Fréttablaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 43
MÁNUDAGUR 23. ágúst 2004 19
ÍSLAND–RÚSSL. 30–34 (11–17)
Leikmenn Mörk/víti–Skot (stoðs.)
Ólafur Stefánsson 10/1-12/2 (9)
Róbert Gunnarsson 5-6 (0)
Sigfús Sigurðsson 3-3 (2)
Ásgeir Örn Hallgrímsson 3-4 (3)
Guðjón Valur Sigurðsson 3-8 (4)
Einar Örn Jónsson 2-3 (0)
Gylfi Gylfason 2-3 (0)
Rúnar Sigtryggsson 1-2 (0)
Jaliesky Garcia 1-5 (1)
Snorri Steinn Guðjónsson 0-1 (2)
Kristján Andrésson 0-1 (1)
Markverðir Varin/víti–Skot (hlutfall)
Guðmundur Hrafnkelssson 9-39/1 (23%)
Roland Valur Eradze 2/1-6/1 (33%)
TÖLFRÆÐIN ÍSLAND–SPÁNN
Hraðaupphlaupsmörk: 13–9 (Róbert 4,
Guðjón 3, Ólafur 2, Sigfús 2, Einar örn,
Gylfi).
Vítanýting (fiskuð): 1 af 2 (Sigfús og
ÓIafur).
Varin skot í vörn: 2–1 (Sigfús 2).
Tapaðir boltar: 22–18
Brottvísanir (í mín): 4–8
VONSVIKINN Guðmundur Guðmundsson
þurfti að horfa upp á fjöldamörg klaufaleg
mistök í leiknum gegn Rússum í gær.
Guðmundur Guðmundsson:
Stefnt að
níunda
sætinu
ÓLYMPÍULEIKAR Guðmundur Guð-
mundsson landsliðsþjálfari var
vonsvikinn með að ná ekki að
knýja fram sigur. „Við vorum
fyrst og fremst að færa þeim bolt-
ann á silfurfati í fyrri hálfleik.
Þeir nýttu sér það vel í hraðaupp-
hlaupunum. Það var fyrst og
fremst munurinn,“ segir Guð-
mundur. „Við erum fínir í seinni
hálfleik og hann vinnum við. Leik-
urinn hraður og mikið skorað.
Varnarleikurinn helst mjög góður
og við söxum á þá en missum þá
hins vegar strax frá okkur á ný
eftir að hafa unnið upp þrjú mörk.
Það var mjög einkennandi fyrir
leik okkar að mínu mati.“
Í takt við mótlætið
Leikskipulagi liðsins var
breytt í takt við mótlætið. „Við
vorum í erfiðri stöðu. Guðjón Val-
ur spilaði fyrir utan og þá var
Ólafur kominn á miðjuna. Þetta
var ákveðin þrautalending sem
gekk ágætlega. En samt er alltaf
erfitt að meta hvort það hefði
gengið betur frá byrjun. Breiddin
er því miður ekki meiri en þetta
hjá okkur.“
Guðmundur var ánægður með
baráttu sinna manna þrátt fyrir
tapið. „Ég get ekki kvartað neitt
yfir henni, því strákarnir voru til
fyrirmyndar hvað hana snertir.
Aðalmunurinn á liðunum var mis-
tökin sem við gerðum okkur seka
um þar sem þeir refsuðu okkur í
hvert sinn.“
Leikmenn landsliðsins eru
staðráðnir í að ljúka Ólympíuleik-
unum með reisn og ná níunda sæt-
inu. „Þetta eru vissulega von-
brigði fyrir okkur öll en við leggj-
um ekki árar í bát og stefnum á
níunda sætið,“ sagði Guðmundur
að lokum. ■
Númeri of litlir á Ólympíuleikunum
Íslenska handboltalandsliðið tapaði fyrir Rússum og leikur um níunda sætið.
ÓLYMPÍULEIKAR Íslenska handbolta-
landsliðið átti aldrei möguleika í
úrslitaleiknum við Rússa um sæti
í átta liða úrslitum Ólympíu-
leikanna. Ísland tapaði leiknum
reyndar aðeins með fjórum
mörkum en líkt og oft á áður
misstu íslensku strákarnir mátt-
inn andspænis rússneska birn-
inum.
Ólafur Stefánsson átti stór-
kostlegan leik en það var ekki
nóg, stuðlaði aðeins að því að
íslenska liðið tapaði leiknum
bara með fjórum mörkum en
ekki með átta mörkum eins og
munurinn var á tímabili. Ólafur
skoraði 10 mörk úr aðeins 12
skotum og átti að auki 9 stoð-
sendingar á félaga sína.
Íslenska liðið byrjaði ágætlega
en eftir tíu mínútna leik hrundi
leikur liðsins og Rússar skoruðu
sex mörk í röð og voru stungnir
af. Íslenska liðið tapaði þá
boltanum 9 sinnum á aðeins
þrettán mínútna kafla.
Íslenska liðið náði að bjarga
andlitinu í lokin en það var þá
löngu komið í ljós að liðið er að
minnsta kosti einu númeri of lítið
til þess að eiga raunverulegan
möguleika í bestu handbolta-
þjóðir heims.
Íslenska landsliðið á einn leik
eftir í keppninni - spilar gegn
Brasilíumönnum um níunda sætið
klukkan 8.30 í fyrramálið.
STÓRLEIKUR ÓLAFS EKKI NÓG Ólafur Stefánsson gerði sitt gegn Rússum en það var
ekki nóg að hann skoraði 10 mörk og átti 9 stoðsendingar.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/T
ei
tu
r
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/T
ei
tu
r