Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 47
Aukið framboð hlutabréfa er líkleg- asta ástæða lækkana hlutabréfa- markaðar að mati greiningardeildar Landsbankans. Þegar hefur verið gefið út nýtt hlutafé fyrir 121 milljarð króna á markaði og sé gert ráð fyrir sölu Símans má búast við að framboð nýs hlutafjár á næstunni verði tæp- ir 158 milljarðar króna. Alls mun því framboð nýs hlutafjár verða yfir 270 milljarðar króna. „Við höfum eins og aðrar grein- ingardeildir talið h l u t a b r é f a v e r ð hátt,“ segir Bjarki Logason, sérfræð- ingur hjá greining- ardeild Landsbank- ans. „Hins vegar hefur mikil eftir- spurn ýtt undir hækkanir og með auknu framboði nýs hlutafjár aukast líkur á lækkun.“ Greiningardeildin telur að há verðlagning markaðarins sé meira áhyggjuefni en áður. Sú ávöxtun sem fjárfestar geti búist við af markaðnum næsta árið miðað við rekstur fyrirtækjanna sé neikvæð um rúm fjórtán prósent. Þessi tala er fundin með því að meta verð fyrirtækjanna að ári með greiningu á sjóðstreymi og meta það miðað við núverandi verð hlutabréfa. ■ VÆNTANLEG HLUTAFJÁRÚTBOÐ: Landssíminn 66,8 Íslandsbanki 34,8 Bakkavör 22,5 SÍF 21,0 Flugleiðir 8,8 Burðarás 3,8 Upphæðir í milljörðum króna. Heimild: Greiningardeild Landsbankans 23MIÐVIKUDAGUR 27. október 2004 ISDN POSAR Heimildarbeiðni tekur aðeins 3-5 sek. í stað 20-30 sek. Allt að átta posar í einu Hver heimild kostar aðeins 1 kr. í stað 4 kr. Fyrirtæki og verslanir sem nýta posa í starfsemi sinni geta breytt venjulegri símalínu í ISDN stafræna símatengingu. Með ISDN stafrænni símatengingu stóraukast afköstin á álagspunktum og þar af leiðandi þjónustan um leið. Fáðu nánari upplýsingar í síma 800 4000 eða á siminn.is. N O N N I O G M A N N I I Y D D A / s ia .i s / N M 1 1 8 1 8 LANDSBANKINN Greiningardeild Landsbankans segir aukið framboð hlutabréfa auka líkur á lækkun hlutabréfamarkaðar. BJARKI LOGASON Framboðið lækkar markaðinn Aldrei fyrr hefur Úrvalsvísi- talan lækkað jafnmikið á tveimur dögum. Mikil við- skipti voru í gær. Fjöldi við- skipta hefur ekki verið meiri síðan í árslok 2002. Líklegt er að smærri fjárfestar séu að innleysa hagnað. Sér- fræðingur telur að lækkanir kunni að halda áfram. Síðustu dagar hafa verið nokkuð átakamiklir í Kauphöll Íslands. Úrvalsvísitalan hefur nú lækkað um 7,08 prósent á tveimur dögum. Aldrei fyrr hef- ur lækkunin verið jafnmikil á tveimur dög- um. Á mánudag lækkaði Úrvals- vísitalan um fleiri stig en nokkru sinni fyrr og hlut- fallslega var lækkunin hin ellefta mesta frá upphafi. Stigametið var slegið í gær þegar vísitalan féll um 156,99 stig og hlutfallslega er lækkunin hin fimmta mesta í prósentum talið frá því að vísitalan var reiknuð fyrst árið 1993 og hin næstmesta síðan 1994. Mjög mikil viðskipti voru í Kauphöllinni í gær. Hlutabréf skiptu um hendur fyrir ríflega tíu milljarða króna í 2.087 viðskipt- um. Fjöldi viðskipta bendir mjög til þess að smærri fjárfestar hafi verið að selja bréf fyrir litlar upp- hæðir í gær. Fjöldi viðskipta í gær er hinn níundi mesti í sögu Kaup- hallarinnar og hinn mesti síðan 30. desember 2002. Viðskipti í Kauphöllinni hafa verið flest á síðustu dögum hvers árs þegar skattaafsláttur vegna hlutabréfa- kaupa var í gildi. Dagurinn í gær sker sig úr að þessu leyti því ekk- ert var óvenjulegt við daginn ann- að en að greinilegur söluþrýsting- ur var á hlutabréfum í nánast öll- um félögum. Mest voru viðskipti með bréf í KB banka og Landsbanka. Líklegt er að margir vilji innleysa mikinn hagnað af eign í þessum tveimur félögum. Auk þess hafa fregnir um hik KB banka varðandi Singer & Friedlander dregið úr væntingum um ytri vöxt. Landsbankinn lækkaði um 6,6 prósent í gær en bankinn hefur hækkað mjög hratt á síðustu mánuðum auk þess sem rekstur bank- ans er viðkvæmur fyrir sveiflum á markaði því Landsbankinn á miklar eignir í hlutabréfum. Atli B. Guðmunds- son, hjá greiningardeild Íslandsbanka, segir