Tíminn - 29.04.1973, Blaðsíða 39
TÍMINN
39
Sunnudagur 29. april 1973.
@ Vandarhögg
þeim til margra manna eða gegn
verulegu gjaldi með öðrum hætti,
en lög þessi eða lyfsölulög
heimila.
Með mál út af brotum á lögum
þessum skal fara að hætti opin-
berra mála.
Þess skal getið, að auk þeirra
nafna, sem nefnd eru i þessum
lögum, ná lögin einnig til þessara
efna, sem talin eru upp i Reglu-
gerð um ávana og fikniefni frá
1969: Kannabis (marihuana),
lysergið (LSD), Meskalin
(peyote) og psilócybin, svo og
hvers konar blöndur og sam-
setningar sem þessi efni hafa að
geyma.
Vafalaust hafa lesendur tekið
eftir þvi, að ekki er getið eins
rikisisambandi við eiturlyfjalög-
gjöfina, þ.e. Bandarikjanna.
Skýringin er sú, að hvert hinna 50
rikja Bandarikjanna hefur sina
sérstöku eiturlyfjalöggjöf, Alrikis
lög eru ekki til hvað snertir eitur-
lyf þar vestra, að sögn banda-
riska sendiráðsins hér i Reykja-
vik. Það var þvi enginn vegur að
telja upp öll þau lög, enda þótt
nefna hefði mátt nokkur þeirra til
viðmiðunar. Af þvi varð þó ekki
hér.
-Stp.
© Eins og
varðskipsmönnum att út i slikt á
gúmmislöngubátum, sem ekki
þarf annað en reka sæmilega góð-
an gogg i til að sökkvi. Það er að
gefa landsmönnum falsvonir að
minnast á togaratöku undir þess-
um kringumstæðum, a.m.k. ef
fara á upi borð i skipin á
gúmmibátunum. Min skoðun er
sú eftir þessa ferð með Óðni, að
það hljóti að vera niðurdrepandi
fyriráhafnir varðskipanna að að-
hafast ekki neitt innan um stóra
hópa togara, eins og raunin var
um óðin á fimmtudaginn.
Klippingar hafa verið reyndar —
og heppnazt þótt þeir stundi
veiðarnar tveir og tveir saman.
Aðeins með þvi að vera stöðugt að
trufla togarana við veiðarnar gef-
ast þeir upp á lögbrotunum, og
það á ekki að skipta neinu máli,
livort lafðin er að pakka niður i
ferðatöskurnar og undirbúa sig
fyrir tslandsferðr
— Kári.
© Toppinn
markið með skalla i fram-
lengingu. Þegar við komum heim
til Liverpool, þá var okkur fagnað
geysilega. Við vorum tvo tima að
komast nokkra metra,
mannfjöldinn, sem fagnaði okkur
var svo mikill. Það var gaman að
komast á Wembley 1971, þó að
það hafi ekki verið dagurinn
okkar. Við vorum aðeins fjórir
eftir i liðinu, sem lék á Wembley
1965, Peter Thompson, Chris
Lawler, Ian Callaghan og ég.
Chris Lawler, hinn snjalli bak-
vörður, sem er þekktur fyrir að
snúa vörn i sókn, hefur skorað
yfir 60 mörk á keppnisferli sinum
með Liverpool, en það eru tiu ár.
Til gamans má geta þess, að
margir skildu ekki til hvers hann
væri i liðinu, þá hafði hann leikið
yfir 300 leiki (nú 400). Þá meiddist
hann og gat ekki leikið með liðinu
um tim a. Hvað skeði, jú, það var
fyrst þá sem menn sáu hvað hann
var mikils virði fyrir Liverpool-
liðið. Lawler hefur leikið með
enska skólalandsliðinu og eins og
vinur hans Tommy, þá hafa þeir
leikið með unglingalandsliðinu,
landsliðinu undir 23ja ára aldri og
enska landsliðinu.
Læknir Liverpool-liðsins,
—
hefur sagt frá þvi þegar Lawler
gekkmánuðum saman á hverjum
degi til læknis, til að láta gera að
meiðslum og sprauta sig. Samt
spilaði hann knattspyrnukapp-
leiki á hverjum laugardegi.
Lawler sagðist hafa verið
hræddur fyrir leiki, en gleymt
meiðslum sinum, þegar
leikirnir hefðu verið flautaðir á.
Hann segist hafa verið heppinn á
sinum knattspyrnuferli — ég skil
ekki hvað ég hef getaö leikið
marga leiki sem bakvörður, án
meiðsla.
