Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 115 stk. Keypt & selt 21 stk. Þjónusta 37 stk. Heilsa 11 stk. Skólar & námskeið 2 stk. Heimilið 17 stk. Tómstundir & ferðir 6 stk. Húsnæði 27 stk. Atvinna 25 stk. Tilkynningar 4 stk. Ræktar tengsl við Vesturheim BLS. 3 Góðan dag! Í dag er miðvikudagurinn 27. október, 301. dagur ársins 2004. Reykjavík 8.56 13.12 17.26 Akureyri 8.49 12.56 17.03 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag „Konur þekkja að það að vera kynvera snýst ekki bara um kynlífsathafnir eða hvað kynfærin aðhafast hverju sinni, heldur hvernig hjartað hefur það,“ segir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, kynlífsfræðing- ur, sem verður með námskeið í næsta mán- uði sem ber heitið Kynverund kvenna. Námskeiðið er fyrir konur sem vilja styrkja og læra um eigin kynverund út frá eigin forsendum og reynslu. „Við munum meðal annars fjalla um sjálfstraust í nánum samböndum, einkenni góðra parsambanda, kynsvörun kvenna og eðli og mismunandi birtingu kynlöngunar hjá kynjunum. Þetta snýst um að styrkja konur í því að hafa skoðun á því hvernig þær vilja haga sínu kynlífi, algjörlega á eigin forsendum. Það er alltof algengt að konum sé sagt hvernig þær eiga að upplifa kynlífið, eða þær lesi um það óraunhæfar lýsingar í bók- um og blöðum og verði þar af leiðandi óör- uggar og hræddar um að þær séu að gera eitthvað rangt. Námskeiðið verður í formi stuttra fyrir- lestra, við verðum með verkefni í litlum hópum og umræður. Áherslan er á afslapp- að andrúmsloft, trúnað og gagnkvæmt traust og takmarkaður fjöldi er á hverju námskeiði,“ segir Jóna Ingibjörg. Námskeiðið, sem hefst 20. nóvember, er tveir laugardagar, samtals 12 kennslu- stundir, og hægt er að skrá sig eða fá nán- ari upplýsingar með því að senda tölvupóst á namskeid@jonaingibjorg.is eða hringja í síma 690-3569 Á vef Jónu Ingibjargar jonaingibjorg.is er boðið upp á nýja þjónustu sem á sér ekki hliðstæðu hérlendis. „Fólk getur sent fyrirspurn í tölvupósti á netrad@jonaingib- jorg.is og fengið skriflegt svar frá mér innan viku. Þá er á sama vef hægt að panta símatíma fyrir kynlífsráðgjöf.“ ■ Námskeið um kynverund kvenna: Snýst líka um hjartað nam@frettabladid.is Kertagerð er eldgömul iðja á Ís- landi og nú í skammdeginu eru ýmsir sem vilja endurvekja hana. Helga Björg Jónasardóttir mynd- listarmaður í fyrirtækinu Vaxandi er með grunnnámskeið í kerta- gerð og kennir þar hefðbundn- ar aðferðir, bæði að steypa í mót og dýfa kveiknum endurtekið í vax. Nám- skeiðin eru fjögurra tíma löng og að þeim liðnum segir Helga fólk vera orð- ið sjálfbjarga og geta haldið áfram heima. Hún býður líka upp á sérstök kerta- kvöld fyrir saumaklúbba eða aðra hópa sem langar að læra þetta göfuga handverk. Pantanir og upplýsingar eru í síma 354 6062 og 898 6202. Nemendur í náttúrufræði í Framhaldsskóla Austur-Skafta- fellssýslu á Höfn hafa að undan- förnu verið að læra um landmót- un vegna jökla og vatns. Á suð- austurhorninu sést vel hvernig jöklarnir unnu sitt verk fyrir 10.000 árum og því eru vett- vangsferðir út í náttúruna partur af náminu hjá FAS. Gigtarfélag Ís- lands efnir til þriggja kvölda haustnámskeiðs fyrir þá sem greinst hafa með vefjagigt. Fyrsti tíminn er í kvöld og hefst kl. 19.30. Þar verða læknar með fræðslu og á hann mega aðstandendur koma. Síðan skiptist hópurinn í tvennt á næstu vikum og verður kennt bæði á miðvikudags- og fimmtudags- kvöldum þar sem sjúkraþjálfari, félagsfræðingur og iðjuþjálfi fara yfir meðferð og þjálfun, aðlögun að breyttum aðstæðum og ýmsa tilfinningalega og félagslega þætti. Forritunar- keppni fram- halds- skólanna 2004 verður haldin helgina 29-30. október í Háskólanum í Reykjavík. Tuttugu hafa skráð sig til leiks. Námskeiðið er fyrir konur sem vilja styrkja eigin kynverund út frá eigin forsendum og reynslu. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu Í NÁMI FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Það eina jákvæða í umsögninni minni var: „Hann ratar oftast heim til sín.“ PhotoReading er lestrartækni sem kennd er í þrjátíu löndum um allan heim.Þessi tækni gerir námsmönnum kleift að innbyrða mikið lesefni á skömmum tíma og vinna úr því á markvissan hátt. Með PhotoReading eiga allir að geta þrefaldað lestrarhraða sinn nær strax og einbeiting og skilningur á efni eykst. Einnig er auðveldara að muna aðalatriði efnisins. Með aðferðum PhotoReading nær undirmeðvitundin að skynja mun meiri texta en þú skynjar almennt við hefðbund- inn lestur. Virkni beggja heila- hvela er nýtt samtímis en við það nemur heilinn um 10.000.000 bita upplýsinga á sekúndu í stað um 40 bita við hefðbundinn lestur. Næsta námskeið í PhotoRead- ing verður haldið í nóvember. Frekari upplýsingar um nám- skeiðið er að finna á vefsíð- unni photoreading.is. Hægt er að skrá sig á námskeiðið í tölvupósti á jona@nams- taekni.is og í síma 899 4023. Námskeið í PhotoReading lestrartækni: Lestrarhraði þrefaldast og skilningur eykst PhotoReading lestrartæknin á að geta þrefaldað lestrarhraða allra. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.