lækkun síðustu daga ekki koma á óvart. „Í ljósi þess hve hækkan- irnar voru orðnar mikl- ar og að viðskiptin voru farin að einkennast meira af spákaup- mennsku en rekstri fyrirtækj- anna þá hlaut að koma að þessu,“ segir hann. Um það hvort líklegt sé að þessi þróun á markaði haldi áfram segir Atli að erfitt sé að segja til um það. „Það eru sterk rök fyrir því að úr því að þessi þróun er hafin þá sé sennilegt að það muni reyna á meiri lækkanir. Hins veg- ar eru uppgjörin að berast og fullt af fréttum sem geta hreyft mark- aðinn líka og þá jafnvel í hina átt- ina,“ segir Atli. thkjart@frettabladid.is Það er nokkuð erfitt að átta sig á því hvað er að gerast á vinnumarkaði þessa dagana. Mikið hefur verið rætt um hversu lítið atvinnuleysi hefur minnkað þrátt fyrir mikinn hagvöxt. Þannig mældist atvinnuleysi 3,2% að meðaltali fyrstu níu mánuði ársins samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar. Þetta er ívið minna at- vinnuleysi en í fyrra, en þá var það 3,5% fyrstu níu mánuði ársins. Miðað við að hagvöxtur er einhvers staðar í kringum 5% hefði maður búist við því að atvinnuleysi hefði minnkað umtalsvert á milli ára. Atvinnuleysi getur minnkað af tveim- ur ástæðum. Annað hvort fær at- vinnulaus einstaklingur vinnu og bætist þá í hóp vinnandi fólks á vinnumarkaði, eða þessi einstakling- ur gefst upp við atvinnuleit og víkur af vinnumarkaði. Það vekur því at- hygli að í þessari uppsveiflu, á með- an atvinnuleysi lækkar lítið sem ekk- ert, þá minnkar atvinnuþátttaka um 1,5 prósentustig frá fyrra ári og er nú ríflega 81% af fólksfjölda. Ef við rýnum nánar í þessar tölur kemur í ljós að atvinnuþátttaka hefur minnkað meira hjá konum en körl- um, eða um 2 prósentustig á móti 1 prósentustigi hjá körlum. Sérstaklega er sláandi að atvinnuþátttaka kvenna á aldrinum 55-74 á landsbyggðinni minnkar um 8,5 prósentustig á með- an atvinnuþátttaka sama hóps á höf- uðborgarsvæðinu eykst um 2,5 pró- sentustig. Er nú svo komið að aðeins helmingur eldri kvenna á lands- byggðinni er á vinnumarkaði. Þótt at- vinnuleysi sá svipað meðal kynjanna á þessu tímabili, þá er hugsanlegt að þarna megi merkja áhrif þess að ef konum gengur illa að finna starf eru þær líklegri en karlmenn til að hverfa af vinnumarkaði. Á hinn bóginn er vinnutími nú lengri en á sama tíma í fyrra. Fyrstu níu mánuði þessa árs hefur vinnustund- um fjölgað um 0,4 á viku. Karlar vinna að meðaltali 47,3 klukkustund- ir á viku á meðan konur vinna að meðaltali 36,3 klukkustundir á viku. Karlmenn á aldrinum 16-24 vinna 1,1 klukkustund lengur en í fyrra en á móti vegur að karlmenn á aldrinum 55-74 vinna 1,8 klukkustundum skemur. Fyrstu níu mánuði þessa árs voru veitt ríflega 900 ný atvinnuleyfi til út- lendinga sem koma hingað frá lönd- um utan EES. Þessi fjöldi samsvarar um 0,5% af vinnuafli landsins. Ríkis- borgarar EES-ríkja þurfa ekki atvinnu- leyfi til að starfa hér á landi. Nýjum atvinnuleyfum hefur fjölgað til muna frá því í fyrra, þegar veitt voru 360 ný leyfi fyrstu níu mánuði ársins. ÞJÓÐARBÚSKAPURINN KATRÍN ÓLAFSDÓTTIR Atvinna og atvinnuleysi ATVINNULEYSI „Atvinnuleysi getur minnkað af tveimur ástæðum. Annað hvort fær at- vinnulaus einstaklingur vinnu og bætist þá í hóp vinnandi fólks á vinnumarkaði, eða þessi einstaklingur gefst upp við atvinnuleit og víkur af vinnumarkaði.“ Mesta tveggja daga lækkun MESTA LÆKKUN Á EINUM DEGI 19. febrúar 1993 4,88% 2. maí 2001 4,62% 18. janúar 1993 4,58% 13. apríl 1993 4,54% 26. október 2004 4,23% MESTA LÆKKUN Á TVEIMUR DÖGUM 25.-26. október 2004 7,07% 1. - 2. maí 2001 5,45% 10.-11. maí 2000 5,28% 17. - 18. maí 2000 5,19% 21. - 22. febrúar 1993 4,88% ATLI B. GUÐ- MUNDSSON Segir ekki víst að lækkun- arhrinu sé lokið. DIMMT YFIR KAUPHÖLLINNI Hlutabréf hafa lækkað skarpt tvo daga í röð. Verðmæti fyrirtækja í Úrvalsvísitöl- unni hefur lækkað um 72 milljarða frá því á föstudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.