gott
„trimmherbergi.”
— Jú, vist var þetta dýr fram-
kvæmd, sagði eigandi hótelsins
að nafni Egil Walshovd, er við
ræddum við hann. En ef maður á
að fá ferðamennina hingað, þá
verður aðstaðan að vera góð. —
Egil segir okkur, að hann hafi
keypt Bardöla siðast á árinu 1964,
og þá hafi staðurinn aðeins verið
„pensjonat”, en nú að tólf og
hálfu ári liðnu er staðurinn orðinn
að stærsta hótelinu. Geilo með 220
manna gistirými á hótelinu og
fyrir utan hótelið standa smáhýsi,
sem taka 50 manns.
— Við höfum fært út kviarnar á
hverju ári og þegr maður lftur til
baka.þá hefur þetta gengið vel
segir Egil. 1 fyrra höfðum við 36
þúsund gestanætur, sem þýðir að
hér hafa verið um 100 manns að
meðaltali. Af þessum fjölda hafa
2/3 hlutar verið Norðmenn, en
1/3 útlendingar. Þeir útlending-
ar, sem hingað koma eru Eng-
lendingar, Hollendingar og Þjóð-
verjar yfir sumartimann, en yfir
vetrartimann sækja Sviar, Danir
og Þjóðverjar hingað mest. Fyrir
nokkrum árum voru Englending-
arnir fjölmennastir á Geilo, en
vegna gengisfellinga og óhag-
stæðrar stöðu pundsins hefur
þeim fækkað mikið, og við höfum
ekki enn fyllt i það skarð, sem
kom við fráhvarf Englending-
anna.
— Hvort eru vetrar- eða sumar-
mánuðurnir betri?
— Vetrarmánuðurnir eru mikl-
um mun betri, það er ekki af þvi,
að þá komiflestir ferðamennirnir,
heldur vegna þess, að þá kemur
hingað mesta peningafólkið.
Fólk, sem skilur eitthvað eftir i
Geilo. Ferðamannastraumurinn
hefur aukizt mikið yfir sumar-
mánuðina, en þetta er mikið fólk,
sem er á leið til vesturstrandar
Noregs, og dvelur hér i einn eða
. . -
Egil Walshovd ásamt syni slnum á barmi sundlaugarinnar.