Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 32
Það getur verið varhugavert að
eltast um of við tískuna þegar
kemur að innréttingum og skáp-
um. Tískusveiflur eru tíðar og
það sem var móðins í fyrra get-
ur verið lummó í dag. Í endur-
hönnun heimilisins er því ætíð
skynsamlegt að velja sígildu
leiðina, eða í það minnsta þá
hlutlausu, nema sköpunargleðin
rími þeim mun betur við fjár-
ráðin.
Undanfarin misseri hafa inn-
réttingar úr kirsuberjavið og
litríkar flísar ráðið ríkjum í eld-
húsinnréttingum landsmanna,
en nú vilja innanhúshönnuðir
ekki sjá þá samsetningu lengur.
Boðorð dagsins er hvítt og
meira hvítt, léttleiki og ljósið
allsráðandi, og svo einfaldleik-
inn.
„Hvíttuð eik og hvíttaður
hlynur eru það heitasta í dag,“
segir Karen Rafnsdóttir, innan-
húsarkitekt hjá Brúnási sem
selur íslenskar innréttingar
sem smíðaðar eru austur á Eg-
ilsstöðum. „Langar skúffur í
neðri innréttingu og svo lægri
skápar en upp í loft, eða jafnvel
engir, eru tískan núna og vin-
sælt að hafa þverspónlagðar
hurðir á innréttingunum. Þá
liggur lárétt í viðnum í staðinn
fyrir lóðrétt, eins og við erum
vönust að sjá.“
Karen segir höldur bæði vera
að minnka og styttast á eldhús-
skápum og að nú sé hæstmóðins
að hafa engar höldur en þess í
stað grip sem fræst er neðst í
skúffur og meðfram skápahurð-
um. „Í borðplötum er granít það
flottasta; bæði svart og ljóst, en
alls ekki í litum. Þykkari borð-
plötur en áður þekktist eru líka
farnar að sjást; fjórir senti-
metrar og þaðan af þykkara. Þá
eru litaðar flísar alveg úti í
kuldanum en þess í stað komnar
kremaðar flísar, grábrúnar eða
í öðrum mildum náttúrulitum.“
Að sögn Karenar eru vinsæl-
ustu heimilistækin úr stáli og
möttu áli, sem reyndar er auð-
veldara að þrífa en stálið. Þá
kjósi sífellt fleiri að loka heimil-
istæki bak við skápahurðir, eins
og ísskápa og uppþvottavélar.
Bræðurnir Ormsson flytja
inn HTH-innréttingar frá Dan-
mörku. Þórunn Elvar tekur
undir orð Karenar hjá Brúnási
og segir hvíttaða eik og hlyn
áberandi í nýjustu eldhúsinn-
réttingunum að utan. „Hvíttuð
eldhús og höldulaus koma sterk
inn núna og svart granít í borð-
plötum. Kámfrítt ál hefur orðið
vinninginn yfir stálið í heimilis-
tækjum og hvergi má sjá liti, ef
horft er til ströngustu tísku-
strauma.“
Þórunn segir ljósar flísar milli
eldhússkápa nýjasta nýtt, sem
og veggjapanil úr áli og það
frumlegasta; sandblásið og
sýruþvegið gler rammað inn í
álramma á milli borðplötu og
efri skápa. Auðvelt í þrifum og
verulega huggulegt fyrir augað.
Hvíttaður viður með granít- og glerflísum
Nýjasta tíska í eldhúsinnréttingum
Artótekið, listaverkaleigan sem opnuð var í Borgarbókasafninu í
Tryggvagötu á afmæli Reykjavíkur þann 18. ágúst síðastliðinn, hefur
farið vel af stað, að sögn Katrínar Guðmundsdóttur verkefnisstjóra.
