Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 10
10 23. ágúst 2004 MÁNUDAGUR
AFTUR TIL FORTÍÐAR
Keppni í kúluvarpi á Ólympíuleikunum fór
fram á leikvanginum þar sem keppt var á
leikunum til forna.
Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna í Afganistan:
Vilja burt hið fyrsta
AFGANISTAN Sameinuðu þjóðirnar
ættu að draga starfsfólk sitt frá
Afganistan hið fyrsta áður en
hætta steðjar að. Þetta er ákall
starfsmannafélags starfsmanna
SÞ í landinu en óttast er að
hjálparstarfsmennirnir séu
ákjósanleg fórnarlömb ofbeldis-
manna sem líkur eru á að fari á
stjá fyrir almennar kosningar í
landinu í október.
Ástandið í Afganistan er
langt frá því að vera öruggt
þrátt fyrir að tekist hafi að
mestu að uppræta starfsemi
talibana, sem áður réðu lögum
og lofum í landinu. Ekki er langt
síðan hjálparsamtökin Læknar
án landamæra drógu alla sína
starfsmenn úr landinu enda
hafa allnokkrir vestrænir hjálp-
arstarfsmenn verið myrtir síð-
ustu mánuði.
Segja þeir sem til þekkja að
höfuðborgin Kabúl sé þokkalega
örugg en um leið og fæti sé stig-
ið út fyrir borgina sé voðinn vís
enda engir lögreglu- eða her-
menn á vappi þar eins og er
reyndin í Kabúl. ■
Listmunalán:
Til styrktar
listalífi
VIÐSKIPTI KB banki og skrifstofa
menningarmála Reykjavíkur-
borgar hafa gert með sér samning
þess efnis að bankinn bjóði al-
menningi vaxtalaus lán næstu
þrjú árin sem ætluð eru til kaupa
á listaverkum frá galleríum. Til-
gangurinn er sagður vera að
styrkja listalíf í landinu.
Í tilkynningu kemur fram að
lágmarksfjárhæð listmunaláns sé
36.000 krónur og hámarksfjárhæð
600.000 krónur. Kaupandi þarf
eingöngu að greiða útborgun sem
nemur 10 prósentum af verði
listaverksins. Hámarkslánstími
er þrjú ár. ■
Skákmót í Riga:
Hannesi
gekk vel
SKÁKMÓT Stórmeistarinn Hann-
es Hlífar Stefánsson hafnaði í
öðru til fjórða sæti á alþjóðlegu
skákmóti í Riga í Lettlandi sem
lauk á laugardag.
Hannes Hlífar gerði jafntefli
í lokaumferðinni á mótinu.
Jafnteflið var gegn lettneska
stórmeistarann og sigurvegara
mótsins, Edvins Kengis.
Hannes hlaut því alls sjö
vinninga þegar upp var staðið.
Kengis gekk hins vegar frá
mótinu með sjö og hálfan vinn-
ing.
Jafnir Hannesi Hlífari voru
þekktir skákmenn, eistneski
stórmeistarinn Mikhail Ryt-
shagov og svo einnig lettneski
alþjóðlegi meistarinn Ilmars
Starostits. ■
Staðan í haust gæti orðið hnífjöfn
Ekki er ólíklegt að Bush og Kerry hafi stuðning jafn margra kjörmanna eftir kosningarnar í nóvember.
Þá tekur við flókið ferli sem líklega verður Bush í hag. Þessi staða hefur aldrei komið upp áður.
Eins og staðan er í kosningabar-áttunni í Bandaríkjunum nú
gæti sú staða komið upp að bæði
George W. Bush og John F. Kerry
fái stuðning 269 kjörmanna. Alls
eru kjörmennirnir 538, jafn marg-
ir samanlögðum fjölda þingmanna
í efri og neðri deild Bandaríkja-
þings. Það hefur aldrei áður gerst
í sögu Bandaríkjanna að fram-
bjóðendur fái jafn marga kjör-
menn.
