Tíminn - 13.09.1973, Qupperneq 12

Tíminn - 13.09.1973, Qupperneq 12
12 TÍMINN Fimmtudagur 13. september 1973 mHHWIUIHi BÆKUR VOR OG HAUST Nú liður að þeirri tið er bókaút- gefendur draga fram vöru sina með öllum þeim umsvifum sem þeim atvinnurekstri heyra til.. „Bókaflóðið” er löngu orðinn næsta gildur þáttur i menningar- ltfinu, sem svo er kallað: nafnið eitt bendir til að menn liti á þessa útgáfuhætti likt og náttúruham- farir, sem ekki verði við spornað. bó er mála sannast, að þessari tilhögun má auðveldlega breyta, og henni verður að breyta. Reyndar hafa menn þrásinnis að þvi vikið hver óhollusta fylgi bókamokstrinum siðustu mánuði ársins, og þarf ekki mikla skarp- skyggni til að koma auga á það: hroðvirkni, subbuháttur i frá- gangi innst sem yzt, að ógleymdu þvi forheimskandi auglýsinga- skrumi, sem haft er i frammi. A þaö má einnig drepa, þótt minna máli skipti, hvaða óhagræöi þessi háttur veldur mönnum, sem tak- ast á hendur að rita um bækur i dagblöðin, þvi að jafnan er knúð á þá að láta ekki undan falla að birta umsagnir sinar áður en jólakauptið er úti. begar svo er i pottinn búið er hætt við að góðar bækur fari beinlinis i kaf, ef aðil- ar sem að þeim standa leggja minna kapp á skrum um vöru sina en vöndugleika i starfi. Reyndar er mála sannast um meginþorra islenzkrar bókaút- gáfu, að i sjálfu sér má einu gilda hvort eða hvenær er til hennar stofnað. A hinn bóginn gegnir furðu, aö sómakærir útgefendur fái sig til aö etja kappi við allt það fánýti, sem prentað er i við- hafnarútgáfum og auglýst með brauki og bramli á ári hverju. beir sem að þessum at- vinnurekstri standa eru raunar aö eigin sögn ævinlega á nástrái, og kemur mönnum þvi nokkuð spánskt fyrir sjónir að þeir skuli þrífast jafn vel og veltan sýnir. Auk heldur geta þessir aöilar slit- iö sig úr viðjum jólasölunnar, eins og útgáfa kynlifsfræða Arnar og Orlygs ber vott um: starfsemi af þvi tagi á væntanlega framtið i landinu. Hvað sem þessu liður ætti það fortakslaust að reynast þeim útgefendum til hagsbóta er telja sig rækja menningarlegt hlut- verk, að dreifa bókum sinum á allt árið. Góöar bækur seljast jafnt ogþétt: ruslið lifir á hinn bóginn aðeins eina jólaös og er siðan gleymt og grafið. — Mál og menning virðist leggja mest kapp á að dreifa sinni útgáfu. Almenna bókafélagið mætti hins vegar huga betur að þvi en einatt á seinni árum: upp á siðkastið hef- ur drýgstur hluti útgáfu þess mið- ast við jólamarkaö. Helgafell hef- ur sömuleiöis einskorðað sig aö heita má við þann markað. Kynlegast er þó aö sjálft rikisfor- lagið, Menningarsjóður, skuli vart gefa út bækur nema i desem- ber. Um bókaval þess forlags mætti margt segja, en einkenni- legt safn hefur þar einatt verið látið á markað, allt frá skáldsög- um bórunnar Elfu til klassiskra meistaraverka og fræðirita. Og geti nokkurt forlag aö marki rofið vitahring jólamarkaðarins er það Menningarsjóður, ef hann sýnir af sér einhverja framtakssemi Svo er að sjá af grein fram- kvæmdastjóra forlagsins, Gils Guðmundssonar, i Samvinnunni og Andvara i fyrra, að nú eigi loks að marka útgáfunni fastari stefnu en fylgt hafi verið til þessa. Guð láti gott á vita. Að þessu sinni hafa að likindum