Fréttablaðið - 23.08.2004, Page 46

Fréttablaðið - 23.08.2004, Page 46
22 23. ágúst 2004 MÁNUDAGUR LANDSBANKADEILD KARLA [ STAÐAN ] FÓTBOLTI FH og ÍA skildu jöfn, 2-2, í Landsbankadeild karla í knatt- spyrnu á Kaplakrikavelli í gær. Leikurinn var í það heila fínasta skemmtun og sáust ýmiss konar tilþrif á báða bóga. Heimamenn voru betri framan af og áttu til að mynda skot í slá en þó var nokkuð greinilegt að einhver skjálfti var í þeim. Hvort einhver titlapressa er farin að gera vart við sig skal ósagt látið en liðið var ekki alveg að finna taktinn. Skagamenn voru frekar til baka og beittu stórhættulegum skyndi- sóknum og þeir skoruðu bæði mörk sín eftir slíkar sóknir. Eftir fyrra mark Skagamanna voru FH- ingar heillum horfnir lengi vel en þeir gáfust þó aldrei upp og jöfn- uðu metin og stuttu eftir það var Stefáni Þór Þórðarsyni vikið af velli með tvö gul spjöld, tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok. FH-ingar voru skeinuhættir á lokakaflanum en tókst þó ekki að ná afgerandi tökum né sérstakri pressu. Jafntefli því staðreynd og þau úrslit líklega sanngjörn. Skelfileg dómgæsla Eini skugginn á þessum leik var hörmuleg frammistaða dómarans, Jóhannesar Valgeirssonar, sem tókst næstum því að eyðileggja leikinn með glórulausri dómgæslu og langt síðan annað eins hefur sést. Hann var þó sem betur fer alveg jafn vondur við bæði lið. Stefán Þór Þórðarson var ósáttur eftir leik: „Þetta voru bara töpuð tvö stig. Við mættum afslappaðir til leiks og töldum okkur hafa allt að vinna. Við stöndum síðan ekki undir því að vera tveimur mörkum yfir. Enn og aftur klárum við ekki dæmið þegar allar forsendur eru til þess og það er verulega svekkj- andi.“ En hvað fannst Stefáni um gulu spjöldin tvö sem hann fékk með nokkurra sekúndna millibili? „Það er hlutur sem þessi maður verður að eiga við sig sjálfur. Hann segir eftir hálfa mínútu hérna yfir allan völlinn að hann ætli að reka mig út af og þegar menn koma þannig stemmdir til leiks getur þetta ekki farið á nema einn veg. Ég sagði við hann að horfa á hendurnar, og það er ljóst að ef þú ætlar að hóta að reka menn út af verða fáir eftir á vellin- um eftir tíu mínútur.“ Ólafur Þórðarson, þjálfari Skagamanna, átti afmæli í gær, orðinn 39 ára gamall, og hann hefði gjarnan viljað fá sigur í afmælis- gjöf: „Það er drullusárt að missa niður svona forskot, en svona er þetta bara. Við gerum tvenn mis- tök sem kosta okkur tvö mörk. Við vorum að spila mjög vel stóran hluta af leiknum, eiginlega alveg þangað til við missum Stebba út af, vorum samt búnir að missa leikinn niður í jafntefli þá. Það gerist fyrst og fremst vegna einstaklings- mistaka, ekki það að menn séu ekki að leggja sig alla fram, heldur var þetta bara ólán. Mér fannst við vera betri aðilinn að þessu sinni, langt fram eftir leik.“ Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH-inga, var nokkuð sáttur eftir leik: „Við vorum auðvitað komnir í mikil vandræði og úr því sem komið var held ég að þessi úrslit hafi verið nokkuð sanngjörn. Samt sem áður hefðum við getað stolið sigrinum undir lokin og þar að auki áttum við skot í slá og stöng, en á móti kemur að auð- vitað áttu þeir góð færi líka.