Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 54
30 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
Fáðu vasabox
fyrir nicorette
lyfjatyggigúmmí
®
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án
lyfseðils og eru notuð þegar reyk-
ingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum.
Í fylgiseðlinum eru
upplýsingar um: Verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsing-
ar sem nauðsynlegt er að lesa áður en
lyfin eru notuð, hugsanlegar auka-
verkanir og aðrar upplýsingar.
Til að ná sem bestum
árangri skal ávallt fylgja leiðbeining-
um í fylgiseðli.
Styrktarforeldrar óskast - sos.is
SOS - barnaþorpin
S: 564 2910
Stjörnur á borð við Noel Gallag-
her, Damon Albarn og Dido hafa
öll samþykkt að aðstoða hljóm-
sveitirnar Coldplay, Travis, The
Darkness og Keane við upptökur
á jólalaginu Do They Know It’s
Christmas sem upphaflega var
gefið út á smáskífu árið 1984. Var
það sungið af hljómsveitinni Band
Aid og rann allur ágóði til hungr-
aðra barna í Eþíópíu. Einnig von-
ast skipuleggjandinn Midge Ure
eftir því að Thom Yorke, söngvari
Radiohead, og Robbie Williams,
gangi til liðs við þennan fríða hóp
tónlistarmanna.
„Ég get ekki beðið eftir því að
heyra Keane og Coldplay byrja
lagið með píanóleik og The Dark-
ness spila melódíuna á gítar í lok-
in,“ sagði Ure, sem einnig var á
bak við upptökurnar á laginu árið
1984 ásamt popparanum Bob
Geldof. „Þetta ætti að verða mjög
skemmtilegt,“ bætti hann við.
Hann sagðist ekki eiga von á að
hljómsveitirnar myndu reyna að
endurvekja þann anda sem sveif
yfir vötnunum fyrir tveimur ára-
tugum heldur reyna að flytja lag-
ið á sinn eigin hátt.
Jólasmáskífa selst í 3,5
milljónum eintaka
Upphaflega Band Aid-sveitin
samanstóð af listamönnum á borð
við U2, Sting, Duran Duran og
George Michael. Á þessum tíma
var „eitís“-tímabilið í algleymingi
og tónlistarmenn með blásið hár
og í bleikum skyrtum voru alls-
ráðandi á vinsældalistum. Bob
Geldof, liðsmaður hljómsveitar-
innar Boomtown Rats, heyrði af
mikilli hungursneyð í Eþíópíu og
vildi semja lag til styrktar mál-
efninu þar sem ágóðinn myndi
renna til hungraðra barna. Fékk
hann þá Ure, söngvara hljóm-
sveitarinnar Ultravox, til liðs við
sig og saman sömdu þeir jólalagið
Do They Know It’s Christmas.
Kom það út á smáskífu fyrir jólin
í Bretlandi og stóðu vonir til að
hún myndi seljast í hundrað þús-
und eintökum. Sú varð aldeilis
ekki raunin því skífan seldist í 3,5
milljónum eintaka í Bretlandi og
kom af stað mikilli vakningu á
meðal almennings um hung-
ursneyðina í Afríku. Alls safnaði
lagið um einum milljarði króna
sem rann óskiptur til hjálpar-
starfs í Eþíópíu. Sönnuðu vinsæld-
ir þess svo um munaði að popp-
stjörnur geta haft áhrif á gang
heimsmála.
Live Aid sjónvarpað um allan heim
Í júlí árið 1985 var smáskífunni
síðan fylgt eftir með Live Aid-tón-
leikunum þar sem bestu tónlistar-
menn beggja vegna Atlantshafs-
ins héldu tvenna tónleika á sama
tíma á Wembley í London og á
JFK-leikvanginum í Fíladelfíu.
Stóðu þeir yfir í sextán klukku-
stundir og var sjónvarpað um víða
veröld. Fjölmargar hljómsveitir
og tónlistarmenn höfðu bæst í
hópinn, meðal annars Queen,
Beach Boys, Led Zeppelin, Rolling
Stones, Bob Dylan, Phil Collins,
Tina Turner og Madonna. Vöktu
tónleikarnir að vonum gríðarlega
athygli og söfnuðu þeir þrefalt
meiri pening til styrktar hungruð-
um heimi en upphaflega var von-
ast eftir, eða rúmum 3,8 milljörð-
um króna.
Frá árinu 1985 hefur smáskífu-
lagið Do They Know It’s
Christmas og Live Aid-tóneikarnir
safnað tæpum tíu milljörðum
króna fyrir hjálparstarf í Afríku.
En betur má ef duga skal, því í dag
er hungursneyð til að mynda enn
viðvarandi í Eþíópíu og árið 2000
voru 12 milljónir manna í lífs-
hættu þar í landi, sökum matar-
skorts. Við þetta er að bæta að
þrátt fyrir heimsvakninguna
miklu létust 1,2 milljónir manna í
Afríku af völdum hungursneyðar
á árunum 1984 til 1985.
freyr@frettabladid.is
Sungið gegn hungursneyð
Margar af helstu poppstjörnum Breta ætla að syngja nýja útgáfu af jólalagi Band Aid-hljómsveit-
arinnar, Do They Know It’s Christmas?, sem fyrst kom út fyrir tuttugu árum. Fréttablaðið rifjar
upp söguna á bak við lagið.
LIVE AID Fjölmargar hljómsveitir komu fram á Live Aid-tónleikunum sem voru haldnir samtímis í Bretlandi og Bandaríkjunum. Milljónir áhorfenda fylgdust með í sjónvarpinu.
Adam Clayton
(U2)
Phil Collins
Bob Geldof
Steve Norman
(Spandau Ball-
et)
Chris Cross (Ultravox)
John Taylor (Duran Duran)
Paul Young
Tony Hadley
(Spandau Ball-
et)
Glenn Gregory (Heaven 17)
Simon LeBon (Duran Duran)
Simon Crowe
Marilyn
Keren Woodward (Bananarama)
Martin Kemp (Spandau Ballet)
Jody Watley
Bono (U2)
Paul Weller
James Taylor
Midge Ure (Ultravox)
Martin Ware (Heaven 17)
George Michael
John Keeble
(Spandau Ballet)
Gary Kemp
(Spandau Ballet)
Roger Taylor (Duran Duran)
Sarah Dullin (Bananarama)
Siobhan Fahey (Bananarama)
Peter Briquette
Francis Rossi (Status Quo)
Robert ‘Kool’ Bell
Dennis Thomas
Andy Taylor (Duran Duran)
Jon Moss (Culture Club)
Sting
Rick Parfitt
(Status Quo)
Nick Rhodes
(Duran Dur-
an)
Johnny Fingers
David Bowie
Boy George
Holly Johnson
Paul McCartney
Upprunalegi Band-Aid hópurinn:
Coldplay
Damon Albarn Travis
The Keanes
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »