Tíminn - 29.04.1973, Qupperneq 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 29. april 1973.
..nú or henni ekiö brott ú sjúkrabörum. Myndir þessar tók Eric Paul,
franski kokkurinn, sem nú slarfar á Hótel Esju, en hann er áhugaljós-
myndari og starfaöi fyrir skömmu (um tveggja ára skeið) á hinu fræga
Savoy-hóteli i London.
Ótfúlcgt
minni
Ritvélin, sem flestir vélritarar velja
sér í dag heitir FACIT 1820.
FACIT 1820 er tugþúsundum ódýrari
en sambærilegar rafmagnsvélar.
FACIT 1820 sparar ótrúlegan tíma með
því að leggja ó minnið útlit allra
eyðublaða fyrirtækisins. Þér stillið
vélina ó stöðlun eyðublaðanna einu
sinni, og FACIT geymir í sér
stillinguna framvegis.
FACIT 1820 er með tveimur böndum,
— svart/rauðu silkibandi og
svörtu plastbandi.
FACIT 1820 býður yður marga einstaka
möguleika:
Bakslag með og ón línubils,
undirstrikun og línubil ón bakslags,
sjólfkrafa pappírsþræðingu, þægi-
legan ósldtt og hdvaðalausa vélritun.
Sisli <3. *3ofinsen 14 vesturgötu 45 símar,- 12747-16647
49 vandarhögg
Eiturlyfjavandamálið er ofar-
lega I flokki hcimsvanda-
málanna. Hin mestu firn hafa
verið rituð um eiturlyf i heimin-
um í dag, sumt af skynsam-
leguviti, annaö vart eða ekki. Þá
hefur ekki siður verið rætt um
eiturlyfjavandamálið um heim
allan. Allt er þetta I góðum til-
gangi gert, þ.e. til þess að reyna
að snúa vesælum og sjúkum sál-
um og likömum til betri vegar.
Um árangurinn skal ekki fjölyrt
hér. En þvi iniður, er alltof
algengt að eyrað nemur ekki og
augað sér ekki.
Hvað um það, —vandfundin er
hin rétta leið til sigurs. Hér er
ekki ætlunin að fara út i
prédikarnir af einu eða neinu
tagi. Heldur veröur hér skýrt frá
nokkrum bláköldum staðreynd-
um, er snerta fjölda manns i
flestum löndum hins vestræna
heims, — einnig á íslandi.
Hver eru viðurlögin við þvi að
hafa eiturlyf undir höndum, selja
þau eða neyta? 1 skýrslu, sem
okkur barst nýlega, eru veitt svör
við þessum spurningum, hvað
snertir allmörg lönd. Verður
greint frá þvi helzta hér á eftir.
Athygli skal vakin á þvi, að i
sumum löndum, er gerður
greinarmunur á marihuana og
öðrum eiturlyfjum, en marihuana
mun vera eitt það veikasta þess-
ara lyfja, sem á markaðinum eru.
Nokkuð er á reiki, hvaða ávana-
og fikniefni beri að flokka undir
Narkótiks (narcotics) Á vegum
Sameinuðu þjóðanna hafa verið
gerðar tvær alþjóðlegar sam-
þykktir um eiturlyf, flokkun
þeirra o. fl. Sú fyrri var sett árið
1961, en sú siðari 1971. Tilvist
þessara tveggja samþykkta
kemur að nokkru til af tæknileg-
um ástæðum, sem ekki verður
farið nánar út i hér. Eftir þeim
báðum er farið við flokkun eitur-
lyfja, svo að notað sér orðið
„eiturlyf” yfir ávana- og
fikniefni, deyfilyf, og önnur þau
efni, sem hér er fjallað um. En sú
flokkun er allmismunandi hjá
hinum ýmsu þjóðum.
Hvað snertir Narkótiks, er það
að segja, að i samþykktinni frá
1961 er það notað sem samheiti
m.a. fyrir morfin, heróin, kokain,
opium, kannabis, sterk verkdeyf-
andi lyf, svo að eitthvað sé nefnt.
En ótalmörg önnur efni falla
þarna undir. Samþykktin frá ’61
kallast „Single Convention On
Narcotic Ilrugs.”
Alþjóðasamþykktin frá ’71
kallast „Convention On
Psychotipic Substances” eða
nánast „Samþykkt um sálarlyf.”
1 henni eru undir Narkótiks
meðal annars flokkuð LSD,
Amfctamin, Meskalin ((Peyote)
Psilócybin, og skyld efni, ýmis
svefn- og deyfilyf, og
Barbitúrsýrulyf, svo að nokkur
séu nefnd. Þær hcimildir, sem
stuðzt er við i þessari grein, virð-
ast byggja að mestu eða alveg á
alþjóðasamþykktinni frá ’61.
Þegar Narkótiks eru nefn hér, er
þviátt við morfin, hcróin, kókain,
opium, kannabis (eitt afbrigði
þess er marihuana), sterk verk-
dcyfandi lyf 1. fl„ en þetta eru
helztu efnin.
Refsiákvæðin i hinum
ýmsu löndum.
Hér á eftir verður Narkótiks
notað yfir þau efni,sem að ofan
greinir. Til hagræðingar verður
notuð skammstöfun. Brot A (sk.
st. A) — að hafa undir höndum
eiturlyf. Brot B — sala eiturlyfja.
Brot C — önnur brot i sambandi
við meðferð eiturlyfja, neyzla
þeirra o. fl.
Kanada. Marihuana: A —
dómur á valdi viðkomandi
dómara. B. — upp undir 7 ára
fangelsi. C.— dómur fyrir neyzlu
sá sami og fyrir Brot A. Narótiks:
A — sex mánaða fangelsi eða
sekt, — fyrir annað brot: upp
undir 7 ára fangelsi. B— upp
undir 7 ára fangelsi, — annað
brot: frá 7 ára fangelsi til lifs-
tiðar. C — eiturlyfjasjúklingar
úrskurðaðir til læknismeðferðar
um óákveðinn tima.
Danmörk. Marihuana &
Narkótiks: A & B — sekt, gæzlu-
varðhald eða fangelsisdo'mur til
allt að tveggja ára.
Frakkland. Marihuana &
Narkótiks: A — upp undir eins árs
fangelsi og/eða 8-80 þúsund
króna sekt. B — innlendir salar:
2-10 ára fangelsi, — erlendir salar
i landinu: 10-20 ára fangelsi. t
báðum tilfellum er refsing tvöföld
við annað brot. C — allt að
tveggja ára fangelsi fyrir neyzlu
efnanna og/eða 8-80 þús. króna
sekt.
Vestur-Þýzkaland. Marihuana
& Narkótiks: A & B — upp undir
þriggja ára fangelsi og sekt C —
fyrir dreifingu mikils magns
efnanna, smygl þeirra, eða að
leggja lif annarra i hættu með
þeim: upp undir 10 ára fangelsi.
Grikklandi. Marihuana &
Narkótiks: A & B — upp undir 10
ára fangelsi'og há sekt.
tsrael.Gerir ekki greinarmun á
gerð eiturlyfja: A & B — sekt
og/eða upp undir 10 ára fangelsi.
C — upp undir 10 ára fangelsi
fyrir að koma unglingum til að
neyta efnanna. italia. Gerir
ekki greinarmun: A & B — 3-8
ára fangelsi.
Jainaica. Marihuana: A — upp
..hér er hún fallin i valinn, og....