Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 2
2 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Stundakennarar að störfum víða um land: Kennsla í skólum Ísafjarðarbæjar VERKFALL Víða í grunnskólum landsins eru stundakennarar við störf. Kennt er til dæmis í öllum grunnskólum sveitarfélags Ísa- fjarðarbæjar nema á Flateyri. Magnús S. Jónsson, skólastjóri á Suðureyri, segir einn stunda- kennara við skólann. Hann kenni elstu bekkjunum tungumál. Nem- endur níunda og tíunda bekk séu tíu tíma í skólanum á viku. Hinir eldri bekkirnir þrjá. Á höfuðborgarsvæðinu sinna stundarkennarar einnig skóla- starfi. Hanna S. Hjartardóttir, formaður Skólastjórafélags Ís- lands og skólastjóri í Snælands- skóla í Kópavogi, segir þrjá starfa við skólann. Þeir kenni valfög fyr- ir nemendur níunda og tíunda bekkjar: „Hjá mér starfa leikari, kvikmyndagerðarmaður og graf- ík-tölvumaður. Hver um sig er að kenna tvo til fjóra tíma á viku.“ Hanna segir nemendurna hafa mætt ótrúlega vel: „Enda spenn- andi áfangar og fögin val sem nemendurnir hafa sérstakan áhuga á. Því er ekki skrítið að þau mæti enda fátt annað um að vera.“ - gag Kristján kom án lausnar í bæinn Bæjarstjóri Akureyrar kom til Reykjavíkur til að reyna að losa um patt- stöðu samningaviðræðna kennara og sveitarfélaga. Hann kynnti menntamálaráðherra hugmyndirnar sem segir þær koma of seint. VERKFALL „Ég er ekkert á leið í bæ- inn með lausnina á verkfalli kenn- ara,“ sagði Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri Akureyrar. Hann kom í gær til Reykjavíkur með hug- myndir að einfölduðum kjara- samningi kennara til umræðu samninganefnda kennara og sveitarfélaga í von um að losa um pattstöðuna. Kristján sat fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra og kynnti meðal ann- ars fyrir henni h u g m y n d i r n a r sem eru hans og forystu kennara á Akureyri. Þorgerður seg- ir jákvætt að sveitastjórnar- menn leiti úr- lausnar á kjara- deilunni. Hug- myndirnar komi þó heldur seint fram í umræðuna. Þær mætti nýta í framtíðarviðræð- um um laun kenn- ara. Leyfa verði samninganefnd- unum að leysa úr kennaraverk- fallinu: „Ég held að við verðum að bíða og sjá hvað gerist í samningavið- ræðunum og hvort miðlunartil- laga líti dagsins ljós.“ Þorgerður segir það ríkissátta- semjara að ákveða hvort sú leið verði farin. Hún átti sig ekki á hvort hann kjósi það. Þrátt fyrir hugmyndirnar lýsir Kristján yfir fullum stuðningi við launanefnd sveitarfélaganna. Ekki sé á stefnuskránni að Akur- eyringar gangi til sérsamninga. Tryggvi Heimisson formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra lýsir einnig fullum stuðn- ingi kennara við samninganefnd þeirra. Viðræður við Kristján hafi verið um óformlegar hugmyndir: „Spjallið var nauðsynlegt til að halda starfsandanum hreinum þegar verfallinu lýkur þannig að menn snúi ekki gramir aftur til vinnu.“ Kristján vildi ekki tjá sig um inntak hugmyndanna og hvað þær þýði í krónum talið. Þær séu þó engin ný sannindi og hafi verið ræddar víða um land. Tími sé kominn fyrir dýpri umræðu en verið hafi: „Það vill svo til að kennarasam- félagið fyrir norðan er í meginat- riðum sammála hugmyndunum; eða svona í grófum dráttum. Það er ákveðinn samhljómur þarna á milli.“ gag@frettabladid.is ÍSRAEL,AP Ísraelska þingið sam- þykkti í gærkvöld áætlun Ariels Sharon forsætisráðherra um brottflutning ísraelskra land- nema frá Gaza og fjórum svæð- um á Vesturbakkanum. Auk land- nemanna draga Ísraelsmenn her- lið, sem verndað hefur landnema- byggðirnar á þessum svæðum, til baka. Áætlunin markar markar þáttaskil í deilu Ísraelsmanna og Palestínumanna því aldrei áður hafa ísraelsk stjórnvöld sam- þykkt að flytja landnema frá Gaza eða Vesturbakkanum. Ísra- elar munu áfram hafa eftirlit með landamærum Gaza og lofthelgi. Brottflutningur landnemanna og herliðsins verður framkvæmdur í skrefum og mun ríkisstjórnin þurfa að samþykkja hvert ein- stakt tilfelli fyrir sig. Áætlunin var samþykkt með 67 atkvæðum gegn 45 eftir tvo stormasama daga í þinginu. Shar- on hafði hótað að reka þá ráð- herra Likud-bandalagsins sem ekki myndu greiða atkvæði með áætluninni. Þeir gerðu það allir en áður Sharon hafði rekið tvo þeirra. Það voru friðarsinnaðir stjórnarandstöðuflokkar sem tryggðu áætluninni framgöngu með því að greiða atkvæði með henni. Fjöldi fólks kom saman