Tíminn - 13.06.1973, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Miðvikudagur 13. júni 1973.
Nýbyggmg við sundin
Hjalti Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Innflutn-
ingsdeildar Sambands-
ins, hefur verið fram-
kvæmdastjóri hjá|SÍS og
átt sæti i framkvæmda-
stjórn síðan árið 11952.
Eftir að hafa verið
framkvæmdastjóri
Dráttarvéla hf. varð
hann framkv.stj. Véia-
deildar árin 1952j-1967, en
hefur siðan veitt Inn-
flutningsdeildinni for-
stöðu. Hjalti hefur setið
aðalfundi Sambandsins
siðan árið 1949. Hann
greindi á eftirfarandi
hátt frá þvi helzta, sem
á döfinni er hjá Innflutn-
ingsdeildinni og Sam-
bandinu:
— Erlendur Einarsson, for-
stjóri lagði fram og flutti árs-
skýrslu Innflutningsdeildar á
aðalfundinum. t ræðu hans kemur
fram, að heildarvelta Innflutn-
ingsdeildar var 1.627 milljónir
króna árið 1972 og hafði aukizt um
23.9% eða um tæpar 300 milljónir
króna frá árinu á undan. Mesta
aukningin varð i krónutölu i
byggingavörum og matvörum.
Ennfremur varö umtalsverö
aukning í öðrum vöruflokkum.
Stórframkvæmdir
i Sundahöfn
Það kom einnig fram á fundin-
um, að fyrirhugaðar eru miklar
framkvæmdir á vegum Innflutn-
ingsdeildarinnar og SIS við
Sundahöfn i Reykjavik, þvi að
það er orðið mjög aðkallandi að
bæta dreifingaraðstööu deildar-
innar, sem stækkað hefur um
helming á siðustu fimm árum. Er
hér um að ræða nýbyggingu i
þremur áföngum, sem hér grein-
ir:
1. áfangi er birgðastöð um
14.000 ferm. Þar verða vöru-
geymslur Innflutningsdeildar,
ásamt pökkunarstöð. söluskrif-
stofum og umbúðageymslum
Sjávarafurðadeildar o,fl. Gert er
ráð fyrir aö hefja byggingar-
framkvæmdir nú i sumar og að
þeim verði lokið miðsumars 1975.
2. og 3. áfangi er hafnar-
skemma. Þar verður vöru-
geymsla Skipadeildar, með við-
bótar steinsteyptu útisvæði sunn-
anverðu við skemmuna. 2. áfangi
er áætláður 6.500 ferm., en 3.
áfangi 11.000 ferm.
4. og sfðasti áfangi er stækkun
birgðastöðvarinnar o.fl., samtals
15.000 ferm. á tveimur hæðum.
Þegar byggingu lýkur, mun
húsiö allt verða samtals um 47.000
ferm. og um 430.000 rúmmetrar.
Reykjavikurborg hefur gefið lof-
orð um,að öllum framkvæmdum
á hafnaraðstöðu verði lokið eigi
siöar en 1980.
Þrengsli i birgða-
stöð. Sambandið i
Sundahöfn
Þegar fyrsti áfangi hefur verið
reistur, flyzt sem áður segir mik-
iö af starfseminni inneftir.
Birgðastöðin býr við mikil
þrengsli i grófinni. Þar er aðstað-
an mjög erfið, þvi að athafna-
svæði er svo til ekkert. Mikið hag-
ræði verður aö hinu nýja húsi, þvi
að nú verður að vinna mikla yfir-
vinnu til að anna daglegum störf-
um.
Fyrsti áfangi i Sundahöfn mun
verða á þriðja hundrað milljóna
króna, miðað við núverandi verð-
lag, en undirbúningi er ekki svo
langt komið, aö unnt sé að segja
fyrir með mikilli nákvæmni hver
heildarkostnaður þessa mann-
virkis verður.
Hin nýju hús munu standa
norðan Holtavegar, skammt
sunnan við Klepp og Vatnagarða.
Ekki er enn farið að gera Hafnar-
mannvirki þarna, sem áður kom
fram. Okkur lizt vel á þennan
stað. Sambandsmenn eru ekki
með öllu óvanir Sundunum. Við
rekum þar nú fóður blöndunar-
stöð, sem tekin var i notkun fyrir
fáeinum dögum. Hún er i tengsl-
um við kornhlöðuna á Korngarði,
en Sambandið er einn þriggja eig-
enda Kornhlöðunnar hf. Fóður-
blöndunarstöðin i Þorlákshöfn
hefur nú verið tekin niður og
verður nú blandað fóður fyrir
Suðurlandsundirlendið allt i
blöndunarstöðinni á Korngarði.