Mest spenna í tveimur ríkjum
Sé tekið mið af veðmálavefnum
tradesports.com, sem mikið er vís-
að til í umræðum um bandarísk
stjórnmál, eru flest ríki Bandaríkj-
anna nokkuð ákveðin í afstöðu sinni
en mjög litlu munar í tveimur
þeirra, Flórída og Vestur-Virginíu.
Ef Bush vinnur í Flórída en Kerry í
Vestur-Virginíu er staðan jöfn. Af
þessum sökum má búast við að
frambjóðendur verji miklum tíma
og fjármunum á þessum stöðum.
Allt að vinna í hverju ríki
Kosningakerfið í Bandaríkjun-
um er þannig að í hverju ríki fyrir
sig er kosið á milli frambjóðenda og
sá sem fær flest atkvæði hlýtur öll
atkvæði kjörmanna í því ríki. Á
þessu eru nokkrar undantekningar í
smáum ríkjum sem tekið hafa upp
hlutfallskosningu en meginreglan
er sú að sigurvegarinn hirði alla
kjörmennina.
Þess vegna er líklegt að baráttan
á næstu mánuðum verði sérlega
hörð um þau ríki þar sem talið er að
mjótt verði á mununum.
Kjörmenn óbundnir
Kjörmannakerfið er upprunnið
frá stofnun Bandaríkjanna og var
upphaflega hugmyndin sú að í
hverju ríki yrðu kosnir menn sem
síðan hefðu það hlutverk að ákveða
hvaða frambjóðanda skyldi styðja.
Rökin voru þau að frambjóðendur
gætu ekki kynnt sig nægilega vel til
þess að hinn venjulegi kjósandi
gæti gert upp hug sinn.
Þetta hefur þó breyst í áranna
rás og þótt tæknilega hafi kjör-
mennirnir víðast sjálfdæmi um
hvað þeir kjósa hafa lögspekingar
haldið því fram að kjörmönnunum
beri skylda til að kjósa í samræmi
við vilja kjósenda í heimaríkinu og
sums staðar er slíkt bundið í lög.
Þrátt fyrir þetta var mikil um-
ræða um það í síðustu forsetakosn-
ingum hvort einhverjir kjörmanna
myndu „svíkja lit“ og kjósa ekki í
samræmi við vilja kjósenda. Einn
kjörmaður ákvað að mæta ekki og
því var niðurstaða kosninganna á
þann veg að eitt atkvæði fyrir Gore
skilaði sér ekki.
Hægt að vinna með minnihluta
Ein afleiðing kosningakerfisins í
Bandaríkjunum er sú að í síðustu
kosningum tapaði Al Gore þrátt
fyrir að hafa fengið fleiri atkvæði á
landsvísu. Þá réð það úrslitum hvor
frambjóðendanna hlyti stuðning
kjörmanna í Flórída, sem þá hafði
25 kjörmenn. Nú hefur fólksfjölgun
í Flórída leitt til þess að kjörmenn
þar eru 27 talsins.
Núverandi landslag í banda-
rískri pólitík hefur verið ríkjandi
síðan í forsetakosningunum 1856.
Síðan þá hefur það aðeins tvisvar
gerst að frambjóðandi hafi unnið
kosningarnar þrátt fyrir að vera
með færri atkvæði en mótframbjóð-
andinn. Árið 1876 var repúblikaninn
Rutherford B. Hayes kjörinn forseti
þótt andstæðingur hans Samuel
Tilden hefði haft fleiri kjósendur á
bak við sig. Hið sama gerðist tólf
árum síðar þegar repúblikaninn
Benjamin Harrison sigraði Grover
Cleveland. Þá var Cleveland með
48,6 prósent atkvæða en Harrison
með 47,8 prósent. Þrátt fyrir þetta
var Harrison með 233 kjörmenn á
sínu bandi gegn 168 hjá Cleveland.
