Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.10.2004, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 27.10.2004, Qupperneq 6
6 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR STJÓRNMÁL Svo virðist sem Fram- sóknarflokkurinn hafi breytt um stefnu og opni á skólagjöld í fram- haldsnámi að sögn Elsu B. Frið- finnsdóttur framsóknarkonu. Vitnar Elsa til orða Dagnýjar Jónsdóttur, þingkonu flokksins, í Fréttablaðinu í gær. Þar sagði Dagný: „Framsóknarflokkur- inn...hafnar skólagjöldum í grunn- námi í ríkisreknum háskólum.“ Elsa segir að þetta sé nánast orðrétt tillaga hennar sjálfrar frá flokksþingi Framsóknarflokksins í byrjun þessa árs. Þá hafi Dagný hins vegar lagt fram frávísunar- tillögu. Dagný Jónsdóttir segir hins vegar stefnu flokksins óbreytta, hún hafi aðeins notað orðið grunn- nám því tilefni viðtals Frétta- blaðsins hefði verið sameining Tækniskólans og Háskólans í Reykjavík. Elsa B. Friðfinnsdóttir segir að fundarstjóri landsfundar hafi lát- ið afgreiða frávísunartillögu Dag- nýjar sem dagskrártillögu og þar með ekki leyft neinar umræður. „Þetta var mjög brútalt og því er flokkurinn enn bundnari en ella af óbreyttri stefnu.“ ás VEISTU SVARIÐ? 1Hversu mikið hefur Úrvalsvísitalanlækkað síðustu tvo daga? 2Hver hefur verið ráðinn skólastjóriVerslunarskóla Íslands? 3Hvaða lið leika nú til úrslita í banda-ríska hafnaboltanum? Svörin eru á bls. 38 Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Rakarinn morðóði – eftir Stephen Sondheim Fyrst rakstur - svo bakstur! Fáar sýningar – Misstu ekki af þessum krassandi viðburði á sviði Íslensku óperunnar! Miðasala á Netinu: www.opera.is Forsætisráðherra Úkraínu: Fær stuðning Pútíns ÚKRAÍNA, AP Viðtal við forseta Rússlands, Vladimir Pútín, birtist í úkraínsku sjónvarpi í gær, að- eins sex dögum fyrir umdeildar forsetakosningar í landinu. Talið er að viðtalið hafi verið birt til að styðja Viktor Janukovítsj sem keppir um embættið á móti um- bótamanninum Viktor Júshtsjen- ko. Rússar eiga mikilla hagsmuna að gæta í kosningunum, þar sem úkraínska höfnin Sevastopol í Svarta hafinu er heimahöfn suð- urflota rússneska sjóhersins. ■ Framsóknarmenn deila: Breytt stefna um skólagjöld ELSA B. FRIÐFINNSDÓTTIR OG DAGNÝ JÓNSDÓTTIR Fyrrverandi aðstoðarmaður Framsóknarráðherra og eiginkona Kristins H. Gunnarssonar sakar flokkssystur sínar um sinnaskipti í trássi við landsfundarsamþykkt. DÓMSMÁL „Í dómnum er látið að því liggja að konan hafi unnið til áverkanna,“ segir Jónína Bjart- marz, alþingismaður og lög- fræðingur, um dóm sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykja- ness í síðustu viku þar sem refsingu yfir manni vegna heimilisofbeldis var frestað. Guð- mundur L. Jó- h a n n e s s o n h é r a ð s d ó m a r i dæmdi málið. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa tekið eigin- konu sína háls- taki og hrint henni til og frá þannig að hún tognaði á hálsi og hné og hlaut yfir- borðsáverka á andliti og hár- sverði. Jónína segir virðast sem dóm- arinn telji lög- fulla sönnun á því að maðurinn hafi veitt konunni áverka og hafi því brotið gegn 217. grein almennra hegningarlaga. Þá segir hún dómarann ákveða í ljósi aðstæðna og atvika að fres- ta refsingu. Þær aðstæður og at- vik séu að maðurinn hafi lagt hendur á konuna í mikilli bræði og segir í dómnum að gögn málsins hnígi frekar að því að konan kunni að hafa valdið bræðinni. „Þar segir dómarinn að hugsanlega hafi framhjáhald borið á góma á milli þeirra sem hafi réttlætt bræðina sem síðan réttlætir áverkana á konunni,“ segir Jónína. Jónína segir það vekja at- hygli að í dómnum sé eitt af því sem dómarinn virðist vísa til varðandi frestun