Fréttablaðið - 30.10.2004, Síða 4
4 30. október 2004 LAUGARDAGUR
Samkeppnisráð:
Skeljungur greiði sektina að fullu
VERÐSAMRÁÐ Olíufélögin þrjú buðu
öll Samkeppnisstofnun aðstoð við
að ljúka rannsókn verðsamráðs-
ins. Stjórnarmenn Essó riðu á
vaðið nokkrum mánuðum eftir
húsleit Samkeppnisstofnunar í
húsakynnum olíufélaganna árið
2001. Í kjölfarið óskuðu Olís og
Skeljungur einnig eftir að veita
aðstoð.
Fyrirtæki sem veita upplýsing-
ar sem fela í sér mikilvæga viðbót
við þau sönnunargögn sem Sam-
keppnisstofnun hefur þegar í fór-
um sínum geta fengið sekt lækk-
aða. Fyrsta fyrirtækið sem leitar
samstarfs við Samkeppnisstofnun
og uppfyllir skilyrði fyrir lækkun
sektar getur fengið hana lækkaða
um 30-50%, annað fyrirtækið um
20-30% og önnur fyrirtæki um
allt að 20%. Það var mat sam-
keppnisráðs að Essó hafi látið
Samkeppnisstofnun í té upplýs-
ingar sem réttlætti að sektarupp-
hæð félagsins sé lækkuð um 45%
og verði 605 milljónir króna. Sekt-
arupphæð Olís lækkar um 20% og
verður 880 milljónir. Samkeppnis-
ráð mat þá aðstoð sem Skeljungur
kvaðst tilbúinn til að veita, fela
ekki í sér viðbót við þau sönnun-
argögn sem þegar voru fyrir
hendi. Því mun félagið greiða sekt
upp á 1,1 milljarð króna að fullu.
- ghg
Um 500 tilvik um
ólögmæt samráð
Umfangsmestu rannsókn samkeppnisyfirvalda er lokið. Olíufélögin sektuð fyrir ólögmæt
samráð. Félögin skiptu á milli sín fyrirtækjum og svæðum.
VERÐSAMRÁÐ Með ákvörðun sam-
keppnisráðs um ólögmætt samráð
olíufélaganna lauk umfangsmestu
rannsókn sem samkeppnisyfir-
völd hafa tekist á hendur. Hún
hófst með húsleit í aðalskrifstof-
um olíufélaganna 18. desember
2001, eftir að Samkeppnisstofnun
fékk vísbendingu um að ýmis
háttsemi félaganna stangaðist á
við samkeppnislög. Þá var lagt
hald á mikið af gögnum og fljót-
lega komu í ljós sterkar vísbend-
ingar um að olíufélögin hefðu haft
með sér samráð um langt skeið.
Í niðurstöðu samkeppnisráðs
segir að forstjórar félaganna
þriggja hafi hist í september 1991
til að koma sér saman um tilboð
vegna útboðs Herjólfs í Vest-
mannaeyjum á olíuviðskiptum. Á
næstu misserum hafi þeir hist
nokkrum sinnum og rætt ýmis
mál sem vörðuðu verðlagningu,
álagningu, tilboð og fleira. Á árun-
um 1990 til 1993 hafi myndast
grunnurinn að því margþætta
ólögmæta verðsamráði sem ein-
kenndi reksturinn að minnsta
kosti þar til í desember 2001.
Til að framkvæma samráðið
hafi olíufélögin átt í tíðum og
skipulögðum samskiptum sín á
milli. Fyrir utan fundi forstjór-
anna hafi verið skipst á orðsend-
ingum og upplýsingum sem vörð-
uðu samráð í tölvupósti, símtölum
eða símbréfum. Í samantekt Sam-
keppnisstofnunar, sem er ekki
tæmandi, koma fram um 500 til-
vik ólögmæts samráðs.
Olíufélögin bera því við að
vegna ónógrar kynningar á sam-
keppnislögum hafi stjórnendum
þeirra ekki verið ljóst að þeir
væru að brjóta samkeppnislög.
Þetta stenst ekki skoðun að mati
samkeppnisráðs því gögn sýni að
skipulega hafi verið reynt að
hylma yfir samráðin. Það hafi
meðal annars verið gert með orð-
sendingum um að menn skyldu
eyða tölvupósti eftir lestur. Þá
hafi átt að afhenda samráðsgögn
„yfir borð“ í stað þess að senda
þau með símbréfi.
Eldsneytiskostnaður vegur
þungt í rekstrarkostnaði ýmissa
atvinnugreina og nemur um fjór-
um prósentum af útgjöldum al-
mennings. Að mati samkeppnis-
ráðs höfðu olíufélögin samvinnu
um að hækka álagningu í þessum
viðskiptum. Félögin hafi einnig
haft samvinnu um að draga úr af-
slætti og leggja gjöld á viðskipta-
vini. Ýmiss konar önnur samráð
hafi verið milli félaganna, jafnvel
voru höfð samráð um jólagjafir til
starfsmanna og styrki vegna sjó-
mannadagsins.
Í niðurstöðu
samkeppnisráðs
segir að frá gildis-
töku samkeppn-
islaganna árið
1993 hafi olíufé-
lögin haft með sér
samráð um gerð
tilboða. Þegar við-
skiptavinirnir hafi
freistast til þess
að lækka hjá sér
eldsneytiskostnað
hafi olíufélögin
búið svo um hnút-
ana að tilraunir þeirra urðu ár-
angurslitlar. Samráð um gerð til-
boða hafi átt að viðhalda markað-
skiptingu félaganna og treysta af-
komu þeirra.