Eitt eru þeir Tommy Smith og
Chris Lawler glaðir yfir, þeir
háfa endurheimt Englands-
meistaratitilinn, eftir að hann
hafði verið burtu frá Anfield i sjö
löng ár. Þeireru glaðir yfir þvi að
leika ennþá i rauðu búningunum
og með hinum ungu leikmönnum
liðsins, sem hafa komið Liverpool
aftur á toppinn og menn muna svo
sannarlega orð Bill Shanklys,
þegar allt gengur svo vel.
Litið á Liverpool-liðið. Hvað
sjáið þið? Jú, þið sjáið heilt lið af
baráttumönnum — kraft, leikni,
vinnu, þol, æsku og reynslu —
blandað saman á skemmtilegan
hátt. Ray Clemence og Larry
Lloyd, studda af þeim Tommy
Smith, Chris Lawler og Alec
Lindsay. Emlyn Hughes, eins og
vinnuvél og Brian Hall á
miðjunni. Sem fremstu menn eru
hinir hraðskreiðu Steve
Heighway og Peter Thompson,
hinn óútreiknanlega Kevin
Keegan og John Toshack, eins og
loftpúðaskip.
En nú skulum við gefa fyrir-
liðanum Tommy Smith orðið i
lokin: vMenn segja að ég sé
grófur leikmaður, það er tóm vit-
leysa. Ég hef ekki meitt einn
einasta leikmann á minum knatt-
spyrnuferli. Mér er illla við leik-
menn, sem eru alltaf vælandi eitt-
hvert pempiuvæl utan i dómurum
— knattspyrna er fyrir karlmenn,
en ekki dúkkur. Ég ber virðingu
fyrir einum leikmanni. Það er Ian
Hutchinson, Chelsea, þóttað hann
leiki knattspyrnu eftir slæm
meiðsli, þá verður hann aldrei
hræddur. Hann gerir hluti, sem
ég mundi hugsa mér tvisvar um
að gera. Hutchinson rýkur i öll
návigi og hendir sér inn i þvogur
til að ná knettinum. Það er ekki
nema von að hann sé alltaf
meiddur.
Dómarar eru á góðri leið með
að skemma knattspyrnuna með
bókunaræði — þeir gera engan
mun á „tæklingu” og ruddaskap.
Bóka fyrir allt. Það á að láta
gamla knattspyrnumenn dæma
leikina — menn sem kunna knatt-
spyrnu og kunna að vega og meta
brot i leikjum. Það á ekki að vera
með skrifstofublækur sem
dómara. Skrifstofublækur, sem
kunna ekkert i knattspyrnu, Hafa
aðeins séð hana leikna i sjónvarpi
og i þá tvo tima, sem þeir eru með
flautuna uppi i sér á laugar-
dögum”. Þetta eru orð hins
reynda fyrirliða Liverpool. Þessi
orð eiga við dómarastéttina alls
staðar i heiminum, einnig hér á
Islandi, þar sem dómgæzla er
fyrir neðan allar hellur.
—SOS
o Strákarnir
félaginu i mai 1970. Hefur leikið
með landsliði lrlands og var kos-
inn „knattspyrnumaður ársins” i
Irlandi 1970. Sá titill náði yfir alla
þá Ira, sem leika knattspyrnu,
hvar sem það var i trlandi,
Englandi eða Skotlandi.
John Toshack:
Miðherji, var keyptur frá Cardiff
City i nóvember 1970 á 110 þús.
pund. Hann hafði skorað yfir 200
mörk með Cardiff i deildinni og
bikarkeppnum. Byrjaði strax að
skora fyrir Liverpool. Hann hefur
verið fastur leikmaður með
landsliði Wales undanfarin ár.
Aðrir sem leika með Liverpool
eru: Peter Cormack, 26 ára,
keyptur frá Nott. Forest á 110
þús. pund, Phil Boersma,20 ára,
Phil Thomson, 18 ára, Trevor
Storton, keyptur frá Trammer á
20 þús. pund. Frank Lane,
varamarkvörður, keyptur frá
Trammer á 10 þús. pund, Villi og
Jack Witham.
© Hjarta
eftir James Bond Dr. No. Það var
maður, sem ætlaði að skjóta dr.
No i hjartastað og vissulega brást
þeim náunga ekki skotfimin, en
dr. No lifði þetta af , þvi að
hjartað var hægra megin i
honum. Ég tók þetta þá eins og
hverja aðra fjarstæðu. Nú veit ég
skiljanlega betur.
— Ég hef aldrei verið minnstu
vitund smeyk við þetta, segir nú
Steinunn. Ég vandizt við þetta
eins og hvern annan sjálfsagðan
hlut siðan ég man fyrst eftir mér.