Afkastageta verksmiðjunnar eru
um 20.000 tonn á ári, en árleg fóð-
urbætisþörf á þessu svæði mun
vera 26-30.000 tonn eftir árferði.
Endurgreiddu 14
milljónir króna til
kaupfélaganna.
Hagur Innflutningsdeildar var
góður á árinu. Deildin endur-
greiddi 14 milljónir króna til
kaupfélaganna og hefur á árun-
um 1968-1972 endurgreitt tæpar 50
milljónir króna til félaganna. Hjá
Innflutningsdeildinni starfa 82
manns og er það sami starfs-
mannafjöldi og árið á undan.
Launakostnaður jókst hins vegar
um 47.1% vegna nýrra kjara-
samninga og styttingar vinnutim-
ans. Jukust launagreiðslur úr 29.8
milljónum króna i 43.9, eða um 14
milljónir , rúmar.
Mörg viðskiptalönd
Viðskiptalönd Innflutnings-
deildar eru 28 með gjaldeyrisvið-
skipti og 4 vöruskiptalönd.
Hjá Innflutningsdeildinni hefur
verið kappkostað að reyna að
stuðla að aukinni félagslegri og
viðskiptalegri samhyggju t.d.
með vandaðri útgáfu að frétta-
blaði deildarinnar, Glugganum,
þar sem leitazt er við að segja,
mánaðarlega frá þvi helzta i
starfseminni, i máli og myndum,
og áframhaldi samkaupafund-
anna, þar sem innkaupastjórar
félaganna fá tækifæri til að hitt-
ast bera saman bækur sinar og
kynnast nýjum viðhorfum i verzl-
unarháttum. Ötal margt er það
fleira sem unnið er við, og sifellt
skapar samvinnuverzluninni
betri möguleika til virkari þátt-
töku i verzluninni i landinu og
stærri hlutdeildar i henni.
Aðalfundurinn
Um aðalfundinn i ár er það að
segja, að hann hefur kannski ein-
kennzt meira af félagslegum um-
ræðum en oft áður. Það er ávalt
viss hressandi blær á þessum
fundum, og maður myndi ein-
angrast meira, ef aðalfundirnir
væru skipulagðir á annan hátt.
Hér gefst manni tækifæri til þess
að blanda geði við marga menn,
sem gagnlegt er að hitta og starf-
ið verður liflegra en ella.
JG
Sambandið mun
reisa 47.000
fermetra birgðastöð
og hafnarskemmu
við nýtt
hafnarsvæði í
sundahöfn
Samtal við Hjalta
Pdlsson
framkvæmdastjóra
Innflutningsdeildar
SÍS
Hjalti Pálsson. framkvæmda-
stjóri Innflutningsdcildar Sam-
bandsins.
Ilalldór Halldórsson, kaupfélags-
stjóri á Vopnafirði. Jón Þór
segir Halldór
Halldórsson,
kaupfélagsstjóri
á Vopnafirði
Brýn
þörf á
einu
strand-
ferðar-
skipi
til við-
bótar
Framleiðslusamvinnufélag rafvirkja
Húsbyggjendur
Styðjið félagslegt
framtak.
Látið rafvirkjasveina
annast raflagnir i nýja
húsið.
Góð þjónusta.
Vanir menn.
SAMVIRKNI
Barmahlíð 4
Upplýsingar f sima 15460 kl.
17-19
HALLDÓR
HALLDÓRSSON, kaup-
félagsstjóri á Vopnafirði
tók við stjórn Kaup-
félags Vopnfirðinga árið
1964, en hafði áður unnið
hjá Sambandinu og
siðast sem aðalbókari
hjá kaupfélaginu á
Ilornafirði. Honum
sagðist frá starfinu á
Vopnafirði á þessa leið:
Félagssvæði kaupfélagsins er
Vopnafjarðarhreppur. Á þessu
svæði búa milli 8 og 900 manns og
félagsmenn i kaupfélaginu eru
280. Vopnafjörður er skýrt af-
markaður frá annarri byggð af
óbyggðu landi og við rekum ekki
neina starfssemi utan svæðisins,
en fólkið i Viðidal, sem er milli
Grímsstaða og Möðrudals á fjöll-
um hefur þó viðskipti við okkur.
Land Rover
diesel 1965 til sölu. Skoðaður
1973.
Upplýsingar i 93-2133 eftir kl.
20.00.
15 óra
stúlku langar að komast á
gott sveitaheimili i sumar.
Upplýsingar i sima 83999.
Kýr til sölu
Upplýsingar gefur Guðjón
Sigurðsson, Gaulverjabæ.
