Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 30
Lítil herbergi krefjast oft meira hugvits í skipulagningu en þau stóru og rúmgóðu. Erna Hjaltested og Sigfús Þór Sigmundsson þurftu heldur betur að leggja höfuðið í bleyti áður en þau fóru í endurbæt- ur á baðherberginu sínu, það var rúmir 2 fermetrar en eftir stækk- un er það 3,5 fermetrar. Það telst ekki vera stórt baðherbergi en með miklum pælingum tókst að koma öllu haganlega fyrir, fallegum sturtuklefa, upphengdu klósetti, vaski, ofni og þremur skápum. Baðherbergið er við hliðina á eld- húsi íbúðarinnar og hugmyndin var að fórna litlu búri inn af eld- húsinu undir baðherbergið. Með því fengust bæði eftirsóttir fer- metrar og gluggi á baðherbergið sem hefur sannarlega breytt um svip eftir framkvæmdirnar. Eig- endurnir eru afar ánægðir með hvernig til tókst, enda ekki ástæða til annars. Samstarf við Valgerði Sveinsdóttur innanhússarkitekt gekk mjög vel og segist Erna vera mjög ánægð með að hafa unnið með arkitekt að breytingunum. Eins og oft vill verða urðu breyt- ingarnar umfangsmeiri en til stóð í upphafi. Til dæmis kom í ljós eftir að veggurinn á milli búrs og baðs hafði verið rifinn niður að vegg- irnir stóðust ekki fullkomlega á. Það þurfti að sjálfsögðu að laga. Innréttingar í rúmlega 1 metra breitt herbergi liggja ekki á lausu, lausnin var að allir skápar voru sérsmíðaðir af Haraldi í Eld- húsvali eftir teikningum Valgerðar sem hún gerði í samráði við eig- endur. Þess má geta að blöndunar- tæki, klósett og vaskur eru úr Tengi en ofninn frá Ísleifi Jóns- syni. Meðal hugmynda sem kviknuðu á leiðinni var að nýta gamalt hurðar- op frá baðherbergi yfir í svefnher- bergi sem hafði verið fyllt upp í. Það var opnað og svo lokað með þunnri gifsplötu. Auka plássið sem þarna skapaðist var nýtt fyrir handklæðaofn og lít- inn skáp. Loftið í gamla baðherberginu hafði verið tekið niður en í því nýja fær lofthæðin að njóta sín, einungis var tekið niður fyrir inn- felldri lýsingu. Áður en lagt var í breytingarnar gerðu Erna og Sigfús grófa kostn- aðaráætlun. Valgerður mælir ein- dregið með því að fólk gera slíka áætlun áður en hafist er handa. Fólk þurfi að gera sér grein fyrir hvað það er tilbúið að eyða í breyt- ingar. Valgerður segir einnig mik- ilvægt að eigendur skrifi hjá sér hvað þeir vilja fá fram með breyt- ingunum, þannig sé komist hjá því að mikilvægir hlutir gleymist. 1. Baðherbergið eftir breytingarnar. 2. Auka pláss við gamla hurðar- opið var nýtt fyrir ofn og skáp. 3. Vaskurinn, blöndunartæki og klósett eru úr Tengi. 4. Mósaíkflísar eru í sturtuklefanum, en stærri flísar í herberginu. 5. Skáparnir eru allir sérsmíðaðir. 6. Fyrir breytingar. 7. Búið að rífa nið- ur vegginn milli búrs og baðs. 8. Hér er horft í gegnum gamla hurð- aropið frá svefnherberginu, fjær sést hurðaropið yfir í búrið. 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR6 [ SNIÐUGT Í BAÐHERBERGIÐ ] Leonardo Eros glerskál sem hægt er að fylla baðherbergið ilmi með ilmjurtum 6.590 kr. í Í húsinu. Nýtískuleg vog til að fylgjast vel með aukakílóunum 15.882 kr. í Byggt & Búið. Fallegt hjartakerti á 200 kr. í Tiger. Sápupumpa og tannburstavasi í fjölbreyttum litum. Vasi á 1.390 kr., pumpa á 2.490 kr. og diskur og 1.490 kr. í Debenhams. Búr verður að sturtu Baðherbergi tekið í gegn 1 6 7 8 2 4 5 3 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R M YN D IR Ú R EI N K AE IG N HEIMILISBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.