Fréttablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 2
2 15. nóvember 2004 MÁNUDAGUR
Bush og Blair funduðu í Hvíta húsinu:
Ný tækifæri hafa opnast
BANDARÍKIN George W. Bush
Bandaríkjaforseti og Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands,
segja að ný tækifæri hafi opnast
til að koma á friði í Mið-Austur-
löndum.
Þessir tveir valdamiklu leið-
togar lýstu þessu yfir eftir fund
sinn í Hvíta húsinu. Var þetta
fyrsti opinberi leiðtogafundur
Bush síðan hann var endurkjörinn
í forsetaembættið. Bush sagði að
líkurnar á því að stofnað yrði
sjálfstætt palestínskt ríki innan
fjögurra ára væru ágætar. Að
sögn Blair þarf fyrst að kjósa
nýjan leiðtoga í stað Jassers Ara-
fat, sem lést á dögunum.
„Ef við viljum öflugt palest-
ínskt ríki verðum við að sjá til
þess að traust pólitísk og efna-
hagsleg yfirbygging þjóðarinnar
verði að veruleika,“ sagði Blair.
Bush vottaði Palestínumönnum
samúð sína eftir að hafa misst
leiðtoga sinn en vonaðist á sama
tíma til að nýr leiðtogi gæti haft í
för með sér breytta tíma.
Svo gæti farið að Colin Powell
heimsæki Mið-Austurlönd á
næstunni í von um að miðla mál-
um á svæðinu. Bush stefnir hins
vegar að því að fara í Evrópu-
reisu á næstunni til að fjölga
samherjum Bandaríkjamanna í
heimsálfunni. ■
Rannsókn á dauða
Danans er lokið
Sá sem veitti danska hermanninum banahögg á veitingastað í Keflavík
aðfaranótt laugardags hefur játað. Lögreglan segir tildrög voðaatburð-
arins liggja fyrir og er rannsókn málsins lokið.
MANNSLÁT Tæplega þrítugur Skoti,
búsettur hér á landi, hefur játað
að hafa slegið danska hermanninn
Flemming Tolstrup í höfuðið á
skemmtistaðnum Traffic í Kefla-
vík aðfaranótt laugardags. Dan-
inn missti meðvitund við höggið
og lést skömmu síðar. Skotinn var
látinn laus klukkan hálf þrjú í gær
en hann hafði ver-
ið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til
dagsins í dag.
Karl Her-
mannsson, yfir-
lögregluþjónn í
Keflavík, segir at-
burði ljósa að
öðru leyti en því
að dánarorsök
liggur ekki fyrir.
Hann segir fram-
burði Skotans
bera saman við frásögn annarra vitna. „Við telj-
um upplýst hvernig þetta atvikað-
ist og ekki er þörf á að rannsaka
það frekar,“ segir Karl. Aðspurð-
ur segir Karl svo virðast sem
Skotinn hafi slegið Danann einu
sinni. Krufning verður gerð í dag.
Vitni hafa verið yfirheyrð. Þau
sögðu Skotann hafa slegið Flemm-
ing einu höggi í höfuðið. Þegar
það gerðist stóðu þeir við bar veit-
ingastaðarins. Eftir höggið gekk
Skotinn út af staðnum. Flemming
var á veitingastaðnum ásamt
tveimur félögum sínum úr danska
hernum. Lögreglan handtók Skot-
ann skömmu síðar á heimili hans í
Keflavík og var hann talsvert ölv-
aður. Samkvæmt heimildum
blaðsins er talið að afbrýðisemi
hafi truflað Skotann, en vitni
segja danska hermanninn hafa
gert sér dælt við unnustu Skotans.
