Tíminn - 29.04.1973, Qupperneq 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 29. april 1973.
Umsjón: Alfreð Þorsteinssoní
BILL SHANKLY.......framkvæmdastjóri Liverpool sést hér I
einni af sinni frægu stellingu. Hann er alltaf mel) munninn
opinn, enda hálfgerður smellikjaftur.
,,Nei, lítið á
• X •• X • vv
miðvorðinn
Það er eins og hann hafi verið að
skemmta sér í nótt, kallaði Shankly
eitt sinn til manna sinna
EINN umtalaðasti
framkvæmdastjóri
enskrar knattspyrnu er
tvimælalaust Billy
Shankly, hinn litli fram-
kvæmdastjóri Liver-
pool. Um hann hafa
verið sagðar margar
sögur, sem eru orðnar
þjóðsögur i enskri knatt-
spyrnu. Shankly er éinn
mesti orðhákur og
virðist hann alltaf vera
með munninn opinn.
Enda segja menn, að
hann sé örugglega með
hann á réttum stað.
Tommy Smith, fyrirliði
Liverpool, ætlar sér að
segja okkur nokkrar
stuttar sögur af Bill
Shankly og við skulum
þvi gefa Tommy orðið:
,,Sulla i sig bjór á
leiðinni”
Bill Sankly er vanalega
i glerklefa þegar hann fylgist
með okkur leika á Anfield.
Glerklefi þessi er staðsettur
við dyrnar, þar sem leikmenn
liðanna hlaupa inn á völlinn.
Hann lætur alltaf dyrnar
standa opnar fyrir leiki og þegar
andstæðingarnir hlaupa inn á
völlinn, þá á hann til með að
standa i dyrunum og kalla til
okkar, þegar andstæðingarnir
hlaupa inn á: „Þetta verður allt i
lagi strákar, þeir líta út eins og
þeir hafi verið að sulla I sig björ á
leiðinni. Nei, litið á miðvörðinn,
það er eins og hann hafi verið að
skemmta sér I nótt”.
„Ætlaði að skrifa til
Kreml”.
Eitt sinn vorum við að leika I
Evrópukeppninni i Rúmeniu. Við
vorum staddir á hóteli og
pöntuðum okkur kók — okkur var
sagt að það væri ekkert kók til og
þótti okkur það nokkuð einkenni-
legt þvi við sáum fullan kók-kassa
i eldhúsinu. Þegar Shankly var
sagt þetta, þá varð hann mjög
reiður, æddi niður i eldhús, náði I
allt starfsfólkið og hótelstjórann.
Hann hellti sér yfir mannskapinn
og hótaði að skrifa til Kreml og
láta sjá til, að allt starfsfólkið
yrði sent I saltnámur i Siberiu.
Eftir þetta varð þjónustan mjög
góð og við fengum eins mikið
,,kók” og við gátum drukkið.
„Hefur gaman af að tala
um sjálfan sig”
Það kemur oft fyrir, þegar við
ætlum að hafa það huggulegt um
eftirmiðdag, að Shankly kalli
okkur saman á fund. Hann talar
þá ekki um leikaðferðir. Heldur
um, hvað við ættum að borða,
hvernig við ættum að sofa og svo
framvegis. Þá hefur hann einnig
gaman af að segja frá sjálfum sér
og hvað hann var góður i knatt-
spyrnu. Einnig rifjar hann upp
einstaka leiki, sem hann hafði
leikið og hvernig hann fór að þvi
að tæta i sundur varnir and-
stæðinganna. Ef við tækjum allar
þessar sögur hans alvarlega, þá
væri hann örugglega búinn aö
leika knattspyrnu i um 70 ár og
væri jafnvel enn að leika.
„Hótaði að slá tenn-
urnar úr markverði”:
Við vorum einu sinni
að leika knattspyrnu i sumarfrii i
Bandarikjunum, þar sem við
tókum þátt i móti. Okkur tókst að
komast i úrslit gegn þýzku liði.
