Tíminn - 13.06.1973, Qupperneq 18

Tíminn - 13.06.1973, Qupperneq 18
18 TÍMINN Miðvikudagur 13. júni 1973. NÝJA FÉLAGIÐ í BREIÐHOLTS- HVERFI HEITIR Þórarinn og Reynir verða með Valsliðið LEIKNIR Ragnar Magnússon kj Hinn 17. maí s.l. var stofnað íþróttafélag í Breiðholti III. Stjórn fram- farafélagsins í hverfinu boðaði til fundarins og stýrði formaður F.F.B. III Hjálmar Hannesson fund- Siitonen 93,90 m Ilannu Siitonen setti finnskt inet i spjótkasti I sl. viku, kastaði 93,90 m. Heimsmetið, sem Wolf ermann setti nýlega er 94,08 m Gamla finnska metiö átti Kinnun en, en það var 92,70 m. Habecker Sviss setti landsmet i hástökki stökk 2,10 m. Mótið fór fram i Helsinki. SUND- MÓT KR Hið árlega sundmót K.R. fer fram í Sundlauginni í Laugardal þriðjudags- kvöldið 19. júní og hefst kl. 20.00. Keppt verður í eftirtöld- um greinum/ og í þeirri röð sem hér greinir: 400 m. skriösund karla, Bikar- sund. 100 m. skriösund kvenna. Bikar- sund, Flugfreyjubikarinn. 200 m. bringusund karla. 100 m. bringusund kvenna 200 m. baksund karla. 100 m. baksund kvenna 100 m. skriðsund sveina (12 ára og yngri). 200 m. fjórsund kvenna. 100 m. bringusund drengja. 200 m. fjórsund karla. 4x100 m. bringusund kvenna. 4x100 m. skriðsund karla. Afreksbikar SSl vinnst fyrir bezta afrek mótsins samkvæmt stigatöflu. Þátttökutilkynningar berist til Erlings Þ. Jóhannssonar sima 15004 fyrir föstudagskvöld 15. júni. Kostakjör d bókum Aður auglýst kostakjör á bókum (innkallaðar bækur á bókamarkaðaverði) áfram i gildi meðan upplag endist. Allar bækurnar á 500 kr., þeirra meðal fimin skáldsögur, samtals yfir 2000 bls. — Peningar fylgi pöntun. Bækurnar sendar burðargjaldsfritt um hæl. Pantendur klippi augl. úr blaðinu og sendi með pönt- un sinni. Tilboðið gildir aðeins til 1. júli og þvi aðeins af- greiddar pantanir sem berast fyrir þann tima. Bókaútgáfan Rökkur Pósthólf 956, RVK. örinn formaður þess inum. Hið nýja íþróttafélag hyggst hefja starfsemina með knattspyrnuæfingum og handknattleiksæfingum einnig, en síðar er hugmyndin að taka upp borðtennis og verður það væntanlega næsta haust. Eins og sakir standa er í- þróttaaðstaða i hverfinu nánast engin. Eftir þeim upplýsingum, sem fengizt hafa hjá borgaryfirvöldum er óhætt að horfa björtum augum til framtiðarinnar hvað íþróttaaðstöðu varð- ar. A fyrsta stjórnarfundi iþrótta- félagsins var samþykkt með öll- um greiddum atkvæðum að félag- ið skyldi heita, tþróttafélagið Leiknir Breiðholti III. Stjórn fé- lagsins skipa eftirtalin: Formaður Ragnar Magnússon, ritari Jón Hjartarson, gjaldkeri Marinó Sigurpálsson, meðstjórn- andi Steinunn Hróbjartsdóttir, varaformaður Ólöf Stefánsdóttir, Friðrik Guðmundsson formaður handknattleiksdeildar, Danilius Sigurðsson formaður borðtennis- deildar, og til vara, Sigrún Indr- iðadóttir, Bertha Biering og Ste- fán Gunnarsson. Flest 1. deildarliðin í handknattleik hafa róðið til sín þjdlfara Þórarinn Eyþórsson og hefur frétt að IR-ingar hafi (Fram) og boðið honum að Reynir ólafsson hafa verið ráðnir þjálfarar Vals í handknatfleik, fyrirnæsta keppnistíma- bil. Valsliðið er nú statt úti á Spáni, þar sem það leikur tvo til þrjá leiki gegn spánskum félags- liðum. Þegar liðið kemur heim um miöjan mánuðinn, þá fara leikmenn liðsins að æfa af full- um krafti. Valur mun taka þátt i Evrópukeppni meistara- liöa i vetur og leikmenn liðsins hafa mikinn hug á aö standa sig vel i keppninni. Flest 1. deildarliðin i hand- knattleik hafa ráðiö til sin þjálíara. Pétur Bjarnason verður með Armannsliðið. Karl Benediktsson verður með Viking. Kristján Stefánsson þjálfar Hauka og það getur einnig farið þannig, að hann leiki með Haukum i vetur. Kristján hefur leikið með FH i mörg ár. Sigurður Einarsson verður þjálfari Fram. Dr. Ingimar Jónsson, sem hefur þjálfað FH og IR með góðum árangri, mun ekki þjálfa ÍR-Iiðið i vetur. Hann ætlar að taka sér fri frá hand- knattleik. 