Tíminn - 29.04.1973, Síða 28

Tíminn - 29.04.1973, Síða 28
28 TÍMINN Sunnudagur 29. april 1973. ..nú or henni ekiö brott ú sjúkrabörum. Myndir þessar tók Eric Paul, franski kokkurinn, sem nú slarfar á Hótel Esju, en hann er áhugaljós- myndari og starfaöi fyrir skömmu (um tveggja ára skeið) á hinu fræga Savoy-hóteli i London. Ótfúlcgt minni Ritvélin, sem flestir vélritarar velja sér í dag heitir FACIT 1820. FACIT 1820 er tugþúsundum ódýrari en sambærilegar rafmagnsvélar. FACIT 1820 sparar ótrúlegan tíma með því að leggja ó minnið útlit allra eyðublaða fyrirtækisins. Þér stillið vélina ó stöðlun eyðublaðanna einu sinni, og FACIT geymir í sér stillinguna framvegis. FACIT 1820 er með tveimur böndum, — svart/rauðu silkibandi og svörtu plastbandi. FACIT 1820 býður yður marga einstaka möguleika: Bakslag með og ón línubils, undirstrikun og línubil ón bakslags, sjólfkrafa pappírsþræðingu, þægi- legan ósldtt og hdvaðalausa vélritun. Sisli <3. *3ofinsen 14 vesturgötu 45 símar,- 12747-16647 49 vandarhögg Eiturlyfjavandamálið er ofar- lega I flokki hcimsvanda- málanna. Hin mestu firn hafa verið rituð um eiturlyf i heimin- um í dag, sumt af skynsam- leguviti, annaö vart eða ekki. Þá hefur ekki siður verið rætt um eiturlyfjavandamálið um heim allan. Allt er þetta I góðum til- gangi gert, þ.e. til þess að reyna að snúa vesælum og sjúkum sál- um og likömum til betri vegar. Um árangurinn skal ekki fjölyrt hér. En þvi iniður, er alltof algengt að eyrað nemur ekki og augað sér ekki. Hvað um það, —vandfundin er hin rétta leið til sigurs. Hér er ekki ætlunin að fara út i prédikarnir af einu eða neinu tagi. Heldur veröur hér skýrt frá nokkrum bláköldum staðreynd- um, er snerta fjölda manns i flestum löndum hins vestræna heims, — einnig á íslandi. Hver eru viðurlögin við þvi að hafa eiturlyf undir höndum, selja þau eða neyta? 1 skýrslu, sem okkur barst nýlega, eru veitt svör við þessum spurningum, hvað snertir allmörg lönd. Verður greint frá þvi helzta hér á eftir. Athygli skal vakin á þvi, að i sumum löndum, er gerður greinarmunur á marihuana og öðrum eiturlyfjum, en marihuana mun vera eitt það veikasta þess- ara lyfja, sem á markaðinum eru. Nokkuð er á reiki, hvaða ávana- og fikniefni beri að flokka undir Narkótiks (narcotics) Á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa verið gerðar tvær alþjóðlegar sam- þykktir um eiturlyf, flokkun þeirra o. fl. Sú fyrri var sett árið 1961, en sú siðari 1971. Tilvist þessara tveggja samþykkta kemur að nokkru til af tæknileg- um ástæðum, sem ekki verður farið nánar út i hér. Eftir þeim báðum er farið við flokkun eitur- lyfja, svo að notað sér orðið „eiturlyf” yfir ávana- og fikniefni, deyfilyf, og önnur þau efni, sem hér er fjallað um. En sú flokkun er allmismunandi hjá hinum ýmsu þjóðum. Hvað snertir Narkótiks, er það að segja, að i samþykktinni frá 1961 er það notað sem samheiti m.a. fyrir morfin, heróin, kokain, opium, kannabis, sterk verkdeyf- andi lyf, svo að eitthvað sé nefnt. En ótalmörg önnur efni falla þarna undir. Samþykktin frá ’61 kallast „Single Convention On Narcotic Ilrugs.” Alþjóðasamþykktin frá ’71 kallast „Convention On Psychotipic Substances” eða nánast „Samþykkt um sálarlyf.” 1 henni eru undir Narkótiks meðal annars flokkuð LSD, Amfctamin, Meskalin ((Peyote) Psilócybin, og skyld efni, ýmis svefn- og deyfilyf, og Barbitúrsýrulyf, svo að nokkur séu nefnd. Þær hcimildir, sem stuðzt er við i þessari grein, virð- ast byggja að mestu eða alveg á alþjóðasamþykktinni frá ’61. Þegar Narkótiks eru nefn hér, er þviátt við morfin, hcróin, kókain, opium, kannabis (eitt afbrigði þess er marihuana), sterk verk- dcyfandi lyf 1. fl„ en þetta eru helztu efnin. Refsiákvæðin i hinum ýmsu löndum. Hér á eftir verður Narkótiks notað yfir þau efni,sem að ofan greinir. Til hagræðingar verður notuð skammstöfun. Brot A (sk. st. A) — að hafa undir höndum eiturlyf. Brot B — sala eiturlyfja. Brot C — önnur brot i sambandi við meðferð eiturlyfja, neyzla þeirra o. fl. Kanada. Marihuana: A — dómur á valdi viðkomandi dómara. B. — upp undir 7 ára fangelsi. C.— dómur fyrir neyzlu sá sami og fyrir Brot A. Narótiks: A — sex mánaða fangelsi eða sekt, — fyrir annað brot: upp undir 7 ára fangelsi. B— upp undir 7 ára fangelsi, — annað brot: frá 7 ára fangelsi til lifs- tiðar. C — eiturlyfjasjúklingar úrskurðaðir til læknismeðferðar um óákveðinn tima. Danmörk. Marihuana & Narkótiks: A & B — sekt, gæzlu- varðhald eða fangelsisdo'mur til allt að tveggja ára. Frakkland. Marihuana & Narkótiks: A — upp undir eins árs fangelsi og/eða 8-80 þúsund króna sekt. B — innlendir salar: 2-10 ára fangelsi, — erlendir salar i landinu: 10-20 ára fangelsi. t báðum tilfellum er refsing tvöföld við annað brot. C — allt að tveggja ára fangelsi fyrir neyzlu efnanna og/eða 8-80 þús. króna sekt. Vestur-Þýzkaland. Marihuana & Narkótiks: A & B — upp undir þriggja ára fangelsi og sekt C — fyrir dreifingu mikils magns efnanna, smygl þeirra, eða að leggja lif annarra i hættu með þeim: upp undir 10 ára fangelsi. Grikklandi. Marihuana & Narkótiks: A & B — upp undir 10 ára fangelsi'og há sekt. tsrael.Gerir ekki greinarmun á gerð eiturlyfja: A & B — sekt og/eða upp undir 10 ára fangelsi. C — upp undir 10 ára fangelsi fyrir að koma unglingum til að neyta efnanna. italia. Gerir ekki greinarmun: A & B — 3-8 ára fangelsi. Jainaica. Marihuana: A — upp ..hér er hún fallin i valinn, og....

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.