komiö út fleiri bækur fyrri hl. árs, en oft áður. Skal nú drepið á það helzta. Fyrst er að telja þrjár nýjar frumsamdar ljóðabækur, sem allar hefur veriö fjallað um hér i blaðinu: Ný bók Jóns Óskars, bú sem hlustar (Almenna bókafélag- iö), fyrsta ljóðasafn Njarðar P. Njarðvik, Lestin til Lundar (Ið- unn); og loks þriðja ljóðabók Baldurs óskarssonar, Gestastofa (Heimskringla). Siðastnefnt for- lag gaf ennfremur út fyrstu bók ungs ljóðasmiðs, Péturs Gunnarssonar. — Ljóðabækur eru raunar þau rit, sem sizt ættu að vera háð jólamarkaði . og mætti gera mun meira að þvi að dreifa úgáfu þeirra. Og engan veginn virðist það spilla fyrir nýjum skáldsögum að þær séu settar á markað á útmánuðum: það sannaðist á Hreiðrinu eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson, sem kom á vegum Heimskringlu i fyrra. Mál og menning hóf fyrir nokkrum árum útgáfu pappirs- kilja, sem einkum hafa verið helgaðar sósialiskri hugmynda- fræöi, eins og vænta má. t þeim flokki kom i vor bók austurrisks listfræðings og marxista, Ernst Fischers, sem nefnist Um list- þörfina. Almenna bókafélagið hefur nú svarað þessu framtaki og hrundið af stokkunum sams konar bókaflokki, sem væntan- lega á að boða borgaralega hug- myndafræði og hægri pólitik. Onnur tveggja bóka sem út komu I vor var þýtt rit um kúgun Sovét- manna á Eistlendingum. Fylgdi henni nokkurt hnútukast milli bjóðviljans og Morgunblaðsins, — og fer jafnan svo að grunnt reynist á hugsunarhætti kalda striðsins. Ein þýdd skáldsaga kom I vor á vegum Almenna bókafélagsins: Manillareipið eftir finnska höf- undinn Veijo Meri (það er ekki sú saga, sem færði honum bók- menntaverðlaun Norðurlanda- ráðs á næstliðnum vetri). Vist er þarflegt að kynna Islenzkum lesendum þá höfunda, sem fremstir teljast með norrænum þjóðum nú um stundir. En undir- rituðum virðist hér hvorki á ferö ýkja skemmtilegt né frumlegt skáldverk, — og þýðingin engan veginn þannig af hendi leyst að boðlegt geti talizt. A siðustu árum hefur Mál og menning unnið mjög að endurút- gáfum, bæði skáldverka og fræði- rita. Bækur bórbergs bórðarson- ar renna nú út jafnt og þétt, og er ánægjulegt hversu tendrast hefur nýr áhugi á verkum hans i seinni tið. Sama forlag sendir frá sér heilarútgáfu á ljóðum Jóhannes- ar úr Kötlum: fjögur bindi eru komin út, tvær bækur i hverju. Slfk útgáfa skal sizt vanþökkuð: en þarflegra hefði verið að efna fyrst til bókar, sem hefði að geyma gott úrval úr ljóðum Jóhannesar. Heildarsöfn i mörg- um bindum geta orðið torveld yfirferðar, auk þess sem þau kosta ærið fé; og mikilvirkum og mistækum ljóðskáldum er meiri greiði gerður með rýmilegu úrvali. Lestur þess gæti svo kom- iðlesendum á bragðiðog örvað þá til að kynna sér feril höfundarins I heild. Hér kemur Davið Stefáns- son óðar i huga manns: brýn þörf er nú orðin á góðu úrvali eða sýnisbók af ijóðum hans. Almenna bókafélagið vinnur að nýrri útgáfu á skáldsögum Gunn- ars Gunnarssonar. Fjórar bækur eru nú komnar út: Svartfugl, Vikivaki, Heiðaharmur og siðast i vor Saga Borgarættarinnar. Vert væri að gera rækilegan texta- samanburð á sögum Gunnars. Margar þeirra liggja nú fyrir i þrem gerðum: dönskum frum- texta, islenzkri þýðingu annars