Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 48
Að vera 75 ára er tilfinning
gamals manns sem er kominn til
ára sinna, er að tapa geði og
gjörvuleik og er að eldast hvað af
tekur og nálgast gröfina,“ segir
afmælisbarn dagsins, Flosi Ólafs-
son. Eins og orð hans gefa til
kynna er hann lítt hrifinn af því að
eldast og aðspurður segist hann
ekki sérlega ánægður með eiga
eftir að deyja. „Ég kvíði því fyrir
hönd alheimsins, sjálfs mín og
minna nánustu sérstaklega því ég
veit að þeir eiga eftir að sakna mín
ótrúlega mikið.“
Í dag er opinber útgáfudagur
bókar Flosa, Heilagur sannleikur
og hann mun vera nokkuð upp-
tekinn við að lesa upp úr henni.
„Afmælisdagurinn fer í að kynna
bókina sem ég leyfi mér að líta svo
á að sé jólabókin ár,“ segir Flosi. Í
tilefni afmælis hans verður bókin
seld með 25 prósenta afslætti í
bókabúðum. „Það er spottprís
fyrir ritverk eins og þetta,“ segir
Flosi. Í bókinni tíundar Flosi sam-
skipti sín við hitt kynið í 75 ár, auk
þess sem hann fjallar almennt um
kynlíf, bæði manna og dýra. Síð-
asta bók Flosa, Ósköpin öll, var ein
af söluhæstu bókunum á síðasta
ári og engin ástæða virðist til að
ætla annað en að þessi nýja bók
muni falla í kramið hjá lesendum.
Síðustu árin hefur Flosi lítið
gert af því að halda upp á afmæli
sitt. „Það þótti meiri ástæða til
þegar maður var ekki orðinn
þorstaheftur. Þá þótt ástæða til að
stofna til mannfagnaðar við
minnstu tækifæri, jafnvel þótt
ekki væri um merkisafmæli að
ræða,“ segir afmælibarnið Flosi.
kolla@frettabladid.is
24 27. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
JOHN CLEESE
Breski háðfuglinn er 65 ára í dag.
FLOSI ÓLAFSSON ER 75 ÁRA Í DAG OG ENN UNGUR Í ANDA
„Ég á frekar auðvelt með að leika menn í
viðskiptum þar sem mér er eðlislægt að
vera litlaus, frekar grimmur og vanhæfur.“
- John Cleese getur brugðið sér í allra kvikinda líki en er sterkastur
á viðskiptasvellinu.
timamot@frettabladid.is
Sænska akademían tilkynnti á
þessum degi árið 1955 að
Halldór Kiljan Laxness hlyti bók-
menntaverðlaun Nóbels. Tilkynn-
ingin vakti að vonum mikla at-
hygli og gleði á Íslandi og þjóðin
samfagnaði Halldóri þó hann
væri enn afar umdeildur vegna
stjórnmálaskoðana sinna enda
„treystist enginn til að mótmæla
því að hann væri mesti rithöf-
undur sem Ísland hefði alið á
20.öld og þó víðar væri leitað
um söguna,“ eins og það er orð-
að í bókinni Ísland í aldanna rás.
Einstök tök Halldórs á íslenskri
tungu og fjölskrúðugar skáld-
sagnapersónur hans sem margar
hverjar öðluðust sjálfstætt líf
með þjóðinni tóku af allan vafa
um að hann væri vel að verð-
laununum kominn enda fylgdi
það ákvörðun akademíunnar að
hann hefði endurnýjað hina
miklu íslensku frásagnarlist.
Í Íslandi í aldanna rás er bent á
að Íslendingar hafi glaðst bæði
fyrir Halldórs hönd og sína eigin
þar sem það hafi verið talið
„enn eitt merkið um uppgang
hins sjálfstæða lýðveldis Íslands
að hafa nú eignast nóbelsverð-
launahöfund.“
Halldór tók við verðlaununum í
Stokkhólmi þann 10. desember
þetta sama ár.
27. OKTÓBER 1955
Sænska akademían tilkynnti að Hall-
dór Laxness hlyti bókmenntaverð-
laun Nóbels
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1858 Roland Macy opnar verslun
undir merkjum Macy’s í
New York. Þetta var átt-
unda viðskiptatilraun hans
en hinar sjö höfðu runnið
út í sandinn.
1880 Theodore Roosevelt og
Alice Lee ganga í hjóna-
band.
1904 Neðanjarðarlestakerfi New
York-borgar er tekið form-
lega í notkun.