Verzlanir KV
Kaupfélagið rekur verzlun á
Vopnafirði. Þar er fullkomin
kjörbúð með allar matvörur,
búsáhaldadeild og fatnaðarvörur,
en á öðrum stað er verzlað með
byggingavörur, þ.e. timbur og fl.
svo og sportvörur. Þá er og i
undirbúningi ferðamanna-
verzlun, eða veitingastofa, sem
taka mun til starfa fyrir sumarið
og ferðamannatimann.
Ferða manna verzlun
og veitingar
Það fer mjög vaxandi, að ferða-
menn leggi leið sina hingað, þrátt
fyrir miklar vegalengdir gegnum
auðnir hálendisins. Það munu
vera um 770 km til Reykjavíkur
eftir þjóðvegi, 250 km til Akur-
eyrar og þaö eru um 180 km til
Egilsstaða.
I veitingastofunni verða til sölu
„grillaðir” smáréttir allskonar,
öl gosdrykkir og fl., sem venja er
að hafa á boðstolnum i slikum
verzlunum. Með þessu vill kaup-
félagið reyna að koma á betri
þjónustu, en áður hefur verið unnt
að veita. Gistingu verður liklega
hægt að fá i sumar á Vopnafirði,
en þvi miður var það mál ekki
endanlega frágengið, er ég fór að
heiman og get ég þvi ekki skýrt
frá þvi, hvaða fyrirkomulag
verður á þvi máli.
Skuttogari og
frystihús.
Kaupfélagið tekur mikinn þátt i
atvinnulifinu á staðnum. Það á
hraðfrystihús, sem leigt er hluta-
félaginu Fiskvinnslan á Vopna-
firði, en kaupfél. á þar stóran
hlut, ásamt útgerðarfélaginu
Tanga hf., verklýösfélaginu og
Vopnafjarðarhreppi. A Vopna-
firði var allt atvinnulif miðað við
sildina. Hér er sildarverksmiðja
og söltunarstöðvar, en eftir að
sildin hvarf af Austurmiðum,
þurfti ný úrræði til að skapa at-
vinnu. Þá sameinuðust ýmsir
aðilar um fiskvinnsluna.
Undirstaðan i hráefnisöflun er
skuttogarinn Brettingur, sem
smiðaður var fyrir Tanga hf., i
Japan. Auk þess eru gerðir hér út
7 dekkbátar 12-15 tonna og eru
þeir á linu og handfæraveiðum og
6 trillubátar stunda handfæra-
veiðar. Nú stendur fyrir dyrum
nokkur stækkun á frystihúsinu.
Sláturhús og
mjólkurstöð
Kaupfélagið rekur sláturhús á
Vopnafirði. Þar er slátrað árlega
15-16000 fjár og eru kjötgeymslur
fyrir um 200 lestir af kjöti og hér
hefur verið starfandi mjólkurbú
siðan árið 1964. Mjólkurmagnið á
siðasta ári var um 660.000 kg.
Mest af þvi fer i vinnslu smjör og
kasein. Þá er talsverð sala i
neyzlumjólk. Mjólkurbúið selur
gerilsneydda, fitusprengda ný-
mjólk i eins litra plastumbúðum
og 10 litra kössum, Sáralitið er
selt af mjólk utansvæðis, en það
kemur þó fyrir að við seljum
mjólk niður á Firðina.
Úrbóta þörf i siglingum
og samgöngum.
Samgöngur eru strjálar við
Vopnafjörð. Við fáum allar okkar
vörur með skipum. Það kemur i
ljós að nýju strandferðaskipin,
Hekla og Esja, fullnægja ekki þvi
verkefni, sem þeim er ætlað, þótt
vitaskuld hafi smiði þeirra verið
til mikilla bóta. Það þarf nauð-
synlega að fá eitt, samskonar
skip til viðbótar, minna dugar
ekki.
Það er t.d. skemmst að
minnast, að nýlega varð vöru-
skortur á tsafirði, vegna sam-
gönguleysis og svo mun viðar
hafa orðið. Flugsamgöngur eru
hinsvegar ágætar, Norðurflug fer
4 sinnum i viku til og frá Akureyri
og þaðan eru svo allir vegir færir,
og Austurflug flýgur 2svar I viku
milli Vopnafjarðar og Egilsstaða
á smáflugvélum.
Sambandsskipin koma hér
einkum með stóra farma beint frá
útlöndum.
Auk þess, sem hér hefur verið
minnzt á, segir Halldór
Halldórsson, kaupfélagsstjóri að
lokum, rekum við bila-og búvéla-
verkstæði og hjá kaupfélaginu og
fyrirtækjum þess starfa 20-22
fastir starfsmenn. Formaður
kaupfélagsstjórnar er Kjartan
Björnsson, stöðvarstjóri pósts- og
sima.
JG