Um 100 listamenn hafa lagt inn nýleg verk og eftirspurn eftir þeim til
útleigu hefur verið talsverð. ìÞó vildum við auðvitað sjá enn meiri
hreyfingu,î viðurkennir Katrín. Artótekið er við hlið afgreiðslunnar á
jarðhæð þar sem tölvusalurinn var áður. Margt fallegt er þar að sjá
þótt hvert verk fyrir sig fái ekki það pláss eða lýsingu sem það þyrfti
til að njóta sín til fulls eins og um sýningu væri að ræða.
Katrín segir tvívíð verk, svo sem olíumálverk og grafík hafa verið
einna vinsælust til útlána. Leiguupphæðin fer eftir verðmæti verksins
og er frá 1.000 á mánuði upp í 10 þúsund.
Artótekið byggist á samstarfi safnsins og Sambands íslenskra mynd-
listarmanna. Fyrirmyndin er finnsk. Þar fór slík starfsemi hægt af
stað en hefur náð góðri fótfestu og nýtur nú mikilla vinsælda að sögn
Katrínar. Hún segir einungis félagsmenn í SÍM eiga verk í Artótekinu
og hámarkið sé fimm verk frá hverjum
listamanni til að fjölbreytni sé tryggð. Þau
megi hvorki vera stór né viðkvæm og
verðmæti þeirra ekki fara yfir hálfa
milljón. En við hvaða kringumstæður fær
fólk svona hluti leigða?
„Langflestir eru að hugsa um að eignast
verkin sem þeir fá leigð en eru svona að
prófa hvernig þeir kunni við þau heima.
Þeir taka þau að láni í mánuð en ef menn
vilja framlengja tímann þá bara borga
menn áfram,” segir Katrín og getur þess í
lokin að kjörið sé fyrir fyrirtæki að
prýða hjá sér með leiguverkum og skipta
þeim síðan út.
Afgreiðslutími Artóteksins er á þriðjudög-
um kl. 12-16 og á fimmtudögum kl. 16-20
en verkum má líka skila á öðrum tímum.
Nánari upplýsingar er að finna á artotek.is
27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR8
1. Hvíttaður viður er það
heitasta í dag og borðplötur
úr steini eru inni.
Innréttingar úr Brúnási.
2. Takið eftir breiðum skúffum sem eru
mjög vinsælar núna. Innrétting úr HTH.
Láttu drauminn rætast í rúmi frá Stearns & Foster
L a n g h o l t s v e g i 1 1 1 • 1 0 4 R e y k j a v í k • S í m i 5 6 8 7 9 0 0
A f g r e i ð s l u t í m i v i r k a d a g a k l . 1 1 – 1 8 . o g l a u g a r d a g a k l . 1 1 – 1 4 .
Bandarísku hágæðarúmin frá Stearns & Foster eru heimsþekkt á meðal vandlátra
kaupenda fyrir gæði og glæsileika. Rúmin eru hönnuð fyrir fólk sem vill aðeins hið
besta. Þau veita réttan stuðning og tryggja vellíðan á hverri nóttu með sérhönnuðu
gormakerfi, bólsturslögum og einstökum frágangi. Bandarísku neytendasamtökin
hafa í mörg ár útnefnt rúmin frá Stearns & Foster sem „bestu kaupin“.
Hágæðarúm
frá Stearns & Foster
Frá einu virtasta tískuhúsi Frakklands: Rúmteppi,
sængurverasett, lök, handklæði, frottésloppar,
ilmsápur, ilmkerti, ilmvatn o.fl.
Myndlist til leigu
Olíumálverk og grafík einna vinsælust
1. Katrín Guðmundsdóttir
er verkefnisstjóri Artóteksins.
2. Allt er það samtímalist
sem í boði er en úrvalið
er mikið.
2
1
1
[ SNIÐUGT Í ELDHÚSIÐ ]
Svartir salt- og piparstaukar.
1.550 kr. settið í Í húsinu.
Tímastillir í laginu eins og hamborgari.
677 kr.í Byggt & Búið.
Fallegur röndóttur platti undir heitt
200 kr. í Tiger.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
2
HEIMILISBLAÐIÐ