refsiákvörðun- ar það að konan hafi verið svo sein að kæra. Henni finnst und- arlegt að það teljist seint fyrir konu, sem hefur sætt ofbeldi og þurft hefur að flýja heimili sitt ofsahrædd á nærfötunum, að kæra einni viku eftir atburðinn. „Ég vil enn og aftur ítreka að konur í þessari stöðu eiga ekki að þurfa að kæra og gera kröfu um refsingu og eftir atvikum skaðabóta því það ber að rann- saka þessi mál. Í þessu máli lá fyrir áverkavottorð og vitni að því að konan flúði heimilið auk þess sem konan fór til lögregl- unnar því hefði lögreglan átt að rannsaka málið að eigin frum- kvæði og án kæru,“ segir Jón- ína. hrs@frettabladid.is JÓNÍNA BJARTMARZ Hún segir það vekja athygli að dómari virðist, varðandi frestun refsiákvörðunar, vísa til þess að konan hafi verið sein að kæra, en hún kærði viku seinna. Flúði eiginmanninn og kærði viku seinna Jónína Bjartmarz, alþingismaður og lögfræðingur, undrast að í niðurstöðum í dómi Héraðsdóms Reykjaness sé gefið til kynna að konan hafi unnið til áverka sem eiginmaður hennar veitti henni. Einnig sé vísað til þess að konan hafi verið sein að kæra en hún kærði viku eftir árásina. ,,Þar segir dómarinn að hugsan- lega hafi framhjá- hald borið á góma á milli þeirra sem hafi réttlætt bræðina sem síðan réttlætir áverkana á konunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FÉLAGSMÁL Hundruð barna hafa hlotið styrki frá Velferðarsjóði barna, að sögn Ingibjargar Pálma- dóttur framkvæmdastjóra hans, auk ýmissar starfsemi að velferð- armálum barna. Sjóðurinn hefur á starfstíma sínum veitt vel á þriðja hundrað milljóna króna til slíkra málefna. Sjóðurinn var stofnaður í árs- byrjun 2000 af Íslenskri erfða- greiningu og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Síðastliðin sumur hefur hann til að mynda styrkt börn sem búa við fátækt með því að veita þeim tækifæri til þátttöku í námskeið- um og til fatakaupa. Á sjötta hundrað barna hafa notið slíkra framlaga. Stærsta verkefni sjóðsins til þessa tíma er uppbygging hvíldar- og hjúkrunarheimilisins Rjóðurs fyrir langveik börn. Heimilið er staðsett í Kópavogi og hýsir um 8 - 10 börn í einu. Þá stendur sjóður- inn að vináttuverkefni, þar sem háskóla- og framhaldsskólanemar taka grunnskólanema að sér og verja með þeim þremur stundum á viku. Markmiðið er að víkka sjóndeildarhring barnanna. Skóla- árið 2004 - 2005 eru um 200 þátt- takendur í þessu verkefni. Loks má nefna margvísleg fræðsluverkefni, sem sjóðurinn hefur staðið að á starfstíma sín- um, auk veitingu ferðastyrkja til fjölmargra fatlaðra og veikra barna. - jss Velferðarsjóður barna hefur úthlutað nær 300 milljónum: Hundruð barna hafa notið framlaga INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR Stofnframlag Velferðarsjóðs barna var gjöf Íslenskrar erfðagreiningar til barna í land- inu að upphæð ríflega 500 milljónir króna. CONDOLEEZZA RICE Rice segir að nú sé rétti tíminn fyrir Arafat að hætta. Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna: Vill að Arafat hætti BANDARÍKIN, AP Þeir þjóðarleiðtog- ar sem enn ræða við Yasser Ara- fat, leiðtoga Palestínumanna, eiga að þrýsta á hann að hætta. Þetta segir Condoleezza Rice, þjóðarör- yggisráðgjafi Bandaríkjaforseta. Rice sagði að þar sem Ísraelar hygðust flytja landnema frá Gaza og Vesturströndinni væri rétti tíminn fyrir Arafat að hætta af- skiptum af deilu Palestínumanna og Ísraela. Hún sagði að Arafat hefði einmitt barist fyrir að land- nemar flyttu brott og því væri nú tími kominn til þess að nýr maður leiddi palestínsku þjóðina í friðar- viðræðunum. Aðeins þannig væri mögulegt að ná einhverjum ár- angri í framtíðinni. ■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.