Flemming var hér á landi
ásamt sex félögum sínum úr
danska hernum. Að sögn Lise
Lotte Hafsteinsson, aðstoðarræð-
ismanns Dana hér á landi, fóru
hermennirnir heim í gær, degi síð-
ar en til stóð, með viðkomu á
Grænlandi en þangað var ferðinni
heitið. Lise segir hlutverk sendi-
ráðsins að hlúa að félögum
Flemmings, sem fengu áfalla-
hjálp. Þá hafi sendiráðið látið
danska utanríkisráðuneytið vita
af voveiflegum dauða Flemmings.
hrs@frettabladid.is
Bandarískir dómstólar:
Dauðadóm-
um fækkar
WASHINGTON, AP Þrjátíu ár eru liðin
síðan jafn fáir einstaklingar voru
dæmdir til dauða í Bandaríkjun-
um og á síðasta ári. Alls fengu 144
manneskjur í 25 ríkjum dauða-
dóm í fyrra. Var það þriðja árið í
röð sem slíkum dómum fækkaði í
landinu.
Andstæðingar dauðarefsinga
segja að þessar tölur sýni hversu
tortrygginn almenningur sé orðinn
gagnvart þeim. Margir fangar hafa
til dæmis verið dæmdir ranglega
til dauða eftir að ný sönnunargögn
hafa komið í ljós. Á síðasta ári voru
3.374 fangar á dauðadeild í Banda-
ríkjunum, 188 færri en árið 2002. ■
Í gæsluvarðhaldi:
Játuðu
smyglið
FÍKNIEFNI Hollensk kona og þrítug-
ur maður hafa játað innflutning á
200 til 300 grömmum af kókaíni.
Lögreglan vill ekki staðfesta
magn efnisins að svo stöddu.
Konan var með kókaínið í leg-
göngum sínum á leið til landsins.
Maðurinn var handtekinn eftir
að hann tók við kókaíninu á hóteli,
en konan átti bókaða gistingu þar.
Fyrir liggur í málinu að konan
flutti fíkniefnin innvortis. Hún
kom með flugi frá Hollandi, eftir
millilendingu í Kaupmannahöfn,
um miðjan dag á föstudag. Talið
er víst að konan hafi verið burðar-
dýr sem átti að fá greitt fyrir að
flytja efnin á milli landa. Hún á
mann og tvö börn í Hollandi og
hefur ekki gerst brotleg áður svo
vitað sé. Við húsleit á heimili
mannsins fannst á þriðja hundrað
gramma af hassi. Bæði konan og
maðurinn voru úrskurðuð í
tveggja vikna gæsluvarðhald á
laugardag. - hrs
■ MIÐ-AUSTURLÖND
,,Við telj-
um upplýst
hvernig
þetta atvik-
aðist og
ekki er þörf
á að rann-
saka það
frekar.
„Já, hún er að minnsta kosti meira
mál en hægt er að slá máli á.“
Kári Kaaber vinnur hjá Íslenskri málstöð við að
svara spurningum um hvaðeina sem komið getur
upp í sambandi við rétta notkun á íslenskunni
okkar góðu. Dagur íslenskrar tungu er einmitt á
morgun, 16. nóvember, og því um að gera að
vanda mál sitt og hringja í Kára ef upp koma
einhver vafaatriði.
SPURNING DAGSINS
Kári, er íslenskan mikið mál?
LEIDDUR Í BURTU
Mahmud Abbas er hér leiddur í burtu af
öryggisvörðum eftir skotárásina í gær.
Mahmud Abbas í hættu:
Tveir skotnir
til bana
GAZA-BORG Tveir meðlimir örygg-
issveita Palestínu voru skotnir til
bana þegar Mahmud Abbas, leið-
togi öryggisráðs Palestínu, heim-
sótti tjald sem hafði verið sett upp
í Gaza-borg til minningar um
Jasser Arafat, fyrrum leiðtoga
Palestínumanna.
Fjórir til viðbótar særðust í
árásinni en Abbas, sem var um-
kringdur öryggisvörðum, slapp
með skrekkinn.
