Tíminn - 13.06.1973, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur 13. júnl 1973.
Tveir dollarar
me<i vöxtum
Frank Sinatra virðist ætla að
verða tiðförult i réttarsali
Bandarikjanna. Nú hefur hann
verið kallaður fyrir rétt vegna
ummæla, sem hann hafði um
Mazine Chesire, sem sér um
eins konar ,,Spegil”skrif fyrir
blaðið Wf shington Post. Sinatra
kallaði frúna tveggja dollara
mellu, og þykir henni þessi um-
mæli um sig heldur óvirðuleg og
meiðandi. Maxine Chesire er
fjögurra barna móðir, og hefur
hún nú höfðað mál á hendur
Frank Sinatra og krefst þess, að
hann verði dæmdur til þess að
borga henni eina milljón dollara
i miskabætur fyrir ummælin.
Hún er nú þegar búin að fá tvo
dollara, þvi Frank Sinatra stakk
þeim niður i viskiglasið hennar
strax á meðan þau voru að rif-
ast út af ummælunum. Spiro
Agnew „næstum forseti” getur
átt eftir að súpa seiðið af þess-
um ummælum, þvi að Frank
Sinatra er mikill vinur hans og
menn segja, að maður, sem gæti
átt eftir-að verða i forsetafram-
boði geti ekki látið það um sig
spyrjast, að hann eigi að vini
mann, sem kemur fram eins og
Sinatra gerir.
Liv Ullmann
í veizlu í Holly-
wood — án
Kissingers
Liv Ullmann hefur vakið mikið
umtal ekki einungis hér á landi
og annars staöar, vegna leiks
hennar i framhaldsmynda-
flokknum, sem undanfariö
hefur verið sýndur hér i sjón-
varpinu á sunnudagskvöldum.
Hún var fyrir nokkru stödd i
Hollywood, og þá var þar haldin
mikil veizla henni til heiðurs. I
veizlunni var fjöldi leikara, sem
flestir kannast við, og birtum
við hér myndir af þeim helztu. A
mynd nr. 1 er frú Miniver, eða
réttara sagt Greer Garson, sem
allir hljóta að muna eftir frá þvi
I gamla daga. Svo er það David
Janssen á mynd nr. 2, en hann
lék lækninn i myndinni á flótta.
A þriðju myndinni er Jean
Simmons með eiginmanni
sinum Richard Brooks, en hún
vill helzt fá að leika i kvik-
myndum i heimalandi sinu
Bretlandi á næstunni. A fjórðu
myndinni sjáið þið svo fyrr-
verandi eiginkonu Frank
Sinatra, Nancy með kvik-
myndaleikaranum Dean
Martin, en hann mun vera i
þann veginn að gifta sig. Nancy
Sinatra, dóttir Franks var lika i
veizlunni með manni sinum,
. ljósmyndaranum Ron Joy.
(Mynd nr. 5). á mynd nr. 6 er
hin eilift unga Doris Day með
ennþá yngri herra, en það er þá
aðeins sonur hennar Terry
Melcher, hvitklæddur og sið-
hærður. A 7. myndinni er Julie
Andrews og með henni Jerry
Pudney, sem vinnur að kvik-
myndaþáttagerð fyrir sjón-
varpsstöðvar vestra. Að lokum
er það svo drottning kvöldsins,
Liv Ullmann sjálf, en án Kiss-
ingers vinar sins. Hún hefur
látið hafa það eftir sér, að hún
vilji gjarnan eiga eftir að hitta
Kissinger oftar, og þar sem
þessar myndir eru úr sænsku
blaði er ekki að undra, að
Svíarnir, sem eru mjög hrifnir
af Liv, fullyrði, að það ætti ekki
að vera herranum á móti skapi,
þvl að Liv beri af sem gull af
eyrii kópi kvenna þeirra, sem
Kissinger hefur látið sjá sig með
undanfarin ár.
Melcher i vitt