Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 62
■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Um 7%. Sölvi Sveinsson. Boston Red Sox og St. Louis Cardinals. 38 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Drauminn um að verða lögga þeg- ar hún yrði stór geymir hún enn. Tók inntökupróf í Lögregluskól- ann í fyrra og náði. Var bara ekki valin í skólann. Ætlar að reyna aftur seinna, þegar hún hefur fengið nóg af starfi sínu sem rútu- og vörubílstjóri á Snæfellsnesinu. „Það eru margir mjög ánægðir með hvernig ég keyri og líður vel í bíl hjá mér. Karlmenn agnúast samt stundum þegar þeir koma upp í bílana og eru með leiðinleg- ar athugasemdir meðan á akstrin- um stendur; segja mig eins og fjórtán ára stelpu sem ekki ráði við bílinn. Á leiðarenda eru þeir svo oftast ánægðir með ferðina,“ segir Ragnheiður Kristín Grétars- dóttir, 21 árs Hólmari sem keyrir skólabíl frá Stykkishólmi yfir í nýja fjölbrautaskólann í Grundar- firði og áætlunarferðir hjá Sæ- mundi í Borgarnesi. Segist hafa haft óbilandi áhuga á bílum, vél- um og tækjum síðan hún man eft- ir sér og snattaðist í kringum vél- ar með pabba sínum sem þá var vélavörður hjá Rarik í Hólminum. „Ég var byrjuð að safna mér fyrir mótorhjólum strax á unga aldri og keypti mér fyrstu skellnöðruna þegar ég var þrett- án. Skipti svo yfir í mótorkross- hjól þegar ég varð sautján og hef átt nokkur mótorhjól í gegnum tíðina,“ segir þessi strákastelpa sem vildi fyrst og fremst vera vinur strákanna í uppvextinum, enda áhugamálin svipuð; bílar, tæki og tól. Þegar hún er spurð um mesta kost starfsins segist hún hafa yndi af akstri stórra bíla og eins að hitta fólkið sem kemur upp í rút- urnar, þótt vitaskuld séu samræð- ur við bílstjóra í akstri með öllu bannaðar. „Það er oft stuð í skóla- bílnum en nemendurnir æði þreyttir enda leiðin milli Stykkis- hólms og Grundarfjarðar fremur leiðinleg. Ég þarf að setja í gang klukkan sjö á morgnana og er komin heim um átta á kvöldin, þegar ég er búin í áætluninni. Í frítímum sinni ég svo áhugamál- inu, sem eru bílar. Ég á tvo góða. Skoda Octaviu Turbo og Ford Econoline ‘87-árgerð á „38 tomm- um. Ég er að gera hann upp sjálf, en ég er liðtæk í bílaviðgerðum og nýbúin að skipta um stýrisendana. Fæddist víst með þessa kunnáttu í genunum,“ segir Ragnheiður Kristín og skellir upp úr. Nefnir að hún sé aldrei hrædd undir stýri. „Að keyra rútu eða vörubíl er mjög ólíkt því að keyra fólks- bíl, en alls ekki eins flókið og það lítur út fyrir. Mestu skiptir að vera vakandi fyrir því sem maður er að gera og keyra með gát. Þá á maður örugglega góða heim- komu.“ thordis@frettabladid.is – hefur þú séð DV í dag? Handrukkara- skelfir barinn og gefið raflost Hollvinir hins gullna jafnvægis eru að leita að fjölskylduvænustu fyrirtækjum landsins, bæði úr einkageiranum og opinbera geir- anum. Um miðjan nóvember hyggjast þeir veita tveimur fyrir- tækjum viðurkenninguna Lóð á vogarskálarnar. Þau biðja fólk um að senda tilnefningar á vefsvæði sitt, sem er hjg.is. „Í nóvember á síðasta ári veitt- um við í fyrsta sinn viðurkenning- una Lóð á vogarskálarnar, og þá kom hún í hlut Sjóvár-almennra og Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur,“ segir Linda Rut Benediktsdóttir, sem ber hitann og þungann af starfi hollvina hins gullna jafnvægis. Að baki hollvinunum standa sautján fyrirtæki, stofnanir og samtök, þar á meðal Alþýðusam- band Íslands, stéttarfélagið Efl- ing og félagsmálaráðuneytið. Tilgangur þeirra er að stuðla að fjölskylduvænu atvinnuum- hverfi sem auðveldar einstakling- um að samhæfa atvinnu sína og einkalíf. Hollvinir hins gullna jafnvæg- is vilja fá rökstuddar ábendingar um fyrirtæki, sem hafa staðið sig vel gagnvart starfsfólki sínu.