Tíminn - 13.09.1973, Síða 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SIMI: 26660
RAFIÐJAN SIMI: 19294
c
212. tölublað — Fimmtudagur 13. september — 57. árgangur
Hálfnað
erverk
þá hafið er
I
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Raflína í Bláfjöll:
Skíðalyftur og flóð-
lýsing næsta vetur
ílftc..,.
L,' -
Vatn ahœð
VIOSFELLSHREPPUR
. /&'
r~ HV£RA QALA 4/V<*A
# ..
^ . -- '“’i
^ cSéS
-d [
EJ-Reykjavik. — í þessari viku
hófst. vinna við lagningu raf-
magnslinu 10,2 kilómetra leið upp
uð skfðaskálanum i BiáfjöUum.
Stefnt er að þvi að Ijúka verkinu
á um tveim inánuðum, og skapast
þá alveg ný aðstaða á þcssu vin-
sæla skiðasvæði höfuðborgarbúa,
þar sem hægt verður að setja upp
bæði rafknúnar skiðalyftur og
flóðlýsingu.
Blaðamaður Timans hafði i gær
samband við Matthias Matthias-
son, yfirverkstjóra hjá Raf-
magnsveitu Reykjavikur, og
spurði hann nánar um Bláfjalla-
linuna, eins og þessi rafmagns-
lina er nefnd, og lagningu hennar.
Matthias sagði, að lengd lin-
unnar verði 10,2 kilómetrar. Blá-
fjallalinan fær straumfæðingu frá
svonefndri Hveradalalinu, sem
liggur að norðanverðu við Sand-
skeið. Verða þessar tvær linur
tengdar saman rétt vestan við
vegamót Suðurlandsvegar og
Bláfjallavegar.
Linan verður siðan lögð með-
fram Bláfjallaveginum upp að
skiðaskálanum.
Þessi lina á að duga til alllangr-
ar framtíðar, þvi að hún getur
flutt 11 þúsund volta spennu.
Starfsmenn Rafmagnsveitu
Reykjavikur vinna við lagningu
linunnar, og er áætlaöur kostnað-
ur um 5 milljónir króma
\ ’ . Ut}lÓ0a//aiíno • ||
** ^ ^ Lr/Í]{ \ -
V. , n:v
mm
_vV.
Íambafelhhrai
ijfc Kr?p
m
M
í
5 W j
_
BLÁFJA LLAL /NA
AFSrÖÐUMV/VD
3 fcðQ ffrtV
KvarBi
/■50000
AFMAONSVEITA /V/T 41.4. 207 I
ÍEVKJAVIKUR --------
Kort þetta sýnir Bláfjöll og nágrenni. fíláfjallalínan er teiknuð inn á
kortið.
Líkan af Húsavíkurhöfn
— til þess að kanna hvernig fyrirhuguð viðbót við
suðurhafnargarðinn mun reynast
Unnið við lagningu Bláfjallalinunnar. (Timamynd-Róbert)
ÞESSAR ATHUGANIR beinast
að þvi að finna út hvernig sjólag
og öldurót verður I þeim höfnum,
sem við gerum líkan af. Þannig
Fyrirgreiðslu við Nim-
rod-þotur hætt á morgun
TIMANUM barst i gær svofelld
fréttatilkvnning frá samgöngu-
ráðuneytinu:
1 framhaldi af samþykkt rikis-
stjórnarinnar 11. þ.m. hefur sam-
gönguráðuneytið i dag lagt fyrir
flugmálastjóra að stöðva sam-
band flugumferðarstjórnar við
brezku Nimrod-þoturnar frá og
með hádegi 14. september n.k.
Jafnframt hefur ráðuneytið
óskað eftir þvi við utanrikisráðu-
neytið, að upplýsingum um þessi
fyrirmæli verði komið til réttra
brezkra yfirvalda.
Timinn hafði samband við
Einar Ágústsson utanrikisráð-
herra i gær og spurði hann, hve-
nær tilkynning um fyrirmælin
yrðu afhent og þá hverjum.
Einar sagði, að tilkynningin
yrði afhent brezka sendiherran-
um á fslandi, John McKenzie, og
átti það að gerast siðdegis i gær..
—gj-
Engu kastað á glæ, þótt banki rísi ekki á Arnarhóli:
Þar getur komið bíla-
geymsla neðan jarðar
EN'GU þarf að vera á glæ kastað,
þó að Seðlabankinn hverfi frá þvi
að reisa byggingu handa sér
norðan vert á Arnarhólnutn.