En það eru sumir, sem halda að
ég sé að skrökva, þegar ég segi
frá þessu. Þegar ég hef verið
skoðuð i skólanum, hafa
læknirinn og hjúkrunarkonan
varla áttað sig á þvi, að það þýddi
ekki að leita að hjartanu i mér á
venjulegum stað.
Einu sinni i gamanþætti, sem
víðlékum i skólanum, var það að
ég átti að styðja hendinni á
hjartastað. Ég bar hana auðvitað
að brjóstinu hægra megin, þá
ráku allir upp skellihlátur. En
það er nú heldur betra að vita
þetta, að allt er svona öfugt innan
i manni, bætir Steinunn við, til
dæmis ef ég fengi botnlangakast,
þvi að annars yrði ég kannski
.skorin upp öfugu megin.
Eins og við höfum áður vikið að
er Steinum þroskamikið myndar-
barn. Hún er sönghneigð, og full
af áhuga á öllu, sem fram fer
kringum hana, les kynstrin öll af
bókum. Sérkennilegast er, að hún
hefur tekið sig fram um að hafa
litlu krakkana i húsunum i kring i
eins konar sunnudagaskóla. Með
þennan skóla sinn byrjaði hún i
bilskúrnum, ævinlega klukkan
ellefu á morgnana. Þegar kólna
fór i veðri i haust, ætlaði hún að
flytja sig inn i þvottahúsið,. en þá
bauð mamma hennar henni
stofuna. Þessum nemendum
sinum sagði hún sögur, las fyrir
þau i bibliunni og spurði þau út úr
og fast að þvi predikaði yfir þeim.
Þetta féll svo niður upp úr
jólunum, þvi að þá var tekið upp
sunnudagastarf i Hallgrims-
kirkju.
— Það voru fimmtán eða sextán
krakkar, sem komu, þegar flest
var, segir Steiriunn, alls ófeimin.
Ég talaði við þá um ýmislegt i
bibliusögunum á barnalegan hátt,
alveg eins og ég hefði viljað láta
tala við mig, þegar ég var litil!
Þannig er hún — fullorðinsleg i
tali, órög og kemst ágætlega að
orði.
—JII.
Nixon
taka frá hvitum handa svört-
um. Þetta var og hefir verið
orsök mikillar sundrungar og
óánægju meðal þjóðarinnar.
— Hvaða vonir geta hinir
nauðstöddu gert sér, ef rikið
gegnir ekki mikilvægu
forustuhlutverki?
—Ég aðhyllist ekki heimsepki
Nixons. En engin rikisstjórn
getur alið fólk upp. Það verður
fólkið að gera sjálft. Trúin á,
að þetta sé á færi rikis-
stjórnarinnar, er einmitt ein
af mestu blekkingunum i okk-
ar samtið.
—'Telur þú þig ihaldssaman,
þar sem þú ert andsnúinn
Rousseausinnum og Jacobin-
um, sem þú svo nefnir?
— Já, ég er ihaldssamur. Ég
held, að ég hafi alltaf verið
það. En það þarf þó engan
veginn að tákna, að ég sé
sammála William Buckley i
ihaldsseminni.
— Hvers konar ihaldsmaður
ertu þá?
—Ég hef aldrei sóúizt á sveif
með Barry Goldwater eða
hans likum. Ég tel mig ekki
þess háttar manngerð. Ég er
að vona og ég trúi raunar, að
ég sé ihaldsmaður i likingu við
Edmund Burke. Ég trúi á
vissar grundvallarkenningar i
heimsepki og grunnlögum, og
þær kenningar eru ihaldssam-
ar i samanburði við kenningar
Jacobina.
VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm'
210 - x - 270sm
Aðrar stærðir. smiðaðar eftir beiðni.
GLUGGASMIÐJAN
Síðumúla 12 - Sími 38220
yvipAs
Þokulj ós
Varahlufirnir
í þokuljósin eru komnir
Póstsehdum um allt land
ARMULA 7 - SIMI 84450
Okkar vinsæla — ítalska
PIZZA
slær i gegn — Margar tegundir
Opið frá
kl. 08-21.30.
Laugavegi 178
Simi 3-47-80
VEITINGAHÚSIÐ
Lækjarteig 2
Rútur Hannesson og
félagar
Fjarkar — og
Kjarnar
Opið til kl. 1
rrn)m
r, KALT BORÐ^
& í HADEGINU U
BLÓMASALUR
LOFTLBÐIR
7M\\\^®
KVÖLDVERÐUR FRA KL. 7.
BORÐAPANTANIR I S(MUM
22321 22322.
BORÐUM HALDIÐ TIL KL. 9.
VÍKINGASALUR