Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 16

Fréttablaðið - 27.10.2004, Side 16
16 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR Heimili og skóli eru frjáls félagasam- tök og starfa óháð stjórnmálaflokk- um og trúfélögum. Samtökin voru stofnuð í september 1992 og hafa gert sig gildandi í umræðu um upp- eldis- og menntamál, meðal annars með þátttöku í opinberri umræðu og útgáfu tímarits. Mætt hefur á forystu- mönnum samtakanna að undan- förnu vegna verkfalls kennara. Fyrir hverja? Samtökin eru ætluð foreldrum og forráðamönnum grunnskólanema og eru þúsund manns skráð í samtökin. Hlutverk? Markmið samtakanna er að stuðla að bættum uppeldis- og menntunarskil- yrðum barna og unglinga og veita foreldrum og forráðamönnum þeirra ýmsa þjónustu. Þau veita stuðning og liðveislu, koma sjónarmiðum for- eldra á framfæri við yfirvöld, vinna að auknum áhrifum foreldra á skólastarf og eflingu á starfi foreldrafélaga. Á vefsíðu samtakanna, heimiliog- skoli.is, er að finna margvíslegar upp- lýsingar og meðal annars svör við al- gengum spurningum foreldra. MÁLEFNI? Auk almennra mála sem tengjast skólastarfi hafa Heimili og skóli fjall- að sérstaklega um dyslexíu og einelti. Þá hafa samtökin hvatt til varfærnis- legrar umgengni um netið og bent foreldrum á leiðir til að forðast þær ýmsu hættur sem þar kunna að leyn- ast fyrir forvitnum börnum. Hverjir stjórna? María Kristín Gylfadóttir er formaður Heimilis og skóla en með henni í stjórn sitja Halldór Levi Björnsson, Hlynur Snorrason, Kristín Þorleifs- dóttir, Maríanna Jóhannsdóttir, Árni Einarsson, Barbara Björnsdóttir, Brynja Sigfúsdóttir og Elín Thoraren- sen sem jafnframt er framkvæmda- stjóri. AUÐ KENNSLUSTOFA Í HÓLA- BREKKUSKÓLA Fjölmennur þrýstihópur Er kynbundinn launamunur til staðar? Já, það er staðreynd að konum eru al- mennt greidd lægri laun en körlum fyrir sambærileg störf. Þannig var í síðustu viku greint frá könnun sem leiddi í ljós að karlar í BHM, BSRB og KÍ eru með 17 prósentum hærri heildarlaun á mán- uði en starfsystur þeirra. Launakönnun VR fyrir árið 2003 sýndi að karlar fá 14 prósentum hærri laun en konur. Í báð- um þessum könnunum hefur verið leið- rétt fyrir vinnutíma, menntun, aldur og starf, þannig að horft er til fólks með sömu menntun við sambærileg störf. Hvers vegna fá konur lægra kaup? Ef til væri einfalt svar við þessari spurn- ingu væri einfalt að uppræta launamun- inn en því miður er málið örlítið flókn- ara en svo. Eflaust er í ein- hverjum mæli enn litið á atvinnuþátttöku kven- na sem frávik frá venju og því þurfa þær að sækja fastar að fá góð laun en karlar. Af þessari skýringu leið- ir aðra sem gerir ráð fyrir að konur séu ein- faldlega ekki nógu slyng- ar í að semja um kjör sín; ólíkt körlunum sem biðja um hærri laun en þeir búast við að fá fara kon- urnar fram á lægri upphæð og upp- skera samkvæmt því. Þessu til viðbótar eru karlar oft sagðir dug- legri við að ná sér í aukasporslur og yf- irvinnu og fá því hærri heild- arlaun þótt grunnlaun þeirra séu þau sömu og kvenn- anna. Síð- an má ekki gleyma því viðhorfi að fyrst að flestar stjórnunarstöður fyrirtækja og stofnana eru skipaðar körlum þá sé ekki við öðru að búast en að þeir verð- launi „strákana“ með góðu kaupi frekar en starfsystur þeirra. Hvað er til ráða? Margir telja að stjórnvöld eigi að axla aukna ábyrgð í þessum efnum og jafn- vel eigi að veita þeim heimildir til að krefja fyrirtæki um upplýsingar um launagreiðslur. Konur verða líka að spenna bogann hærra við samninga- borðið og bera sig saman í ríkari mæli við aðra í sambærilegum störfum. En fyrst og síðast hvílir ábyrgðin hjá þeim sem greiða launin en þeir vilja auðvitað ekki borga meira en þeir þurfa. Í því liggur jafnframt vandinn. - shg FBL GREINING: LAUNAMUNUR KYNJANNA HEIMILI OG SKÓLI HVAÐ ER? Illviðráðanlegur ófögnuður R öddin er eitt mikilvægastatæki hvers stjórnmála-manns en miklu máli skipt- ir hvernig henni er beitt. Djúpar, yfirvegaðar raddir eru meira sannfærandi en háar og spenntar. Nýleg rannsókn sýnir að raddir ís- lenskra stjórnmálaleiðtoga höfða mismikið til fólks. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri- grænna er sagður mest sannfær- andi en Guðjón Arnar Kristjáns- son, formaður Frjálslynda flokks- ins, er sístur í þessum efnum. Útlendingar í meirihluta Rannsóknina gerðu þær Ásdís Emilsdóttir Petersen og Svafa Grönfeldt en greint er frá rann- sókninni í ritinu Rannsóknir í fé- lagsvísindum V sem kom út í síð- ustu viku. Markmið hennar var að kanna hvort og með hvaða hætti raddir leiðtoga hefðu áhrif á upp- lifun áheyrenda af sannfæringar- krafti þeirra. Sautján af 28 þátt- takendum rannsóknarinnar voru af erlendum uppruna og höfðu komið til landsins nokkrum dög- um áður en hún var gerð, vorið 2003. Þeir skildu því ekki innihald þess sem þeir heyrðu í raddupp- tökum sem leiknar voru fyrir þá né þekktu þeir til forystumanna stjórnmálaflokkanna fimm sem töluðu á upptökunum. Misskýrmæltir menn Flestir þátttakendur í rannsókn- inni töldu að raddir þeirra Hall- dórs Ásgrímssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Stein- gríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri-grænna, væru áheyrileg- astar. Óáheyrilegasta röddin að mati þátttakenda var rödd Guð- jóns A. Kristjánssonar. Þeir töldu ennfremur þá Halldór og Stein- grím vera skýrmæltasta og Guð- jón jafnframt óskýrmæltastan. Það vekur athygli að munur var á mati erlendu og íslensku þátttak- endanna á rödd Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Rúmlega helmingur útlendinganna taldi þá rödd vera óskýra en svör Íslendinganna voru mun dreifðari. Þegar spurt var um raddein- kenni taldi meirihluti þátttakenda í könnuninni Davíð vera með ráma rödd og Guðjón Arnar og Össur Skarphéðinsson, formann Sam- fylkingarinnar, tala spenntum rómi. Raddirnar fimm voru jafnframt mældar með aðferðum talmeina- fræðinnar. Aðeins Halldór og Steingrímur voru sagðir tala á eðli- legum hraða, hinir þrír töluðu of hratt. Nær allir höfðu nokkuð góða stjórn á öndun miðað við fjölda orða á útöndun á mínútu, Össur þó sísta. Þegar áreynsla eða spenna raddanna voru mældar voru leið- togarnir yfirleitt innan eðlilegra marka en rödd Guðjóns Arnars var þó sögð einkennast af spennu og hæsi. Djúpar raddir sannfærandi Þær raddir sem taldar voru áheyrilegastar, skýrastar og ein- kenndust af minnstri spennu og hæsi voru jafnframt þær sömu og þátttakendur töldu vera mest sannfærandi. Skipti þá engu máli hvort viðkomandi skildi innihald þess sem sagt var í hljóðupptökun- um. Raddir Halldórs og Stein- gríms voru taldar mest sannfær- andi, síðan raddir Össurar og Dav- íðs en rödd Guðjóns þótti minnst sannfærandi. Hver er skýringin á sannfær- ingarkrafti þeirra Steingríms og Halldórs? Höfundar rannsóknar- innar benda á að þótt þeir séu oft á öndverðum meiði eigi þeir ýmis- legt sameiginlegt. Þeir eru sagðir með nokkuð djúpar raddir. Báðir eru taldir mjög áheyrilegir, skýr- mæltir og með eðlilegan radd- styrk. Þeir tala ekki of hratt og varla er að finna nokkra spennu í rödd Halldórs. Þessi einkenni eru í samræmi við skoðanir þátttakend- anna um trúverðugar raddir. Djúp- ar raddir eru taldar áheyrilegar, trúverðugar, fela í sér vald og vera sannfærandi. Rímar við trúverðug- leikakannanir Nýleg könnun Fréttablaðsins um trúverðugleika stjórnmálamanna rímar ágætlega við niðurstöður rannsóknar þeirra Ásdísar og Svöfu. Davíð Oddsson fékk þar mest fylgi enda formaður stærsta stjórnmálaflokksins. Hins vegar nutu þeir Halldór og Steingrímur mun meira trausts en fylgi flokka þeirra segir til um. Guðjón Arnar fékk slaka útkomu í könnuninni og í ljósi sterkrar stöðu Samfylking- arinnar virtust fáir treysta Össuri Skarphéðinssyni. Hvort góð rödd hafi afgerandi áhrif í þessum efn- um er erfitt að meta en engu að síður sýnir þessi rannsókn að rödd- in skiptir máli í árangri leiðtoga. sveinng@frettabladid.is Málrómur stjórnmála- manna skiptir máli Nýleg rannsókn á röddum formanna íslensku stjórnmálaflokkanna sýnir að djúpar, yfirvegaðar raddir eru mest sannfærandi. Leiðtogarnir fimm eru afar misjafnir í þessu tilliti. VEFUR VÆTTUR DÖGG Þessi bananaköngurló býr í Flórída í Bandaríkjunum en annars eru þær víða að finna. Fætur þeirra geta spannað fimmtán sentimetra og auk þess eru þær slyngir vefarar. Þótt köngurlóin sé eitruð er bit hennar sjaldan hættulegt. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Steingrímur er sá flokksformaður sem talinn er búa yfir mestum sannfæringarkrafti. DAVÍÐ ODDSSON Útlendingunum þótti Davíð tala óskýrt en Íslendingarnir skildu hann betur. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Þátttak- endum fannst Össur nokkuð sannfærandi en fullspenntur. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Varla er nokkra spennu að finna í rödd Halldórs. GUÐJÓN A. KRISTJÁNS SON Guðjón er sagður með óáheyrilegustu röddina. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.