Frá' upphafi var gert ráð fyrir
þvi, aö undir sjálfri bankabygg-
ingunni yrðu bilageymslur, og i
grunni þeim, sem nú er verið að
sprengja, geta einmitt verið bila-
geymslur neðan jarðar, þótt ekki
komi bankabygging ofan á þær,
og er þeirra meira að segja brýn
þörf. Yfir þær má siðan jafna, svo
að hólbrekkan haldi réttu lagi og
engin missmiði sjáist.
Aftur á móti ætti það fjaðrafok,
sem orðið hefur út af seðlabanka-
byggingunni, að verða mönnum
hvatning til þess að kanna jafnan
rækilega, þegar til stendur að
hrófla við stöðum, sem mörgum
kann að vera annt um, hvernig
við sliku verður brugðizt, þegar
til kemur, og láta slika könnun
fara f-ram, áður en i kostnað er
lagt.
má fyrirfram gcra sér I hugar-
lund, hvernig væntanleg hafnar-
mannvirki muni reynast,og ckki
þarf að fjölyrða um hvcrsu mikil-
vægt slikt cr. Við gerum líkan af
öilum aðstæðum, þar sem hafnar-
mannvirkið á að risa, og slðan
hleypum við vatni á lfkanið. Við
höfum tæki til að framkalla öldur
og getum þannig likt eftir náttúr-
lcgum aðstæðum á staðnum.
Þetta sagði Björn Erlendsson
véltæknifræðingur i viðtali við
Timann, en hann og Gísli Viggós-
son verkfræðingur hafa að
undanförnu unnið að tilraunum
með hafnalikön i straumfræði-
stöðinni i Keldnaholti. Það er
Orkustofnun i samvinnu við Vita-
og hafnamálaskrifstofuna, sem
stendur að þessum rannsóknum.
Fyrstu likönin, sem reist voru i
rannsóknastofunni, voru af fyrir
huguðum hafnaframkvæmdum i
Puerto Rico og Suður-Karólinu-
fylki i Bandarikjunum. Voru reist
likön af öllum aðstæðum, þar sem
hafnirnar eiga að risa, m.a. gerð
eftirmynd af sjávarbotninum,
ströndinni og höfninni fullgerðri.
Þessi likön voru gerð i stærðar-
hlutföllunum 1 á móti 45. Siðan
var rannsakað hvernig
mannvirkin stæðust öldurót og
aðrar náttúrlegar aðstæður, sem
fyrirhendi eru á umræddum stöð-
um. Þessar rannsóknir voru
framkvæmdar undir yfirstjórn
hins þekkta norska prófessors dr.
Per Bruun.
Nú er ætlunin að hefja slikar
rannsóknir á hafnarstæðinu i
Húsavik, með tilliti til þess
hvernig verði bezt fyrir komio
bátalægi inni i höfninni. Höfnin á
Húsavik er mjög opin, og ætlunin
er að byggja út írá suðurvarnar-
garðinum nýjan garð. Verkefni
þeirra Björns og Gisla verður að
kanna.hvernig þessi nýi garður
kemur til með að verka á öidu-
lagiö i höfninni. Ef niðurstöður
rannsóknanna verða á þann hátt,
að hinn nýi garður veiti ekki
nægilega vernd, verður bygging
hans væntanlega tekin til endur-
skoðunar.
Til þess að þessar rannsóknir
verði mögulegar, verður að gera
nákvæma eftirmynd af höfninni i
Húsavik, og mun sú eftirmynd
verða gerð næstu vikur i Keldna-
holti.
-gj-
Þingmanna-
nefndin frá
A-banda-
laginu kom *
1 FYRRADAG kom hingað til
lands sendinefnd sú frá þing-
mannasambandi Atlantshafs-
bandalagsrikja, sem upphaflega
hafði ætlað að koma i brezkri
herflugvél, en varö að hætta við
það sökum þess, að henni var
neitað um lendingarleyfi.
Þingmennirnir hittu Islenzka
ráðamenn að máli þá samdægurs
og dvöldust þeir i Reykjavik i
fyrrinótt, en fóru siðan brott i
gær.
Áður hafði verið talið, að
heimsóknin myndi ef til vill farast
fyrir, er brezka herflugvélin, sem
hún ætlaði upphaf lega að koma á,
gat ekki fengið lendingarleyfi.