fyrir utan þinghúsið, mest landnemar, til að mótmæla áætlun stjórn- valda. ■ Stal 25 bílum á höfuðborgarsvæðinu: Bílþjófur fangelsaður LÖGREGLA Maður fæddur árið 1982 var handtekinn í fyrra- kvöld í tengslum við rannsókn fjölda bílþjófnaða sem lögregl- an í Reykjavík og lögreglan í Kópavogi unnu saman að. Fyrir liggur að maðurinn er búinn að stela 25 bílum undan- farnar vikur og mánuði að sögn Harðar Jóhannessonar, yfirlög- regluþjóns í Reykjavík. Maður- inn hefur áður komið við sögu lögreglu en hann fór í afplánun í gær því hann átti eftir að sitja af sér dóm. Hörður segir stóran hluta af bílþjófnuðum að undan- förnu hafa verið upplýstan með handtöku mannsins. Maðurinn virðist hafa notað bílana til að komast á milli staða og til að hafa til afnota í einhvern tíma en skildi þá síðan eftir hér og þar. Haukur Ásmundsson sagði í viðtali við Fréttablaðið í vikunni að Nissan og Subaru væru búnir að vera vinsælir meðal bílþjófa í nokkurn tíma. ■,,Ég held að við verð- um að bíða og sjá hvað gerist í samninga- viðræðun- um og hvort miðl- unartillaga líti dagsins ljós. Ég hef lífsviðurværi mitt af því að skrifa um spákaupmennsku, ekki að stunda hana. Þórður Pálsson er yfirmaður greiningardeildar KB banka. Metlækkun hefur orðið á Úrvalsvísitölunni undanfarna tvo daga. SPURNING DAGSINS Þórður, ertu búinn að selja? FUNDAÐ Í KARPHÚSINU Samninganefndir sjómanna og útvegs- manna hafa fundað stíft í húsi ríkissátta- semjara. Hægt miðar í viðræðunum en ekki þó þannig að þörf sé á verkfallsboðun. Sjómenn og útvegsmenn: Hægt miðar í samningsátt KJARAMÁL Verkfall sjómanna er ekki í bígerð á meðan gangur er í við- ræðum við útvegsmenn að sögn Sævars Gunnarssonar, formanns Sjómannasambands Íslands. Fundarhöld sjómanna og útvegs- manna um kjarasamninga hafa ver- ið stíf í Karphúsinu að undanförnu. Sævar vill ekki tjá sig um efnisat- riði viðræðnanna en þeim miði hægt. Sævar segir Sólbakssamninginn ekki hafa verið uppi á borðum í samningaviðræðunum. Ekki sé tek- ið mið af efnisatriðum hans. - gag SKEMMTUN DÁLEIÐANDI MÁTTUR IN N & D Ý R Ð IN FULL AF FJÖRI OG SPENNU BÓK SEM MAÐUR LEGGUR EKKI FRÁ SÉR FYRR EN AÐ LESTRI LOKNUM NÝ BÓK UM STELPUNA MEÐ DÁLEIÐSLUHÆFILEIKANA - Kirkus Review . Undanþágunefnd: Fundartími óákveðinn VERKFALL Ekki hefur verið ákveðið hvenær undanþágunefnd kennara og sveitarfélaga fundar. Undanþágunefnd átti síðast fund á föstudag. Um 30 kennarar fengu þá und- anþágu til að kenna í Lækjarskóla í Hafnarfirði, Hjallaskóla í Kópa- vogi og Fellaskóla í Reykjavík. Tvær umsóknir liggja fyrir samkvæmt Þórörnu Jónsdóttur fulltrúa kennara. Sigurður Óli Kol- beinsson fulltrúi sveitarfélaganna telur einnig að fara verði yfir um- sóknir síðasta fundar sem hafi ver- ið hafnað því þær hafi ekki fengið viðhlítandi umfjöllun. - gag KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON „Ég er að horfa til þess að grunnskólakennari ráði sig til grunnskólans sem venjulegur launamaður og hafi ákveðna vinnuskyldu í hverri viku. Þegar hún er uppfyllt og einhver verk standa útundan og hann vill vinna verði greitt yfirvinna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI FLATEYRI Eini bærinn innan sveitarfélagsins Ísafjarðarbæjar þar sem stundakennarar eru engir. Kennsla liggur því algerlega niðri í verkfalli kennara öfugt við það sem gerist í öðrum bæj- um sveitarfélagsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Þáttaskil í deilu Ísraela og Palestínumanna: Brottflutningur land- nema samþykktur ANDSTÆÐINGAR HEILSAST Ariel Sharon forsætisráðherra tekur í höndina á Shimon Perez, formanni Verkalýðsflokks- ins, eftir að áætlunin var samþykkt. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P Ættingjar forsetans: Ekki kjósa Bush frænda BOSTON, AP Sjö fjarskyldir ættingj- ar George W. Bush Bandaríkjafor- seta hafa opnað vefsíðu ( www.bushrelativesforkerry.com) þar sem kjósendur eru beðnir um að kjósa ekki frænda þeirra. Ættingjarnir, sem segjast aldrei hafa hitt Bush, styðja allir John Kerry, forsetaframbjóðanda demókrata. Á heimasíðunni segir að nauðsynlegt sé að lækna Banda- ríkin af þeim veikindum sem þau hafi átt við að stríða síðan Bush tók við völdum árið 2000. Ættingjarnir eru barnabörn Mary Bush House. Hún var systir Prescott Bush, sem var faðir og afi Bush-feðganna. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.