1925 Fred Waller fær einkaleyfi
fyrir vatnaskíðum.
1954 Marilyn Monroe og hafna-
boltahetjan Joe DiMaggio
skilja en þau giftust þann
14. janúar þetta sama ár.
1978 Anwar Sadat, forseti Egypta-
lands, og Menachem Beg-
in, forsætisráðherra Ísraels,
hljóta friðarverðlaun
Nóbels fyrir tilraunir til að
stilla til friðar í löndunum
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Laxness fær Nóbelinn
Rúnar
Geirmundsson
Sigur›ur
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Síðastliðin 14 ár höfum við feðgar aðstoðað
við undirbúning útfara.
Símar 567 9110, 893 8638 og 897 3020
Þegar andlát ber að
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Katrín Gísladóttir
Álfaskeiði 64, Hafnarfirði
lést á St. Jósepsspítala Hafnarfirði laugardaginn 23. október sl.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 29. október
kl. 13.30.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir afi og langafi,
Kristján Björn Guðmundsson
Frá Ísafirði. Grandavegi 47, Reykjavík
lést á Vífilsstöðum sunnudaginn 24. október.
Fyrir hönd aðstandenda
Ólafur G. Kristjánsson, Svanborg Eyþórsdóttir, Sigurbjörn E. Kristjáns-
son, Erla Kjartansdóttir, Rolf Kristjánsson, Ellý A. Kristjánsdóttir,
Kristjana Kristjánsdóttir, Snorri Kristinsson, barnabörn og barnabarna-
börn.
Okkar hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Odds Jakobs Bjarnasonar
Engjavegi 20, Ísafirði
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks krabbameinsdeildar
Landspítalans við Hringbraut deild 11E. Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Jónsdóttir, Helga Oddsdóttir, Jón B. Oddsson, G. Valdís Ólafs-
dóttir, Guðrún Oddsdóttir, Hörður Þór Ástþórsson, Oddný Kristín
Oddsdóttir, Hákon Þorleifsson, Viðar Ingi Oddsson, Björg Leósdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Spennandi verkefni framundan
Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar
réð í gær Björn Inga Sveinsson í
stöðu sparisjóðstjóra, en Björn
sem er menntaður Verkfræðingur
hefur gegnt stöðu borgarverk-
fræðings í Reykjavík frá árinu
2003. „Ég held að þetta sé
skemmtilegt tækifæri, gott fyrir-
tæki og mikil áskorun er framund-
an á þessum markaði sem ég ætla
mér að beita mér í að leysa vel,“
segir Björn Ingi sem starfaði sem
verkfræðingur í ein tíu ár í Banda-
ríkjunum og var tæknilegur fram-
kvæmdastóri verkfræðifyrirtækis
í rúm 6 ár eftir það og varð þá for-
stjóri vélaframleiðslufyrirtækis,
en 1999 gerðist hann forstjóri
verkfræðistofunnar Hönnunar í
Reykjavík áður en hann tók við
embætti borgarverkfræðings. „Ég
hef ekki mikið verið í verkfræð-
inni sem slíkri því starf mitt hefur
meira tengst rekstri, ég hef auðvit-
að verið mikið í stjórnunarstöðum
en ég er viss um að hjá Sparisjóðn-
um er mikið af hæfu starfsfólki
sem kann marga hluti miklu betur
en ég,“ segir Björn Ingi sem sjálf-
ur er búsettur í Hafnarfirðinum og
á ættir sínar að rekja þangað að
hluta til. „Það er nóg fyrir mig að
hugsa framundan en ég þarf að
skila af mér stóru verkefni sem ég
er að sinna fyrir Reykjavíkurborg.
Svo vil ég bara draga andann og
setja mig inn í mál Sparisjóðsins
og kynnast þessu ágæta fólki sem
ég kem til með að starfa með,“ seg-
ir Björn Ingi að lokum. ■
BJÖRN INGI SVEINSSON Borgarverkfræðingur í Reykjavík mun taka við stöðu Spari-
sjóðsstjóra Hafnarfjarðar um áramótin. „Ég held að þetta sé skemmtilegt tækifæri, gott
fyrirtæki og mikil áskorun er framundan á þessum markaði sem ég ætla mér að beita
mér í að leysa vel.“
Jólabók á afmælisdaginn
FLOSI ÓLAFSSON Afmælisdag-
urinn fer í að kynna nýja bók.
Tilkynningar um andlát og jarðarfarir
eru velkomnar á síður Fréttablaðsins.
Sími: 550 5000
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/STEFÁN