Þjóðverjarnir vildu ekki leika
með plasthúðuðum bolta, heldur
vildu þeir leðurbolta. Dómarinn
var á öðru máli og lét leika með
plasthúðuðum bolta. 1 hita leiks-
ins, skipti markvörður þýzka liðs-
ins um bolta, svo að enginn tók
eftir þvi nema Shankly. Þegar
hann sá markvörðinn skipta,
hljóp hann inn á völlinn, réðist á
markvörðinn og hótaði að rota
hann og slá út úr honum tenn-
urnar. Áhorfendur ætluðu að
kafna af hlátri, þvi mark-
vörðurinn var yfir 2 m. á hæð um
160 kg. á þyngd og breiður eins og
dyrá vöruskemmu. Þess má geta
að Shankly er um 160 cm. á hæð
og mjög grannur.
„Hoppaði á gleraug-
um”:
Við voruin einu sinni sem oftar
að leika á Anfield og var þá
Shandly inn I glerklefanum
sinum. Við hliðina á klefanum var
áhangandi andstæðinga okkar og
lét hann öllum illum látum og
öskraði gifurlega. Þetta fór i
taugarnar á Shankly. Og þegar
hann sá öskurapann, sem var
með gleraugu — missa þau af sér,
stökk Shankly út úr gler-
klefanum. Hann var fljótari en
öskurapinn, náði i gleraugun, tók
þau og hoppaði á þeim. Oskur-
apinn steinþagði eftir þetta. Var
það ekki nema von, hann sá ekki
hvað var að ske á vellinum.
LIVERPOOL AFTUR
KOMIÐ Á TOPPINN
Lítið á Liverpool-liðið. Hvað sjóið þið?
Þið sjóið heilt lið af baráttumönnum,
kraft, leikni, vinnu, æsku, þol og
reynslu, blandað saman
HINN SNJALLI framkvæmdastjóri Englands-
meistaranna nýkrýndi Bill Shankly, lét hafa það
eftir sér fyrir tveimur árum, að það væri ekki langt
þangað til að hann kæmi með lið, sem myndi vinna
alla titla i knattspyrnu, sem hægt væri að vinna. Þá
sögðu menn að þetta væri bara elliraup i honum. Nú
muna menn þessi orð Bill Shanklys, þegar allt
gengur vel hjá hinu snjalla Liverpool-liði. Liver-
pool-liðið var krýnt Englandsmeistaratitlinum i
gær og á miðvikudagskvöldið tryggði liðið sér rétt
til að leika til úrslita i UEFA-bikarkeppni Evrópu-
liða. Bill Shankly hefur náð frábærum árangri með
Liverpool-liðið. Síðan Liverpool sigraði 2. deildina
1961-1962, hefur það aldrei lent fyrir neðan áttunda
sæti i 1. deildinni. Þrisvar hefur það orðið
Englandsmeistari 1964, 1966 og nú i ár 1973. Þá
hefur liðið orðið einu sinni bikarmeistari, sigraði
Leeds eftir spennandi úrslitaleik 1965. Leiknum
lauk 2:1 i framlengingu. Likmenn Skotans Bill
Shankly voru beztir á þessum tima, menn eins og
Stevenson, Milne, Byrne, Hunt, St. John Yeats,
Lawrence og Strong, svo einhverjir séu nefndir.
Shankly var gagnrýndur 1968 fyrir að yngja lið sitt
ekki upp, sömu leikmennirnir, sem væru orðnir
gamlir, léku með þvi ár eftir ár. Árið 1969 gerði svo
Shankly miklar breytingar, hann setti gömlu
mennina út og kom með nýja menn i staðinn. Þá
hófst svo kallað breytingatimabil hjá Liverpool.
Mikið var um meiðsli hjá
Liverpool keppnistimabilið
1970-1971 og háði það mjög — i
liðinu léku meiddir leikmenn,
reyndir leikmenn settir út og
ungir og óþekktir leikmenn komu
i staðinn. Þá var enginn timi til að
æfa kerfi, hver leikur var látinn
mæta sinum þjáningum. Don
Revie framkvæmdastjóri Leeds,
sagði á þessum tima: ,,Ég hef
alltaf sagt, að það borgar sig ekki
að vanmeta Liverpool”. Og
Liverpool-liðið hélt áfram að
berjast — leikmenn liðsins, þótt
ungir væru gáfust ekki upp. Þrátt
fyrir hin miklu vandræði á þessu
breytingatimabili, komst Liver-
pool á Wembley i bikarúrslitin
1971. Þá tapaði liðið fyrir Arsenal
2:1 i fjörugum leik, sem var
framlengdur.