„Það er mikilvægt að rökstyðja ábend- ingarnar og koma með dæmi, ekki segja bara að þetta sé æðislegur vinnustaður.“ ■ Leita að fjölskyldu- vænum fyrirtækjum LINDA RUT BENEDIKTSDÓTTIR Hún segir vinnuveitendur í auknum mæli vera farna að átta sig á því að það kemur þeim sjálfum til góða að styðja starfsfólk. RAGNHEIÐUR KRISTÍN GRÉTARSDÓTTIR: 21 ÁRS RÚTU- OG VÖRUBÍLSTJÓRI Í STYKKISHÓLMI Ósmekklegar athugasemdir karla 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 ...fær Femínistafélag Íslands fyrir að stofna til femínistaviku sem stendur nú yfir og vekja þannig athygli á jafnréttismálum. HRÓSIÐ RAGNHEIÐUR , RÚTU- OG VÖRUBÍLSTJÓRI Segir karlmenn gjarna á ósmekklegar athugasemdir þegar þeir sjá hana við stýrið á stór- um rútum og vörubílum, en ánægða við ferðalok. Vopnaburður getur ver- ið nauðsynlegur „Ég verð að segja eins og dagsatt er að ég get ekki gert mér grein fyrir þessu því mig skortir bakgrunn og innsæi á þessi mál. Svo mikið sem við erum öll á móti vopnaburði þá geri ég ráð fyrir að það séu tilvik þar sem vopnaburður er nauðsynlegur. Ég veit ekki hvort hann er nauðsynlegur í þessu tilviki en ég held að hann geti verið það stund- um. Ég geri úr því skóna að við Íslendingar séum öll friðarsinnar og við lítum á vopnaburð hér á landi sem óhugsandi en þegar fólkið okkar er komið út í heim þá gilda aðrar reglur og þeim er ég ekki nægi- lega kunnug.“ Vopnaburður eykur öryggi „Öryggi friðargæsluliðanna skiptir mestu máli og ef það eykur öryggi þeirra að vera vopnaðir þá eiga þeir að sjálfsögðu að vera það. Ég tel að það sé rétt af Íslendingum að axla meiri ábyrgð í alþjóða- samfélaginu og eitt af því sem við leggjum fram eru friðargæslulið- ar sem eru að vinna af- skaplega góð og þörf störf við hættulegar að- stæður. Þetta eru hug- rakkir menn en það verður eðli málsins samkvæmt að tryggja öryggi þeirra við hættu- leg störf og þar af leið- andi verða þeir því mið- ur að vera vopnaðir.“ Eigum ekki að vera hluti af her „Íslendingar eiga ekki að taka þátt í störfum á átakasvæð- um erlendis sem hluti af her eða sjálfstæð hersveit. Til þess eru aðrir betri, sem hafa til þess þjálfun og hefð, en einkum höfum við nóg ann- að fram að færa, og eigum að gæta orðspors okkar og ímyndar sem herlaus þjóð. Hvort menn bera varnarvopn einhverskonar við störf sem ekki eru hernaðarleg, svona eins og íslenska löreglan með kylfur í beltinu og byssur uppi í skáp – það er tæknilegt úrlausnar- efni. Aðalatriðið er það að ríkisstjórnin er á villigöt- um með þennan hálfher í Kabúl og þarf nú að svara áleitnum spurningum um framtíðina í þessum mál- um.“ EIGA ÍSLENSKIR FRIÐARGÆSLULIÐAR AÐ VERA VOPNAÐIR? AUÐUR EIR VILHJÁLMSDÓTTIR prestur GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐ- ARSON alþingismaður MÖRÐUR ÁRNA- SON alþingismaður Lárétt: 1 kát, 6 hestur, 7 eldivið, 8 skel – u, 9 prófgráða, 10 taða, 12 hita, 14 sár, 15 á fæti, 16 tímabil, 17 ílát, 18 viðlag. Lóðrétt: 1 líf, 2 barn, 3 píla, 4 breyta mik- ið, 5 vetrarmánuður, 9 ung stúlka, 11 nak- ið, 13 heybaggi, 14 hólf, 17 tveir eins. LAUSN: Lárétt: 1fjörug,6jór,7mó,8öð,9mba, 10hey, 12yls,14ben,15tá,16ár, 17 fat,18stef. Lóðrétt: 1 fjör, 2jóð,3ör, 4umbylta,5 góa,9mey, 11bert, 13sáta,14bás,17 ff. SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.