Abbas var nýkominn til Gaza-
borgar til að taka á móti samúðar-
kveðjum vegna fráfalls Arafats,
sem lést í París á fimmtudag. ■
HÓTA LOFTÁRÁSUM Hassan
Nasrallah, leiðtogi Hezbollah-
samtakanna, sagði að samtökin
gætu nú gert loftárásir á skot-
mörk hvar sem er í Ísrael. Hann
sagði samtökin ráða yfir ómönn-
uðum flugvélum sem mætti nota
til að varpa sprengjum á her-
stöðvar og flugvelli.
E-TÖFLUR Í OFNI Lögreglan í
Ástralíu handtók tvo menn eftir
að hafa fundið þrjár milljónir e-
taflna í 62 pokum í ofnskúffu
bakaraofns sem talið er að hafi
komið til landsins frá Póllandi
gegnum Þýskaland. Ekki hafa
áður fundist svo margar e-töflur
þar í landi. Verði mennirnir
dæmdir eiga þeir yfir höfði sér
afar þunga refsingu.
Mannslátið:
Félagar Skotans
eru niðurbrotnir
MANNSLÁT Félagar Skotans sem
veitti danska hermanninum
Flemming Tolstrup banahögg að-
faranótt laugardags segjast niður-
brotnir.
„Við erum niðurbrotnir yfir
þessu en við stöndum allir með
honum. Hann er góður og traust-
ur félagi,“ sagði einn mannanna.
Þeir segjast ákveðnir að gera allt
sem þeir geta til að styðja félaga
sinn á erfiðum tímum, en eins og
fram hefur komið hefur Skotinn
játað að hafa veitt höggið afdrifa-
dríka. - hrs
BUSH OG BLAIR
George W. Bush og Tony Blair funduðu í
Hvíta húsinu um ástandið í Mið-Austur-
löndum.
AP
/M
YN
D
AP
/M
YN
D
TRAFFIC
Skotinn sló danska hermanninn
við barinn á skemmtistaðnum. M
YN
D
/A
TL
I M
ÁR
G
YL
FA
SO
N
FLEMMING TOLSTRUP
Danski hermaðurinn sem lét lífið á skemmti-
stað í Keflavík aðfaranótt laugardags.
TRAFFIC Í KEFLAVÍK
Lögreglan segir svo virðast sem Daninn hafi fengið eitt högg á höfuðið. Krufning verður í dag.
M
YN
D
/V
ÍK
U
R
FR
ÉT
TI
R
Heilbrigðisráðherra
Frakklands:
Ekki eitrað
fyrir Arafat
PARÍS, AP Philippe Douste-Blazy,
heilbrigðisráðherra Frakklands,
segir enga ástæðu til að ætla að
eitrað hafi verið fyrir Jasser Ara-
fat, forseta Pal-
estínu, sem lést
á sjúkrahúsi í
París síðastlið-
inn fimmtudag.
Arafat var
skoðaður í bak
og fyrir á
sjúkrahúsinu.
Kom í ljós að lít-
ið var af rauðum
blóðkornum í
líkama hans. „Ekkert bendir til
þess að það hafi verið eitrað fyrir
honum,“ sagði Blazy. „Annars
hefðu dómsyfirvöld tekið málið í
sínar hendur.“ Arafat hafði verið
heilsutæpur í mörg ár áður en
hann lést. ■
Vesturlandsvegur:
Þriggja bíla
árekstur
LÖGREGLA Harður þriggja bíla
árekstur varð við Lyngholt á milli
Akraness og Borgarnes um klukk-
an sex í gær. Á meðan lögregla
var á vettvangi fóru tveir bílar,
sem komu að, út af og þurfti að
flytja einn farþeganna á sjúkra-
húsið á Akranesi.
Árekstur bílanna þriggja var
þegar ökumaður bíls sem kom að
norðan missti stjórn á bílnum
þannig að hann lenti þvert á veg-
inum og fyrir bíl sem kom úr
gagnstæðri átt. Sá kastaðist síðan
á þriðja bílinn. Minniháttar
meiðsl urðu í árekstrinum en
tveir bílanna eru gjörónýtir. - hrs
JASSER ARAFAT
■ EYJAÁLFA