Fyrirliðinn Tommy Smith,
viðurkenndi eftir úrslitaleikinn,
að hann hefði ekki búizt við
svona miklu af liðinu — honum
hafði alltaf fundizt að liðið léki
yfir getu frá byrjun keppnistima-
bilsins. En nú þegar liðið er aftur
komið á toppinn segir Tommy:
,,Við hefðum ekki getað unnið
Leeds þrisvar i röð á heimavelli
þeirra, ef við værum ekki góðir”.
Steve Heighway, segir: ,,Við
æfum mjög vel, liðið ætlar sér að
verða lið áratugsins, eins og
siðasta áratugs. Við höfum unnið
að þvi að fá gott lið, þekkja hver
annan og stöður okkar á
vellinum”.
Liðið er nú orðið sterkt, með
Ray Clemence, markvörð
heimsins nr. eitt. Horfið á fyrir-
liðann Tommy Smith, ekki
eingöngu mikill baráttumaður,
heldur er hann með mikla knatt-
tækni i sinum stóra likama, segir
Biil Shankly, Chris Lawler,
kaldan, gáfaðan og tæknilegan
bakvörð, sem er sérfræðingur að
snúa vörn i sókn, Emlyn Hughes,
sterkan og þyngdarlausan, sem
getur skotið i hvaða stöðu serh er
og hvaða færi sem er. Hina ungu
leikmenn, eins og Steve
Heighway, Brian Hall, Cormack
og Boersma, einnig eidri leik-
mennina Peter Thompson og Ian
Callaghan, John Toshack, stór
leikmaður, sem getur notað
höfuðið og hinn stórkostlega
Kevin Keegan. Sannkallað
draumalið.
Margir halda þvi fram að Kevin
Keegan verði ekki lengi i
sviðsljósinu og andstæðingar
hans fari að læra á hann og virða
hæfileika hans. Bill Shankly er á
öðru máli, segir að Keegan sé
óútreiknanlegur og fljótari að
læra á andstæðingana, en
andstæðingarnir á hann.
Keegan er stórkostlegur I
loftinu, einn af leikmönnum, sem
Shankly hefur keypt á hlægilega
lágu verði. Keegan var keyptur
frá Scunthorpe á aðeins 35 þús.
pund. En Bill Shankly hefur
einnig keypt þá Steve Heighway.
Clemence og Larry Lloyd á
hlægilegu verði. Verð þessara
leikmanna, ásamt Keegan, eru
helmingi lægri, en Kevin Keegan
er metinn á i dag. Keegan hefur
áttfaldast I verði á tveimurárum.
Tommy Smith kom til Liver-
pool, þegar hann var aðeins 15
ára. Ástæðan fyrir þvi var, að
pabbi hans dó úr lungnabolgu.
Tommy, sem ætlaði alltaf að
verða arkilekt, varð þvi að fara
að vinna fyrir heimilinu. Hann
fékk vinnu hjá Bill Shankly sem
sópari hjá Liverpool, eða hálf-
gerður vallarvörður á Aníield
Road. Fékk þá aðeins átta pund i
kaup. Þar sem Tommy var stór
og sterkur, var hann látinn i
erfiðustu verkin, mála flóðljósa-
möstrin og annað þvilikt. Asama
tima og Tom'my vann á Anfield
sem sópari, kynntist hann öðrum
vallarstarfsmanni. Það var
enginn annar en Chris Lawler,
bezti vinur hans og hinn snjalli
bakvörður hjá Liverpool. Bill
Shankly gaf þessum ungu leik-
mönnum siðan möguleika að
leika og æfa með Liverpool-liðinu,
með þeim árangri, sem flestum
er kunnugt um.
Tommy Smith, fyrirliði
Liverpooi, segir að það sé gaman
að leika með ungu leikmönnunum
hjá Liverpool. En samt man ég
alltaf eftir gullaldarárunum
1963-66. Mér er alltaf minnis-
stæður úrslitaleikurinn á
Wembley 1965 i bikarkeppninni,
Þegar St. John skoraði úrslita-
Framhald á bls 39
rommy Smith, fyrirliði Liverpool, byrjaði ungur að vinna sem vallar-
vörður á Anfield. Nú er hann einn þekktasti leikmaður liðsins.