Fréttablaðið - 27.10.2004, Page 15
15MIÐVIKUDAGUR 27. október 2004
FÓLK Evu Ólafsdóttur, kennara á
Tálknafirði, hundleiðist í verk-
fallinu og vill að um semjist hið
fyrsta svo hún geti aftur tekið
til við að uppfræða æskuna sen
leiðist auðvitað þófið líka. Síð-
ustu vikur hefur hún reynt að
stytta sér stundir með bolta-
leikjum í íþróttahúsinu og sund-
ferðum í lauginni og að auki fer
hún í Pollinn, setlaug rétt utan
við bæinn sem er opin gestum
og gangandi, gegn góðri um-
gengni.
„Það er ofboðslega gott að
koma hingað,“ segir Eva þar
sem hún situr í lauginni og læt-
ur vetrarsólina skína á sig.
„Þetta er svo gott fyrir vöð-
vana.“ Eva fer í Pollinn þrisvar í
viku og finnst best að koma á
kvöldin og horfa á stjörnurnar.
Sé bjart lætur hún sér fögur
fjöllin nægja. „Ég hef gert þetta
síðan 1971,“ segir Eva en hún
fluttist til Tálknafjarðar það ár.
Pollurinn nýtur vinsælda, jafnt
heimamanna sem gesta og segja
elstu menn að þar hafi ýmis ævin-
týri gerst í gegnum árin. - bþs
Slakað á í verkfalli:
Stjörnur og fjöll
EVA Í POLLINUM
„Þetta er svo gott fyrir vöðvana.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HRATT BRUNAÐ Á meðan Eva slappar af
í pollinum við Tálknafjörð leika krakkarnir
sér á sleða.