1R hefur ekki enn ráðið þjálfara, en iþróttasiðan Ileynir ólafsson og Þórarinn Eyþórsson, þjálfa Islandsmeistara Vaís i handknattleik, i vetur. Hér á myndinni sjást þeir stjórna Valsliðinu i leik. Fiskvinnsluhúsi í Hafnar firði breytt í íþróttahús Forráöamenn Knattspyrnu- félagsins Ilauka I Hafnarfirði boðuðu fréttamenn á sinn fund i fyrradag m.a. til aö skýra frá þvi, að tekizt hcföu samningar milli félagsins og Hafnarfjarðar- bæjar um afhcndingu „Hauka- hússins” svokallaða til Hauka, cn i þessu húsi ráðgéra Haukar að hafa framtiðaræfingaaöstöðu sina til innanhússiþrótta. Fréttatilkynning frá Haukum fer hér á eftir: Hinn 25. mai s.l. var undir- ritaður samningur milli Knatt- spyrnufélagsins Hauka annars-< vegar . Hafnarfj.b. hins vegar um afhendingu „Haukahússins” svonefnda, sem er fyrrverandi aðgerðarhús Jóns Gislasonar s.f. Samningurinn gildir til 25 ára og heimilar Haukum að breyta húsinu i Iþróttahús og byggja viðbyggingu fyrir búningsklefa og böð. Húsið stendur á svæði. sem er á skipulagi ráðgerðu sem skóla og leiksvæði og gæti verið i tengslum við væntanlegan Hraunaskóla. A þessu sama svæði eru stað- sett Æskulýðsheimilið og Verk- námsskóli Iðnskóla Hafnar- fjarðar. Haukar hafa sótt um það til skipulagsnefndar bæjarins að fá að gera á svæðinu nokkra sparkvelli og malbikaðan hand- knattleiksvöll. Samningar hafa verið langir og strangir en i upp- hafi hvildi öll undirbúningsvinna á þrem mönnum, þeim Garðari Halldórssyni fyrrverandi for- manni félagsins, Agli Egilssyni og Sigurði Kristinssyni. Siðasta áfangann höfðum við notið að- stoðar Gissurar Kristjánssonar lögfræðings og Yngva Rafns Baldvinssonar iþróttafulltrúa Hafnarfjarðar, sem sýnt hefur þessu máli mikinn áhuga og skilning. Forsaga þessa máls hefst i júli 1969 en þá ritaði stjórn félagsins bæjarstjórn bréf og óskaði eftir þvi að fá húsið til af- nota. Svar barst i nóvember sama ár og var það jákvætt. Ráögert var að gera samning um húsið en Haukar hófust strax handa við að lagfæra húsið og loka þvi. Þor- steinn Einarsson iþróttafulltrúi rikisins sýndi þessu máli mikinn skilning. Kom hann og skoðaði húsið og lét gera teikningar og kostnaðaráætlun um bygginga- framkvæmdir. Teikningar voru unnar af Stefán i Sigurbentssyni á teiknistofu Gisla Halldórssonar, en Verkfræðiskrifstofa Sigurðar Thoroddsen annaðist burðarþols- útreikninga. Húsið er að grunnfleti 16x30 metrar að stáerð og er i fokheldu ástandi. Húsið er fyrst og fremst hugsað sem boltaleikjahús og verður standsett sem slíkt og notað sem æfingahús eingöngu. Ekki er nokkur vafi á þvi að húsið fullgert mun koma i góðar þarfir þar sem aðstaða til iðkunar inni- iþrótta i bænum er af skornum skammti. Húsið hefur veriðsam- þykkt af iþróttasjóði rikisins og verður væntanlega úthlutað úr hinum nýja iþróttasjóði til þess strax á næsta ári. Þar með er það tryggt að rikið greiði 40% af byggingakostnaði, og Hafnar- fjarðarbær hefur lofað að greiða 30% af kostnaði. Það er von okkar Hauka að hús þetta verði til að styrkja mjög félagslega aðstöðu okkar sem er nánast engin i dag, auk þess að veita öllum Hafn- firðingum aukna aðstöðu til iþróttaiðkana”. Frá undirritun samningsins milli Hauka og Hafnarfjaröarbæjar. Björn Björnsson, formaður Hauka, t.v. og Kristinn Ó. Guðmundsson, bæjarstjóri, undirrita samninginn.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.