Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 27.10.2004, Blaðsíða 57
MIÐVIKUDAGUR 27. október 2004 Bókaforlagið Bjartur hefur gefið útspennusöguna Englar og djöflar eftir Dan Brown í ís- lenskri þýðingu Karls Emils Gunnarsson- ar. Áður hefur Bjartur gefið út eftir sama höfund Da Vinci lyk- ilinn en báðar þessar bækur hafa notið fá- dæma vinsælda um allan heim að und- anförnu. Líkt og í Da Vinci lyklinum er Robert Langdon aðalpersónan í Englum og djöflum. Hann er boðað- ur með skömmum fyrirvara til Sviss að rannsaka vettvang óhugnanlegs morðs á þekktum vísindamanni. Fyrr en varir er hann flæktur inn í alda- langar erjur kaþólsku kirkjunnar og leynifélagsins Illuminati sem hefur í hyggju að valda usla í páfagarði. Bókaforlagið Bjartur hefur gefið útDanteklúbburinn eftir Matthew Pearl, í íslenskri þýðingu Árna Ó s k a r s s o n a r . Sagan gerist í Boston árið 1865. Nokkrir af nafn- toguðustu bók- menntamönnum B a n d a r í k j a n n a taka höndum saman um að koma Hinum guðdómlega gleði- leik ítalska skáldsins Dantes út á ensku. Valdamiklir einstaklingar inn- an Harvard-háskóla sjá fyrirætlan þessari hins vegar allt til foráttu og málin flækjast enn frekar þegar hefst röð morða þar sem morðing- inn virðist sækja sér innblástur til lýsingar Dantes á Víti. Hjá Máli og menningu er HótelKalifornía eftir Stefán Mána komin út í kilju. Bókin kom fyrst út árið 2001 og var meðal annars sögð „Óvæntasta uppgötvun ársins“ og „meinfyndin bók“. Hótel Kalifornía fjallar um sein- heppna verkamann- inn Stefán sem drekkur brennivín í pepsí með vinum sínum þegar hann vill skemmta sér og á frábært safn af rokkplötum. Áform hans eru einföld: Að halda áfram að vinna og eignast kærustu. En í samfélagi þar sem hversdagsleikinn hefur breyst í óhugnað verða einfaldar óskir ótrú- lega flóknar. NÝJAR BÆKUR Nýtt íslenskt leikrit. Gaman. Hér er enginn viðvaningur á ferð. Hlín Agn- arsdóttir tekur íslenskan samtíma, flettir honum sundur eins og lauk og þegar innsta laginu sleppir kemur í ljós að þar er enginn kjarni. (,,Hún náttúra er hnyttin,“ segir Pétur Gautur í samnefndu leikriti þegar hann er bú- inn að flysja allan laukinn.) Þær systur hræsni og blekking eru afhjúpaðar og tilgangur leiksins verður ljós: ,,Að sýna dyggðinni svip sjálfrar sín, forsmáninni líkingu sína og tíð vorri og aldarhætti mynd sína og mót.“ (W. Shakespeare. Þýð: Helgi Hálfdanarson.) Leikritið kemur okkur við. Leiktext- inn sem slíkur er vel meitlaður og Hlín tekst að draga disfúnksjónalisma (van- virkni+meðvirkni) innan einnar fjöl- skyldu sundur og saman í háði án þess nokkurn tíma að missa sjónar á hinu harmræna í mannlegum sam- skiptum. Hér er allt til staðar sem prýða má góða sögu. Breyskar mann- eskjur í kröppum dansi sem reyna allt hvað þær geta til að láta allt líta út fyrir að vera gott, en leyndarmálin mara í hálfu kafi og bíða þess eins að komast upp á yfirborðið. Leikararnir skila góðu verki. Þrúður Vilhjálmsdóttir býr yfir miklum sprengikrafti sem hún notar miskunn- arlaust til að sveifla hinni stressuðu og meðvirku Rebekku upp og niður til- finningaskalann þar sem sárindin og niðurlægingin renna inn í eina alls herjar örvæntingu. Hún er á mörkum þess að kafkeyra persónuna í óhemjulátunum en það gengur upp. Elma Lísa fer aðra leið með Rut sem notar áfengi og sambandsfíkn sem leið út úr sínum vanda og með hóf- stilltari leik nær hún að skapa persónu sem áhorfandinn skilur og hefur sam- úð með. Vel gert hjá Elmu Lísu. Arndís Hrönn Egilsdóttir leikur hálfsysturina Rakel sem hefur verið utangarðs allt þar til hún slær í gegn sem rithöfund- ur. Arndísi tekst sérlega vel að túlka persónu sem kvelst af þörfinni fyrir viðurkenningu og þegar hið skelfilega leyndarmál lífs hennar verður ljóst er ekki verið að velta því upp úr eggi og raspi heldur er áhorfendum látið eftir að geta í eyðurnar. Þá er ótalinn eini karlleikari sýning- arinnar, Hjálmar Hjálmarsson í hlut- verki föðurins Tómasar. Faðirinn er aðalhreyfiafl sögunnar sem sögð er á sviðinu. Það er gaman að sjá Hjálmar á leiksviði að fást við alvöru hlutverk. Hann hefur þá kosti sem þarf til að túlka Tómas, kvikmyndagerðarmann og lífskúnstner. Hjálmar sýnir sjálfs- ánægjuna og yfirlætið sem einkennir persónuna en einnig sést glitta í hið lítilmótlega, tvöfeldnina og vanhæfn- ina til að hlúa að sínum nánustu. Eink- um fannst mér Hjálmar eiga falleg augnablik í þau skipti sem persónan Tómas neyðist til að líta í eigin sálar- spegil. Heildarsvipur sýningarinnar ein- kennist af einföldum lausnum og er það vel. Stöku sinnum fannst mér leik- stjórinn falla í óþarfa freistni að útskýra fyrir áhorfendum hvað hann væri að fara í stað þess að treysta textanum. Flott músík og fín vinna hjá Rebekku Ingimundar en ég veit ekki með allan dansinn á milli atriða. Ég hefði bara treyst leikritinu. Sannleikurinn er stundum falinn í helgiskríni einfald- leikans. ■ LEIKLIST VALGEIR SKAGFJÖRÐ Iðnó Faðir vor eftir Hlín Agnarsdóttur Leikarar: Arndís Hrönn Egilsdóttir / Elma Lísa Gunnarsdóttir / Hjálmar Hjálmarsson / Þrúður Vilhjálmsdóttir / Leikmynd og búningar: Rebekka A. Ingimundardóttir / Danshöfundur: Jóhann Freyr Björgvins- son /Tónlist: Hallur Ingólfsson / Ljósa- hönnun: Jón Þorgeir Kristjánsson/Leik- stjóri: Agnar Jón Egilsson. Hvað kemur okkur við? LEIKRITIÐ KEMUR OKKUR VIÐ Breyskar manneskjur í kröppum dansi sem reyna allt hvað þær geta til að láta allt líta út fyrir vera gott.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.