Tíminn - 13.06.1973, Blaðsíða 24
* "
Miövikudagur 13. júni 1973.
-
✓
Auglýsingasími
Tímans er
MERKIÐ, SEM GLEÐUR
HHtumst i haupféíagittu
-
pGOÐI
L jL fyrirgóoannwi
§> kjötiðnadarstöd sambandsins
Landhelgismálið tekið upp á ráðherrafundi Nato:
„Eðlilegt að styðja góðan
nágranna í góðu máli"
NTB—Oslo— Dagfinn
Várvik, utanrikisráð-
herra Noregs, sagði á
blaðamannafundi i
Osló i gær, að hann
mundi að nýju taka
upp islenzka land-
helgismálið á ráð-
herrafundi Nato, sem
hefst i Kaupmanna-
höfn á fimmtudaginn.
Várvik mun benda á
alvöruna i málinu og
að ástandið, sem er á
ísiandsmiðum geti
ekki haldizt. Hann
telur, að Danmörk
muni styðja mál sitt.
Ráðherrann sagði, að norsk
yfirvöld hefðu allt of litla at-
hygli vakiö á hvaö þau hefðust
aö i málinu. Hann benti á, að
Noregur hefði oftar en einu
sinni snúið sér bæði til Breta
og Islendinga, i þvi skyni að
komast að lausn með
samningum. — Við höfum
einnig verið gerandi aðilinn
innan Nato, bæði i sendiherra-
og ráðherraviðræðum, siðast
þegar Johan Kleppe, varnar-
málaráðherra reifaði málið i
sl. viku. Annars er það full-
ljóst, að tslendingar vilja ekki
semja fyrr en freigáturnar eru
farnar úr landhelginni.
— Það er eðlilegt, aö^
Noregur styðji góöan ná-'
granna i góðu máli, sagði ráð-
herrann einnig og benti i þvi
sambandi á, að Noregur hefði
allan timann i undirbúnings-
viðræðum hafréttarráöstefn-
unnar haldið þvi fram, að
strandriki ættu að hafa einka-
rétt á auöæfum hafsins i kring.
— Eftir hafréttarráðstefn-
una mun 50 milna landhelgi
verða viðurkennd staðreynd,
ekki aðeins fyrir tsland heldur
einnig önnur lönd, sagði ráö-
herrann að endingu.
— segir norski
utanríkisráðherrann
Dagfinn Várvik
Kohl kjörinn
formaður
CDU
NTB— Bonn — Leiðtogi stjórnar-
innar i v-þýzka rikinu Rheiniand-
Pfalz, Helmut Kohl, var i gær
kjörinn formaður kristilega
demókrataflokksins I stað Rcin-
ers Barzels, sem nýlega sagöi af
sér. Kohl var eini fram-
bjóðandinn og hlaut hann 524 af
605 fulltrúum á fiokksfundinum.
A móti greiddu atkvæði 51, en 29
skiluðu auðu og eitt atkvæði var
ógilt. Kohl tekur við starfi, sem
talið er eitt hið erfiðasta f þýzkum
stjórnmálum. Kristilegir demó-
kratar eru klofnir i mörgum
málum og ekki verður verkið létt-
ara, þar sem systurflokkurinn,
Kristilegi þjóðarflokkurinn, er
undir leiðsögn hins valdaglaða
Frans-Josef Strauss. Það var
vegna ágreinings við hann, aö
Barzel sagði af sér sem formaður
flokksins.
James McCord höfðar mál:
Nixon vissi fyrir-
fram um innbrotið
Fiskveiðiráðstefnan:
Kvóti settur á
grænlandsþorsk
NTB—Kaupmannahöfn — Krafa
Dana um takmörkun þorskaflans
við Grænland viö 85 þúsund lestir
árlega i stað 110 þúsunda, eins og
verið hefur, hefur fengið jákvæðar
móttökur á ársþingi NA-Atiants-
hafsfiskveiöinefndarinnar i
Kaupmannahöfn.
Danir lögðu tillöguna fram i sl.
viku og þykir liklegt að hún verði
samþykkt, en hins vegar kunna
að verða deilur um skiptingu
kvótans.
Danir hafa lagt til að græn-
lenzkir, danskir og færeyskir
sjómenn fái alls 40% aflakvótans,
en aðrir fái það magn.sem standi i
hæfilegu hlutfalli viö þaö sem þeir
veiða nú. Þaö er eining um þaö á
ráðstefnunni, að of mikiö sé veitt
af þorski i NV-Atlantzhafinu
og að nauðsynlegt sé að koma þar
á kvótakerfi. Þar sem fram til
þessa hefur verið erfitt aö koma
þvi á, vilja margir að takmörkun-
in fari fram með fækkun veiði-
skipa.
Búizt er við, að ráöstefnunni
verði slitið annað kvöld, eöa á
föstudagsmorgun.
NTB — Washington — Patrick
Gray, fyrrum yfirmaður FBI,
hefur sagt, að hann sé fús til að
segja allt sem hann veit um
Watergate-málið, án þess að fara
fram á að sleppa við ákæru.