“ Heimir var ekki alveg á því að hans menn hefðu verið tauga- strekktir: „Þrátt fyrir að við höfum ekki spilað vel í fyrri hálfleik vor- um við samt að reyna að fara upp kantana og vorum að fá fyrirgjafir, það vantaði bara græðgi inni í teignum. Við lékum síðan mun betur í seinni hálfleik. Við þurfum þó að laga ýmislegt fyrir næsta deildarleik sem er í Grindavík, ef við ætlum að ná sigri þar, það er al- veg ljóst.“ sms@frettabladid.is 0–1 Ian Jeffs 9. 0–2 Gunnar Heiðar Þorvaldsson 31. 1–2 Hörður Sveinsson 52. 1–3 Einar Þór Daníelsson 62. 1–4 Ian Jeffs 73. 2–4 Guðmundur Steinarsson 89. 2–5 Bjarnólfur Lárusson 90. DÓMARINN Kristinn Jakobsson góður BESTUR Á VELLINUM Ian Jeffs ÍBV TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 9–10 (6–5) Horn 6–6 Aukaspyrnur fengnar 18–17 Rangstöður 3–2 MJÖG GÓÐIR Ian Jeffs ÍBV Andri Ólafsson ÍBV Birkir Kristinsson ÍBV GÓÐIR Einar Hlöðver Sigurðsson ÍBV Einar Þór Daníelsson ÍBV Gunnar Heiðar Þorvaldsson ÍBV Mark Schulte ÍBV Páll Þorvaldur Hjarðar ÍBV 2-5 KEFLAVÍK ÍBV 1–0 Viktor Bjarki Arnarsson 21. 1–1 Helgi Valur Daníelsson 45. 1–2 Björgólfur Takefusa 77. 1–3 Þorbjörn Atli Sveinsson 90. DÓMARINN Gylfi Orrason góður BESTUR Á VELLINUM Finnur Kolbeinsson Fylki TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 11–9 (6–4) Horn 3–2 Aukaspyrnur fengnar 17–20 Rangstöður 3–2 MJÖG GÓÐIR Finnur Kolbeinsson Fylki Viktor Bjarki Arnarsson Víkingi GÓÐIR Steinþór Gíslason Víkingi Kári Árnason Víkingi Richard Keogh Víkingi Valur Fannar Gíslason Fylki Helgi Valur Daníelsson Fylki Gunnar Þór Pétursson Fylki Sævar Þór Gíslason Fylki Björgólfur Takefusa Fylki Þorbjörn Atli Sveinsson Fylki 1-3 VÍKINGUR FYLKIR LEIKIR GÆRDAGSINS STEFÁN ÞÓR FÉKK RAUTT SPJALD Stefán Þór Þórðarson lagði upp bæði mörk Skagamanna en var síðan rekinn út af. FH-ingar björguðu stiginu Skagamenn misstu einu sinni enn niður góða forystu í Kaplakrikanum í gær, komust í 0–2 en FH-ingar jöfnuðu leikinn á lokakaflanum. FH 15 7 7 1 23–14 28 Fylkir 15 7 5 3 22–15 26 ÍBV 15 7 4 4 28–17 25 ÍA 15 5 7 3 20–16 22 Keflavík 15 6 3 6 21–26 21 KR 14 4 7 3 16–14 19 Víkingur 15 4 3 8 15–20 15 Grindavík 14 3 6 5 14–19 15 Fram 15 3 5 7 16–18 14 KA 15 3 3 9 10–26 12 MARKAHÆSTIR Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV 12 Grétar Hjartarson, Grindavík 8 Þórarinn Kristjánsson, Keflavík 8 Ríkharður Daðason, Fram 7 BJÖRGÓLFUR Á SKOTSKÓNUM Björgólfur Takefusa skoraði eitt af þremur mörkum Fylkis gegn Víkingum á Víkingsvellinum í gær. Landsbankadeild karla í knattspyrnu: Fylkismenn á flugi FÓTBOLTI Fylkismenn unnu sinn annan leik í röð í Landsbankadeild karla þegar þeir sóttu þrjú stig í greipar Víkinga. Fylkismenn minnkuðu þar með forskot FH-inga í tvö stig á toppnum og hafa sýnt allt annan og betri leik að undanförnu. Víkingar byrjuðu betur og skor- uðu fyrsta markið um miðjan fyrri hálfleik þegar Viktor Bjarki Arnarsson skoraði laglegt mark og kom Víkingum verðskuldað yfir. Víkingar gáfu eftir á lokamínútum og Helgi Valur Daníelsson jafnaði rétt áður en flautað var til hálfleiks. Í seinni hálfleik voru Fylkismenn sterkari aðilinn en það var ekki fyrr en töluvert var liðið á