Fréttablaðið - 27.10.2004, Page 26
Gólfin hjá Vigni Jóhannssyni
myndlistarmanni eru listaverk
og sá sem horfir oní gólf hjá
honum gerir það ekki af skömm
eða feimni heldur af einskærum
áhuga. „Ég vildi hafa þetta pers-
ónulegt frá minni hendi og með
tilvísun í mína eigin myndlist,“
segir Vignir, sem meðal annars
parkettlagði gólfin á þann veg að
það teiknar upp rýmið. „Ég bjó
lengi á meðal indíána í Nýju
Mexíkó þar sem þeir vefa teppi
af mikilli list, sem veitti mér inn-
blástur þegar ég ákvað að leggja
hluta af parkettinu þannig að það
tók á sig form gólfteppis,“ segir
Vignir.
Á baðherbergið fékk hann þá
hugmynd að notast við gler og
setja eitthvað undir það, en hann
hefur talsvert unnið með það í
verkum sínum. „Ég tók þá
ákvörðun að mála málverk undir
flísarnar svo ég sneri þeim við og
málaði verkið aftan á, en ég hef
mikið verið að mála af pollum og
vatni og var myndefnið í þá
áttina,“ segir Vignir og hefði
varla getað valið betra myndefni
á baðherbergisgólfið. Á nokkrum
stöðum má svo sjá tilvitnanir í
texta skálda og rithöfunda sem
Vignir setti einnig undir gler-
flísarnar. „Hugmyndin var að
taka inn í þetta heimspekilegar
vangaveltur, og þegar maður
situr á klósetinu getur maður séð
þessar tilvitnanir,“ segir Vignir
en Þorsteinn J. var honum innan
handar við valið á textanum og
ákvað Vignir að nota eina línu frá
Þorsteini – Sáldra flórsykri yfir
fjöllin. „Textanum er komið
þannig fyrir að best er að lesa
hann þegar setið er á klósettinu og
horft niður. Það er kjörinn staður
fyrir vangaveltur en margt gott
fæðist á klósettinu,“ segir Vignir.
27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR2
LINDA ÁSGEIRSDÓTTIR LEIKKONA
Nammiskálin í sérstöku uppáhaldi
Vangaveltur á klósettinu
Vignir Jóhannsson myndlistarmaður vann gólfin heima hjá sér með tilvísun í eigin myndlist
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
„Það sem er í sérstöku uppáhaldi hjá mér er tvær skálar eftir Margréti Jónsdótt-
ur, leirlistakonu á Akureyri,“ segir Linda Ásgeirsdóttir leikkona en hún er ekki í
neinum vafa um hvaða hlutir gefa heimilinu hennar fallegan brag. „Báðar skál-
arnar eru mjög fallegur og afskaplega ólíkar. Önnur er blá og lítil en hin er hvít
og stór. Þessi bláa er til dæmis tilvalin nammiskál og hún er notuð óspart
undir góðgæti. Af þeim sökum býr hún yfir ótrúlegu aðdráttarafli,“ segir Linda en
Margrét Jónsdóttir er í sérlegu uppáhaldi. „Margrét er mjög skemmtilegur lista-
maður og með afskaplega skemmtilegt auga fyrir fallegum hlutum. Nú dauð-
langar mig í spiladós sem hún hannaði sem er á óskalistanum. Maður þarf
reyndar að elta hana til Akureyrar því hún er með vinnustofu þar og verslun að
ég held.“
Lindu finnst gaman að skreyta heimili sitt með fallegum hlutum og er ekki í
neinum vafa um hvað heillar hana mest. „Ég hef dálæti á öllu sem tengist mynd-
list og leirlist og allt íslenskt handverk höfðar til mín. Mér finnst gaman þegar
einhver skapar og býr til eitthvað og leggur hjarta sitt í verkið. Það gerir það eitt-
hvað svo sérstakt.“
1. Ég ákvað að leggja hluta
af parkettinu þannig að það
tók á sig form gólfteppis. 2.
Rýmið er teiknað upp með
því að leggja parkettið á mismunandi
vegu. 3. Glerflís með ljóðlínu eftir
Hannes Sigfússon. 5. Gólfið er þakið
glerflísum með málverki eftir Vigni og
tilvitnanir í ljóð. 6. Vignir málaði mynd-
verk aftan á glerflísarnar og setti þar
tilvitnanir í ljóð.
HEIMILISBLAÐIÐ: UMSJÓN: Sigríður B. Tómasdóttir og Steinunn
Stefánsdóttir. HÖFUNDAR EFNIS: Brynhildur Björnsdóttir, Edda
Jóhannsdóttir, Gunnþóra Gunnarsdóttir, Kristín Eva Þórhallsdóttir, Lilja
Katrín Gunnarsdóttir, Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, Sigríður B. Tómasdóttir.
LJÓSMYND Á FORSÍÐU: Teitur Jónasson. HLUTIR Á FORSÍÐUMYND: Bíll úr
Lystadún-Marco. Motta og kollur úr Ikea. FYRIRSÆTUR: Arnar Tumi
Arnarsson, Kristín Arnarsdóttir og Tinni Teitsson. HÖNNUN: Bergdís
Sigurðardóttir. UMBROT: Frétt ehf.
Linda heldur mikið upp á tvær skálar eftir leirlistakonuna Margréti Jónsdóttur.
1
2 3 4
5 6
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
HEIMILISBLAÐIÐ