Samkeppnisráð tekur dæmi af
Landhelgisgæslunni og Reykja-
víkurborg sem áttu í mörg hund-
ruð milljóna króna viðskiptum við
olíufélögin. Þau hafi hins vegar
komið sér saman um hvaða verð
þau myndu bjóða og hvert þeirra
fengi söluna. Samkomulag hafi
verið um að það félag sem fengi
söluna skipti hagnaði af sölunni
með hinum olíufélögunum. Sam-
ráð sem þetta var meðal annars
viðhaft í viðskiptum við ÍSAL,
dómsmálaráðuneytið, Vegagerð-
ina og Norðurál.
Olíufélögin gripu til margs
konar aðgerða í því skyni að skip-
ta á milli sín markaðinum að
mati samkeppnisráðs.
Lengst af tímabilinu hafi
verið í gildi samningur sem
kvað á um að olíufélögin
myndu hvorki stuðla að né
koma á viðbótarsölustöðum
né smásöludælum á ákveðn-
um stöðum nema að fengnu
samþykki hinna félaganna.
Á grundvelli þessa samn-
ings hafi olíufélögin skipt
með sér markaðinum, með-
al annars í tengslum við
samrekstur bensínstöðva
víða um land. Þau hafi séð
til þess að ekki kæmi til
samkeppni á milli þeirra á
tilteknum stöðum og sporn-
að í sameiningu gegn því að við-
skiptavinir úti á landi nytu af-
slátta eða lækkaðs verðs þegar
tekin var upp sjálfsafgreiðsla á
bensínstöðvum. Dæmi um það
væri samkomulag um að Skelj-
ungur skyldi sitja einn að rekstri
bensínstöðvar í Grindavík um
fimm ára skeið. Þá hafi olíufélög-
in skipt með sér einstökum við-
skiptavinum. Sem dæmi eru
nefnd fyrirtæki eins og SR-mjöl,
útgerðarfélagið Jökull á Raufar-
höfn, ÍSAL og Kísiliðjan.
ghg@frettabladid.is
Viðskiptaráðherra:
Fagnar lokum
rannsóknar
VERÐSAMRÁÐ Ólöglegt samráð verð-
ur ekki látið viðgangast að sögn
Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra. Hún segist
vera ánægð með að rannsókn Sam-
keppnisstofnunar skuli vera lokið.
„Þetta er mikil rannsókn og sú
mesta í okkar sögu. Niðurstaðan er
skýr. Þarna hefur verið sannað að
ólöglegt samráð var haft milli
fyrirtækja. Enda hafa fyrirtækin
sjálf viðurkennt það.“
Valgerður vildi ekki tjá sig um
einstök málsatriði enda telur hún
víst að málið fari til úrskurðar-
nefndar samkeppnismála og lík-
lega þaðan til dómstóla. - ghg
Á Þórólfur Árnason að leiða R-
listann í næstu kosningum?
Spurning dagsins í dag:
Er verkfalli kennara lokið?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
38,7%
61,3%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Samkeppnisráð:
Kristinn sló
tóninn
VERÐSAMRÁÐ Kristinn Björnsson,
fyrrverandi forstjóri Skeljungs,
setti fyrstur fram það viðhorf að
ekki væri æskilegt
að stunda of harða
samkeppni á olíu-
markaðinum. Þetta
kemur fram í nið-
urstöðu samkeppn-
isráðs. Skömmu
eftir að Kristinn
tók við sem for-
stjóri um mitt ár 1990, sló hann
þann tón sem að mati ráðsins ein-
kenndi alla samkeppni á olíu-
markaði í rúman áratug þar á eft-
ir.
Nýir forstjórar tóku við hjá
Essó árið 1991 og í Olís árið 1993.
Telur samkeppnisráð að þessir
nýju stjórnendur hafi ákveðið að
nýta nýfengið viðskiptafrelsi til
að takmarka samkeppni milli fé-
laganna í þeim tilgangi að bæta
hag þeirra á kostnað almennings
og annarra fyrirtækja.
Kristinn Björnsson vildi ekki
tjá sig um málið. - ghg
Lögmaður Skeljungs:
Áfrýja
úrskurði
VERÐSAMRÁÐ „Það eru lagaleg at-
riði í ákvörðun ráðsins sem þarfn-
ast útskýringa og svo teljum við
sönnunarkröfur engan veginn
uppfylltar,“ segir Hörður Felix
Harðarson, lögmaður Skeljungs.
„Við töldum að ekki hefði verið
gætt að andmælarétti og auk þess
séu meint brot orðin fyrnd. Á
þetta var hins vegar ekki fallist.“
Þá segir Hörður ekki forsendur til
að tengja sektir við veltu eins og
samkeppnisráð geri.
Hann segir að ákvörðuninni
verði skotið til áfrýjunarnefndar
samkeppnismála innan fjögurra
vikna. Þá hefur nefndin sex vikur
til að ljúka málinu. - ghg
SKELJUNGUR
Skeljungur bauðst til að aðstoða við rann-
sókn á verðsamráði olíufélaganna. Sam-
keppnisráð taldi enga viðbót felast í að-
stoðinni og gerir því félaginu að greiða
sektina að fullu.
HÚSLEIT HJÁ OLÍU-
FÉLÖGUNUM
Fjöldi fólks tók þátt í húsleit
Samkeppnisstofnunar í að-
alskrifstofum olíufélaganna
18. desember 2001. Niður-
staða samkeppnisyfirvalda
liggur nú fyrir.
NIÐURSTÖÐUR
SAMKEPPNISRÁÐS
Er í tveimur bindum,
alls 996 blaðsíður.
KRISTINN
BJÖRNSSON