James McCord,einn þeirra sem
tekinn var við innbrotiö i Water-
gate-bygginguna, segist ætla að
höfða mál á hendur Nixon for-
seta. Hann krefst hálfrar annarr-
ar milljónar dollara i skaöabætur
og heldur þvi fram, að Nixon hafi
að miklu leyti staðið á bak við
innbrotið. Það var lögfræðingur
McCords, sem sagði þetta i viðtali
og einnig, að málið tæki til Ehr-
lichmans, Haldemans og Deans.
Þar sem ekki er hægt að höfða
mál á hendur Bandarlkjaforseta,
verður mál þetta höföað á hendur
Nixon sem venjulegum borgara.
Maurice Stans, fyrrum við-
skiptaráðherra, bað i gær um að
vitnisburði hans yröi frestað, þar
til þægilegar stæði á, en hann átti
að bera vitni í gær og var búizt
við, að hann hefði frá einhverju
markverðu að segja. Beiðninni
var hafnað á þeim forsendum að
ekki yrði spurt spurninga, sem
tengdar væru réttarhöldunum
yfir Stans, sem standa fyrir
dyrum, en þau eru vegna 200 þús-
und dollara, sem runnu i
kosningasjóð Nixons.
SVEINSEYRI VIÐ TÁLKNA-
FJÖRÐ TEKUR VAXTARKIPP
2JA 4RA OG 6 MANNA
Sami maður hefur tekið að sér að reisa átta einbýlishús
við nýja götu
ÞAÐ sætir óneitanlega
tiðindum, þegar byggð
er röð húsa i einni lotu
við nýja götu i litlu
þorpi. í það hefur verið
ráðizt á Sveinseyri, þar
sem Ingibjartur
Þorsteinsson pipu-
lagninga meistari,
sjálfur ættaður af þess-
um slóðum, hefur tekið
að sér að reisa átta ibúð-
arhús úr steypueining-
um frá Sigurlinna
Péturssyni samtimis.
Verður hin nýja gata
nefnd Túngata, og gerð
á hana ný þvergata frá
Miðtúni, þar sem áður
var komin byggð.
— Við siðasta manntal voru
Ibúar hér á Sveinseyri 258, sagði
Davið Daviösson, oddviti þeirra
Tálknfirðinga, við Timann I gær.
Hér hefur verið nóg að gera,
sumar og vetur, og hefur hús-
næðisskortur áreiðanlega stuðlað
að því, að ungt fólk, er hér vildi
gjarna vera, tók þann kost að
flytjast burt. Hinum nýju húsum,
sem Ingibjartur reisir, hefur leiguibúðum, sem og ungt og upp-
þegar verið ráöstafað flestum og vaxandi fólk. En aö sjálfsögðu
fer I þau fólk, sem verið hefur I Framhald á bls. 23
Vetur í dal
Ærið kaldranalegt á vel heppnaðri
hvítasunnuhátíð í Þjórsárdal
ÓV, Reykjavik — Hvitasunnu-
hátiöin „Vor i dal”, sem Ung-
mennafélag tslands ásamt Ung-
mennafélaginu Skarphéðni og
Ungmennasambandi Kjalarness-
þings, stóð fyrir i Þjórsárdal um
hvítasunnuhelgina, heppnaðist
vel.
Á milli 5000 og 6000 manns voru
á hátiðarsvæðinu þegar mest var,
mest unglingar, sem áttu það
helzt sameiginlegt að vera kalt.
ölvun var hverfandi litil, dálitil á
laugardagskvöld en viða mátti
sjá „dauðadrukkna” unglinga,
sem voru ófullir við og við og
höfðu sjálfsagt ekki bragðað
dropa af áfengi. Lögreglan tók
talsvert magn af áfengi af sam-
komugestum og hellti töluverðu
niður en engu að siður voru ýmsir
sleipir við að fela áfengi sitt.
Leitað var i bilum — en þó ekki
öllum. Til dæmis var ekki litið inn
I þann langferðabil, er blaða-
maður Timans kom með.
Meiriháttar óhöpp urðu ekki en
þó leituðu um 500 manns til
slysahjálpar hjálparáveitanna,
sem voru á staðnum og fengu
flestir plástur á skeinur sinar.
Eitt tjald brann en eigandinn
slapp ómeiddur út með svefn-
pokann sinn i fanginu.
Þátttaka mótsgesta i dagskrá
var heldur dræm, nema til dæmis
ihestaleigunni og urðu margir til
að leigja sér hnakk á hestbaki i
15 minútur fyrir 150 krónur. Þá
má nefna að einn var skráður til
þátttöku i torfæruakstri og
þrettán tóku þátt i viðavangs-
hlaupi karla. Þrir þeirra voru
hvorki drukknir né timbraðir og
sigruðu með nokkrum yfir-
burðum.
Forráðamenn mótsins voru
ánægðir með gang mála, lög-
reglan lýsti ánægju sinni með
allan framgang mótsins og gestir
virtust mjög ánægðir með
helgina, þrátt fyrir kuldann og
sandrokið.
Sjá grein á bls. 17.
GÚMMÍBÁTAR
POST-
SENDUM
á
SP0RTVAL
j Hlemmtorgi — Simi 14390