Tíminn - 13.09.1973, Síða 7

Tíminn - 13.09.1973, Síða 7
Danskur athafnamaður sem flytur inn bein og selur út um allan heim OLE BRO NIELSEN, sem er :t7 ára, rckur einkennilegt fyrirtæki i Arósum i Danmörku. Ilann selur nefnilega ekta hauskúpur og beinagrindur út um allan heim. Nokkrum sinnum á ári koma til hans stórar sendingar frá Ind- landi. Kassarnir eru settir inn i geymsluna, og svo byrja Nielsen og aðstoðarmenn hans hið mikla þolinmæðisverk, aö raða saman beinunum, sem oft hafa farið úr skorðum á hinu langa ferðalagi. Sfðustu 10 árin hefur hann selt um 10.000 hauskúpur og 200 beinagrindur — allt saman raun- veruleg mannabein. Engar gipsafsteypur. Viðskiptavinir hans eru fyrst og fremst háskólar I Evrópu og svipaðar stofnanir, en hann hefur einnig viðskipti við menn i Astraliu. — Fátækt og neyð hinna vanþróuðu landa er ástæðan fyrir þvi að hægt er að anna eftirspurn hinna vestrænu landa eftir mannaleifum, segir hann. — 1 Evrópu og Ameriku eru beina- grindur næstum ofáanlegar. Ole Bro Nielsen veit ekki hvernig fyrsti hlekkur i þessum viðskiptum fær beinin. Stundum hvarflar það að honum, að ein- hver þessara beina séu til hans komin vegna einhverra glæpa. En það er ekki hans mál, segir hann. —- Ég sel þau bara. Ekki eru beinin alltaf tilbúin til notkunar, er hann fær þau. — Samkvæmt samningunum eiga beinin að vera algjörlega hrein, þegar þau koma til min, en þvi fer fjarri að svo sé alltaf, segir Niel- sen. — Við verðum oft að byrja á að hreinsa af þeim kjöttægjurnar, og er það gert i sérstakri jpplausn. Við það drepast bakteriurnar og beini verða einnig hvit, eins og viðskipta- vinirnir vilja gjarnan hafa þau. — Samvizkubit? — Alls ekki. Svo vel er farið meö beinin hér, að það fólkrsem þau voru einu sinni hluti af, hafa áreiðanlega aldrei fengið eins góða aðhlynningu meðan það var á lifi. — 1 hvaða stærðum eru þær til? — Allt frá nýfæddum til gamal- menna, frá dvergum til risa. Verðið? Fyrsta flokks hauskúpa kostar um 10.000 isl. kr., en vanti t.d. eina tönn,er hún um 2-3 þús. kr. ódýrari. Hauskúpa af fimm ára gömlu barni, þar sem hægt er aö sjá bæði barna- og fullorðins- tennur, kostar um 15.000 kr. Dýrust er beinagrind af barni, en hún kostar um 45.000 kr. Þýtt og endursagt - hs-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.