Fréttablaðið - 23.08.2004, Síða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Sólríkur dagur
í Flatey
Auðvitað er sól á Breiðafirði: Enn einnhimneskur sunnudagur hjá heppnustu
þjóð í heimi. Hér í Flatey er að ljúka skák-
móti þar sem krakkarnir fóru á kostum.
Gamla samkomuhúsið lifnar af ungum
hlátrasköllum, svo maður gæti haldið að
hér í eyjunni væri ennþá blómleg byggð
og gróskumikið mannlíf. En nú er Flatey
næstum komin í eyði.
EN PERLA Breiðafjarðar á örugglega
bjarta framtíð, rétt eins og margar
byggðir á Íslandi, sem farið hafa hall-
oka síðustu áratugi. Gleymum því ekki
að einu sinni var Ísland hér um bil að
fara í eyði. Þá ræddu danskir valds-
menn í fullri alvöru hvort ekki væri rétt
að flytja hina íslensku þegna á Jótlands-
heiðar, og bjarga þeim þannig undan því
hlutskipti að eiga heima á Íslandi.
ÁRIÐ 1262 voru íslenskir höfðingjar
orðnir svo úrvinda af innbyrðis átökum
að þeir seldu æðstu stjórn landsins til
Noregs. Þetta var hörmulegasta ákvörð-
un Íslandssögunnar, tuttugu kynslóðir
forfeðra okkar og mæðra fæddust og
dóu í landi sem ekki var frjálst. Höfð-
ingjar Íslands á 13. öld lögðu hlekki á
kynslóðir framtíðarinnar. Það liðu næst-
um sjö hundruð ár áður en Íslendingar
losnuðu undan erlendum yfirráðum.
MESTA BLÓMASKEIÐ Íslandssög-
unnar hefur verið síðustu 60 árin, eftir
að Ísland öðlaðist sjálfstæði. Velmegun
og menntun fylgdu yfirráðum Íslend-
inga yfir eigin málum. Ísland telst nú
eitt auðugasta land í heimi og við erum
laus við flest þau innanmein sem eru að
éta Evrópu gömlu upp.
ÍSLENDINGUM hefur einfaldlega
gengið vel, í öllum meginatriðum, að fóta
sig í veröldinni á síðustu áratugum. Það er
tímabært að við lærum að meta sjálfstæð-
ið og gildi þess, en eyðum ekki tímanum í
að karpa um hvort við eigum að selja
sjálfstæði landsins til Brussel, í von um að
verða ennþá ríkari en við erum.
VÆRI EKKI þjóðráð að láta af söngn-
um um að Íslendingar geti ekki staðið á
eigin fótum í heimi framtíðarinnar?
Evrópusambandið mun á næstu árum
breytast í einhverskonar Bandaríki
Evrópu og það er satt að segja ekki
lokkandi tilhugsun fyrir börn okkar og
barnabörn. Og það er líka nöturleg
kveðja til þeirra sem áður byggðu þetta
land og sem þráðu sjálfstæði og frelsi.
Unga kynslóðin á Íslandi á annað og
betra skilið en að við gefumst upp og
gerumst deild í mesta möppudýraveldi
mannkynssögunnar. ■
HRAFNS JÖKULSSONAR
BAKÞANKAR