Bush sterkari ef jafnt verður
Yfirleitt hefur munurinn í kjör-
mannakosningunni verið umtals-
vert meiri en atkvæðamunur kjós-
enda segir til um. Það hefur hins
vegar aldrei gerst að staðan sé jöfn
meðal kjörmanna. Komi sú staða
upp tekur við nokkuð flókið ferli. Þá
velur neðri deild Bandaríkjaþings
forseta en í stað þess að hver maður
hafi eitt atkvæði hefur hvert ríki
eitt atkvæði. Þá sigrar sá frambjóð-
andi sem hefur fleiri þingmenn á
bak við sig í fámennari ríkjum; að
öllum líkindum Bush í þessu tilfelli
þar sem stuðningur hans er meiri í
strjálbýlli ríkjum en stuðningur við
Kerry er samþjappaðri á þéttbýlis-
svæðum. ■
ÞÓRLINDUR KJARTANSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
FORSETAKOSNINGAR Í
BANDARÍKJUNUM
JOHN KERRY
Stendur verr að vígi en Bush ef fjöldi kjör-
manna verður jafn eftir kosningarnar í
nóvember.
GEORGE W. BUSH
Þarf nauðsynlega á sigri að halda í Flórída
í haust – rétt eins og árið 2000. Þar er Jeb
bróðir hans ríkisstjóri og það gæti vegið
þungt.
SKÆRUR Í AFGANISTAN
Daglega steðja ógnir að erlendum hjálpar-
starfsmönnum í Afganistan og margir vilja
nú burt.
Harðir kosningaslagir í Bandaríkjunum
1876
Þeir Samuel Tilden og
Rutherford B. Hayes börðust
um embætti forseta. Tilden
hlaut fleiri atkvæði en Hayes
í almennum kosningum en
harðar deilur innan Banda-
ríkjanna ollu því að óvissa
skapaðist um hvernig kjör-
menn frá Oregon, Louisiana, Flórída og
Suður-Karólínu myndu greiða atkvæði.
Repúblikanar gerðu samning við fulltrúa
ríkjanna fjögurra og fengu þá til þess að
greiða frambjóðanda sínum atkvæði
gegn því að fjarlægja hermenn Banda-
ríkjanna frá Suðurríkjunum en ríkin
höfðu verið undir hersetu frá því í
þrælastríðinu.
1960
Talið er fullvíst að í kosning-
unum árið 1960 hafi stór-
fellt kosningasvindl átt sér
stað bæði af hálfu stuðn-
ingsmanna Kennedys og
Nixons. Frægt er að í
Chicago, þar sem borgarstjórinn studdi
Kennedy, virðist sem töluverður hópur
fólks hafi risið úr gröfinni til að kjósa
demókrata. Þrátt fyrir mikinn þrýsting
ákvað Nixon að una niðurstöðum kosn-
inganna enda sagði hann að mikilvæg-
ara væri að fólk héldi áfram trú á for-
setaembættinu en að hann sjálfur næði
kjöri.
2000
Kosningarnar snerust á
endanum einungis um
nokkur hundruð atkvæði í
Flórídaríki. Fjölmargar
ásakanir um að kjósend-
um hafi ekki verið hleypt
af kjörborði sökum húðlit-
ar hafa fengist ágætlega
staðfestar. Bróðir George W. Bush, Jeb,
er ríkisstjóri og harðlínustuðnings-
menn Bush gegndu flestum lykilstöð-
um í framkvæmd kosninganna. Al
Gore ákvað þrátt fyrir þetta að fylgja
fordæmi Nixons frá 1960 og sætta sig
við niðurstöðuna þegar hún loks
fékkst í Hæstarétti Bandaríkjanna.
RUTHER-
FORD B.
HAYES
GEORGE
W. BUSH
JOHN F.
KENNEDY