Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 50
26 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Við mælum með... ... að Ásgeir Ásgeirsson, Þórhallur Dan Jóhannsson og Sævar Þór Gíslason skelli sér til Ríkislögreglustjóra í dag og biðji um að verða tengdir við lygamæli. Þá er vonandi hægt að komast að því hver sé raunverulega að segja satt og hver sé að ljúga. Það er ekki hægt að hafa ástandið svona. „Það virðist alltaf vera hægt að drulla yfir okkur stjórnarmenn en nú er okkur nóg boðið.“ Ásgeir Ásgeirsson, formaður meistaraflokksráðs Fylkis, fékk nóg af meintum lygum leikmanna sinna og lét þá hafa það óþvegið í gær. sport@frettabladid.is [ LEIKIR GÆRDAGSINS ]HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 24 25 26 27 28 29 30 Miðvikudagur OKTÓBER FÓTBOLTI Það er harka hlaupin í samskipti stjórnar Fylkis og leik- mannanna Þórhalls Dans Jó- hannssonar og Sævars Þórs Gísla- sonar. Greint var frá því á mánu- dag að samningar hefðu ekki tek- ist við þá félaga og því hefðu þeir leikið sinn síðasta leik fyrir Fylki. Stjórn Fylkis var afar ósátt við ummæli þeirra félaga í fjölmiðl- um daginn eftir og því ákvað Ás- geir Ásgeirsson, formaður meist- araflokksráðs Fylkis, að birta greinargerð á heimasíðu Fylkis í gær þar sem hann greinir frá því af hverju samningar tókust ekki við þá félaga og greinir Ásgeir ít- arlega frá samskiptum sínum við leikmennina. „Það virðist alltaf vera hægt að drulla yfir okkur stjórnarmenn og mér fannst ég verða að svara því sem komið hefur fram hjá Þór- halli og Sævari,“ sagði Ásgeir í gær en hann vill meina að leik- mennirnir séu hreinlega að ljúga. „Þeir eru ekki að segja satt og þetta hlustar fólk á og hefur verið að smjatta á því síðan. Okkur var bara nóg boðið.“ Í greinargerð Ásgeirs kemur fram að samningaviðræður við Sævar hafi borið árangur á laug- ardegi. Sævar vildi upphaflega setja í samninginn að Fylkir bjargaði honum um vinnu en það vildu Fylkismenn ekki gera því þeir hefðu margoft aðstoðað Sævar með vinnu. Þess í stað buðu þeir upp á að hjálpa honum í at- vinnuleitinni án skuldbindinga. Ásgeir segir að þegar þeir hafi lagt fram samninginn til Sævars hafi komið skýrt fram að þeir gætu ekki boðið betur. Sævar sagðist vera sáttur við samning- inn en vildi fresta undirskrift til hádegis á sunnudag því hann vildi fara yfir málið með fjölskyldu sinni. Bara bull í Ásgeiri Fylkismenn ræddu tvisvar við Sævar á sunnudeginum án þess að fá niðurstöðu í málið en um kvöld- ið hafði Sævar samband þar sem hann sagðist treysta því að þeir hjálpuðu honum með vinnu og jafnframt fór hann fram á 33% hækkun á grunnlaunum samn- ingsins að sögn Ásgeirs. Sævar sagði við fjölmiðla við samnings- slitin að gagntilboð hans hefði verið mjög nærri tilboði Fylkis. Hann stendur við þau orð og segir Ásgeir sjálfan ljúga. „Hann lýgur sjálfur. Þetta með 33% hækkunina er bull. Ég veit ekki nákvæmlega hver prósentu- talan er en hún er fjarri 33%. Ás- geir fer með rangt mál og hann veit það sjálfur,“ sagði Sævar Þór sem vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um málið. Því væri lokið af hans hálfu. Ásgeir segir enn fremur í greinargerð sinni að Þórhalli Dan hafi verið boðinn samningur á sambærilegum nótum og hans gamli samningur. Jafnframt hafi Þórhalli verið tjáð að svigrúm stjórnar í samn- ingagerðinni væri takmarkað. Í kjölfarið hafi verið boðað til fund- ar á laugardeginum. Þórhallur mætti ekki til fundarins og lét ekkert af sér vita. Þegar það náð- ist í hann seinni partinn afsakaði hann fjarveruna með því að hann hefði gleymt fundinum. Steingleymdi fundinum „Þetta er nú meiri metnaðurinn. Ég meina hver mætir ekki á samningafund? Ég hlusta ekki á rök þess eðlis að hann hafi gleymt fundinum,“ sagði Ásgeir, frekar gramur. Þórhallur játar það fús- lega að þar hafi hann klikkað. „Ég tek það á mig. Ég var með fjölskyldu minni og án símans og bara steingleymdi fundinum,“ sagði Þórhallur en hann segir, líkt og Sævar, að Ásgeir ljúgi því að samningurinn hafi verið á sam- bærilegum nótum og gamli samn- ingurinn. „Það var verið að lækka launin mín um þriðjung sam- kvæmt þessum nýja samningi. Ásgeir er bara hreint og klárt að ljúga ef hann heldur því fram að nýi samningurinn sé á sam- bærilegum nótum. Annars nenni ég ekki þessum sandkassaleik. Ef hann vill maka aðra drullu þá verður hann að eiga það