hálfleikinn að þeir komust yfir og bættu síðan öðru marki við. „Við þurftum að fara í nafla- skoðun. Þegar allir hafa verið að tala okkur niður höfum við trúað því hvað við getum. Við erum með góða leikmenn, góðan þjálfara og góða stjórn og það hefur hjálpað okkur í gegnum erfiðleikana,“ sagði Þórhallur Dan Jóhannsson, leikmaður Fylkis, eftir sigurinn á Víkingi í gær. ■ Sjö marka leikur í Keflavík í Landsabankadeild karla í knattspyrnu: Eyjamenn gefa ekkert eftir FÓTBOLTI Eyjamenn sigruðu Kefl- víkinga 2-5 í Reykjanesbæ í gær og gefa ekkert í toppbaráttu Landsbankadeildar karla. Eyja- menn eru eftir leikinn í þriðja sæti, þremur stigum á eftir topp- liði FH-inga. Sigurinn var sann- gjarn og gestirnir úr Eyjum yfir- spiluðu mótherja sína lungann úr leiknum. Það var Ian Jeffs sem kom Eyjamönnum á bragðið strax á 9. mínútu eftir góðan undirbúning Gunnars Heiðars Þorvaldssonar. Keflvíkingar sóttu nokkuð eftir markið og voru í tvígang nálægt því að jafna leikinn. Fyrst þegar Stefán Gíslason skallaði að marki eftir eina af fjölmörgu horn- spyrnum Scott Ramsay, en Birkir Kristinsson varði glæsilega á marklínunni. Ingvi Rafn átti síð- an skot eftir aðra hornspyrnu en Ian Jeffs hreinsaði á marklínu. Gunnar Heiðar skoraði annað mark Eyjamanna á 31. mínútu eftir góða sendingu Andra Ólafs- sonar. Keflvíkingar byrjuðu síðari hálfleik af krafti og strax eftir sjö mínútna leik minnkaði Hörð- ur Sveinsson muninn með stór- glæsilegu marki. Hann hamraði boltann viðstöðulaust upp í hægra markhornið, óverjandi fyrir Birki. Einar Þór Daníelsson sá þó um að slökkva vonarneysta Keflvíkinga þegar hann kom Eyjamönnum í 1-3 og eftir það yfirspiluðu gestirnir baráttu- lausa Keflvíkinga. Ian Jeffs bætti við öðru marki sínu í leiknum og kom ÍBV í 1-4, Guðmundur Steinarsson minnk- aði muninn beint úr hornspyrnu en Bjarnólfur Lárusson skoraði síðan sjöunda og síðasta mark leiksins beint úr aukaspyrnu á lokamínútunni. Spilum góðan sóknarbolta „Þetta var frábær sigur. Við komust í 2-0 og vorum í góðum gír en síðan hleyptum við þeim aðeins inn í leikinn með 1-2 og þeir voru mjög grimmir í upphafi síðari hálfleiks. En þegar við gerðum þriðja markið þá var þetta ekki spurning, þá var leik- urinn búinn“, sagði Einar Þór Daníelsson, leikmaður ÍBV. „Við erum að spila góðan sókn- arbolta eins og við sýndum í dag og búnir að skora flest mörkin í deildinni. Það er engin tilviljun að við erum enn með í toppbar- áttunni og mér líst vel á fram- haldið, þetta verður barátta fram í síðasta leik.“ ■ 0–1 Haraldur Ingólfsson 27 0–2 Guðjón Heiðar Sveinsson 58. 1–2 Allan Borgvardt 65. 2–2 Jónas Grani Garðarsson 73. DÓMARINN Jóhannes Valgeirsson Skelfilegur BESTUR Á VELLINUM Gunnlaugur Jónsson ÍA TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 19–17 (8–10) Horn 5–2 Aukaspyrnur fengnar 15–12 Rangstöður 2–0 MJÖG GÓÐIR Gunnlaugur Jónsson ÍA GÓÐIR Allan Borgvardt FH Baldur Bett FH Guðmundur Sævarsson FH Tommy Nielsen FH Guðjón Heiðar Sveinsson ÍA Stefán Þór Þórðarson ÍA Haraldur Ingólfsson ÍA Julian Johnson ÍA 2-2 FH ÍA Fr ét ta bl að ið /R ób er t Fr ét ta bl að ið /R ób er t

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.