Fréttablaðið - 27.08.2004, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Jæja
Nú eru peningarnir farnar aðvaxa á trjánum aftur á Ís-
landi. „Offramboð af peningum,“
sagði hagfræðingur í samtali við
eitthvert dagblaðið í vikunni og
maður sér hreinlega fyrir sér að
einhvers staðar liggi hrúga af pen-
ingaseðlum og klinki, kannski í
einhverjum tanki einhvers staðar,
eins og hjá Jóakim frænda. Nú er
bara spurning um að koma þessum
peningum einhvern veginn í gagnið.
JÚ JÚ. Það er vissulega mjög
ánægjulegt vandamál, að það sé of
mikið af peningum, ef satt er.
Maður finnur líka peningalyktina.
Alls staðar eru framkvæmdir.
Byggingar rísa út um allt. Heil
borg í Grafarholti. Bryggjuhverfi
í Garðabæ. Og þá er bara að auka
hjónaskilnaði til þess að fylla upp
í allar þessar íbúðir. Skipta liði. Ég
sé ekki aðra leið. Nema auðvitað
Íslendingar séu fleiri en þeir segj-
ast vera, sem er reyndar dálítið
sem mig hefur lengi grunað en
aldrei fengið staðfest. Ég held við
séum í raun og veru milljón.
SEI SEI JÁ. Að minnsta kosti er
engu líkara en við séum milljón
þegar maður lítur líka á allar
gatnaframkvæmdirnar sem nú
standa yfir. Maður kemst ekki í
sund lengur án þess að taka ótal
hjáleiðir vegna malbikunar á stétt-
um. Hljómar eins og martröð, en
ég var hálftíma að komast út úr
Hafnarfirði í gær vegna einhverra
framkvæmda við Reykjanesbraut.
Þýskur félagi minn varð forviða á
þessu öllu um daginn. Hló eins og
geðsjúklingur. Engu líkara en
Ísland sé í endurbyggingu, sagði
hann. Gott ef þetta minnti hann
ekki á Austur-Berlín eftir samein-
inguna við vestrið.
ÞAÐ HELD ég nú. Góðæri, taka
tvö. Búið að opna Rex aftur og
menn geta farið að draga fram
jakkafötin sín og brokkað niður
eftir til þess að tékka á því hvort
vindlarnir séu þar ennþá, sem þeir
skildu eftir í lok síðustu upp-
sveiflu. Líklega eru þeir orðnir
þurrir, en hva. Það má púa þá. Og
horfa á þá brenna. Og brenna. En
núna á einungis 4,4 prósent vöxt-
um, sem er mun betra en síðast. ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
56 (48) Bak 26.8.2004 22:30 Page 2