við sjálf- an sig en ég nenni ekki þessum leik með honum,“ sagði Þórhallur, fúll yfir endalokum síns ferils hjá Fylki. Það verður ekki annað sagt en að mál þetta sé komið í algjöran hnút. Orð stendur gegn orði en það eina sem er á hreinu er að Sævar Þór Gíslason og Þórhallur Dan Jóhannsson leika ekki með Fylki í lautinni næsta sumar. henry@frettabladid.is GLAÐIR Á GÓÐRI STUND Sævar Þór Gíslason og Þórhallur Dan Jóhannsson fagna hér marki með Fylki í sumar. Þeir neita því að vera lygarar og segja Ásgeir Ásgeirsson, for- mann meistaraflokksráðs Fylkis, sjálfan fara með rangt mál. Lygar í lautinni Ásgeir Ásgeirsson, formaður meistaraflokksráðs Fylkis, sakar Þórhall Dan Jóhannsson og Sævar Þór Gíslason um lygar. Leikmennirnir svara ásökununum fullum hálsi og segja Ásgeir sjálfan vera lygara. ■ ■ LEIKIR  18.00 Haukar 2 og Bifröst mætast á Ásvöllum í 16 liða úrslitum SS- bikars karla í handbolta.  19.15 Stjarnan og ÍBV mætast í Ásgarði í 16 liða úrslitum SS- bikars karla í handbolta.  19.15 Grindavík og Keflavík mætast í Grindavík í 1. deild kvenna í körfubolta.  19.15 KR og Haukar mætast í DHL-Höllinni í 1. deild kvenna í körfubolta.  19.15 Njarðvík og ÍS mætast í Njarðvík í 1. deild kvenna í kör- fubolta.  20.00 Afturelding og HK mætast á Varmá í 16 liða úrslitum SS-bikars karla í handbolta.  20.30 Haukar og Fram mætast á Ásvöllum í 16 liða úrslitum SS- bikars karla í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  17.20 Olíssport á Sýn.  18.35 Enski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Manchester City og Arsenal í enska deilda- bikarnum í fótbolta.  20.35 X-Games á Sýn.  21.25 Stjörnugolf á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn.  22.20 Handboltakvöld á RÚV.  23.15 Enski boltinn á Sýn. Útsend- ing frá leik Manchester City og Arsenal í enska deildabikarnum í fótbolta. Hefur þú fengið þér sextíu sjö í dag& Keflavík ENSKA DEILDABIKARKEPPNIN Portsmouth – Leeds 2–1 1–0 Kamara (14.), 2-0 Berkovich v. (32.), 2-1 Deane (40.) Doncaster – Nottingham 0–2 0-1 King (33.), 0-2 Perch (63.) Millwall – Liverpool 0–3 0-1 Diao (17.), 0-2 Baros (70.), 0-3 Baros (90+4.) Burnley – Aston Villa 3–1 1-0 Branch (9.), 2-0 Camara (65.), 2-1 Angel (81.), 3-1 Valois (86.) Sheffield U. – Watford 0–0 Bournemouth – Cardiff 1–2 1-0 Hayter (8.), 1-1 Lee (24.), 1-2 Bullock (49.) Crewe – Manchester U. 0–3 0-1 Smith (10.), 0-2 Miller (53.), 0-3 Forster sjm. (59.) ÞÝSKA BUNDESLIGAN Bayern – Wolfsburg 2–0 Bochum – M’gladbach 3–0 Hannover – Kaiserslautern 3–1 Hertha Berlin – Dortmund 0–1 SPÆNSKA KONUNGSBIKAR- KEPPNIN Cerceda – Deportivo 0–2 Castellón – Osasuna 0–0 Leganés – Real Madrid 1–2 Aganefnd KKÍ tók Magnamálið umdeilda fyrir í gær: Fékk eins leiks bann KÖRFUBOLTI Aganefnd Körfuknatt- leikssambands Íslands dæmdi Magna Hafsteinsson, leikmann Snæfells, í eins leiks bann á fundi nefndarinnar í gær. Bannið fær hann sjálfkrafa fyrir að fá á sig tvær tæknivillur í leik Ham- ars/Selfoss - Snæfells í síðustu viku. Dómari þess leiks bar einnig fram kæru þar sem hann taldi Magna hafa slegið til sín í þeim leik en aganefndin tók kæru hans ekki til greina. Þeir Fannar Helgason og Roy Robinson hlutu báðir tveggja leik- ja bann fyrir slagsmál í leik ÍR og Tindastóls um helgina. Eins fékk Kerbrell Brown sem leikið hefur með Skallagrími eins leiks bann en kappinn er farinn af landi brott. -aöe Enska deildabikarkeppnin: Að mestu eftir bókinni FÓTBOLTI Óvæntustu úrslitin í þriðju umferð deildabikarkeppninnar í Englandi var án efa góður sigur Burnley á úrvalsdeildarliði Aston Villa en önnur úrslit voru nokkuð eftir bókinni. Liverpool vann góð- an 0-3 sigur á döpru og afar grófu liði Millwall og náði Milan Baros sér sérstaklega vel á strik í leikn- um. Lið Manchester United átti heldur ekki í miklum vandræðum með Crewe þrátt fyrir að yngri leikmenn liðsins fengju að sprey- ta sig. Varð sigurinn sannfærandi, 0-3, með mörkum Smiths og Mill- ers en eitt markanna var sjálfs- mark. Sama var uppi á teningnum í Þýskalandi þar sem leikið var í Bundesligunni. Claudio Pizarro átti góðan leik með Bayern og skoraði bæði mörkin gegn Wolfs- burg sem heldur þó efsta sætinu í deildinni. Bochum kom sér tíma- bundið úr fallsæti með 3-0 sigri á M’gladbach. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E . Ó L.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.