höfundar, — og loks i gerð höfundar sjálfs á móðurmáli sinu. En vafasamt verður að teljast, að islenzk umritun skáldsins geti skákað snjöllum og alkunnum þýðingum eins og þeim sem Halldór Laxness og Magnús As- geirsson hafa gert. Enn er ótalinn merkasti við- burður islenzkrar bókaútgáfu, það sem af er árinu, — og raunar ósýnt að önnur meiri tiðindi gerist á haustvertið. Siðara bindi rits Björns Th. Björnssonar, tslenzk myndlist á 19. og 20. öld, kom loks i vor að liðnum niu árum frá þvi fyrri hlutinn birtist. Sá helmingur sögunnar náði fram um 1930, en siðari hlutinn tekur til lista- dóttur og Svavar Guðnason. Sög- unni sleppir þegar sú kynslóö myndlistarmanna kemur til skjalanna sem kennd er viö hina annáluöu septembersýningu 1947. Frumkvæöi aö þessu stórvirki átti Ragnar Jónsson forstjóri Helgafells, og gaf hann. ritiö Alþýöusambandi tslands. betta er þvi ávöxtur stórmannlegrar framtakssemi þess menningar- frömuðar, sem einna dýpst spor hefur markað I listalifi samtiðar- innar. — Myndlistarsagan er framar öllu brautryðjandaverk sem seint verður ofmetiö, — og glæsilegt rit á marga grein. Um islenzka mynslist og listamenn hefur varla neitt verið ritað fyrr að gagni, og gildi ritsins er eink- um fólgið I þeirri yfirsýn sem það veitirum ókannað land. „betta er fyrsta tilraunin til sögulegs yfir- lits Islenzkrar myndlistar”, segir höfundur i formála verksins, „og sem öll frumsmið önnur mun hún standa til margvislegra bóta. Ályktanir minar og listrænt mat hlýt ég að leggja undir dóm tim- ans”. Söguskoðun Björns Th. Björns- sonar er að sinu leyti hliðstæð þeirri sem mótar bókmenntasögu Kristins E. Andréssonar, — og hér er fjallað um sáma timabil og þar er frá sagt. Björn leggur megináherzlu á að sýna fram- vindu myndlistar i landinu i ljósi þjóðfélagshræringa og stétta- baráttu aldarinnar. Félagsleg skoðun listar er nú mjög á dag- skrá, — og hún er vitanlega óhjá- kvæmileg að sinu leyti. A hinn bóginn er hætt við að hún setji hinu listræna mati of þröngar skorður. Dómar höfundarins um suma listamenn, einkum þá, sem hann telur striða gegn straumi aldar i list sinni, geta orkað tvimælis; það liggur raunar i hlutarins eðli. En slik matsatriði skipta næsta litlu máli þegar litið er til þess hver fengur er að riti Björns Th. Björnssonar. Söguleg yfirsýn hans og ýmsar næmlegar skýringar á einstökum verkum gera bókina hugtækan lestur. Ritháttur Björns, skrúðmikill og hátiðlegur, fellur mönnum visast misvel i gerð. En hann er á sinn hátt sniðfastur og öldungis persónulegur: og setji menn ekki útflúr stilsins fyrir sig munu þeir hafa margháttaðan ávinning af leiösögn höfundarins. Svo einkennilega hefur brugðið við að nærri órofa þögn hefur rikt um þetta mikla ritverk frá út- komu þess i vor. Hið eina, sem mun hafa birzt um bókina á prenti, er smágrein i Visi eftir bókmenntagagnrýnanda blaðs- ins. Hvaö dvelur myndlistar- gagnrýnendur? (Við þetta blað starfar reyndar enginn slikur gagnrýnandi). Furðulegt má heita að þeir menn, sem fjalla á prenti um nánast hverja mál- verk-asýningu, skuli þegja þunnu hljóöi um fyrsta yfirlit myndlist- ar á tslandi á aldarskeiöi. Hvað veldur þessu? Vera kann að þögn- in um bókina sé aðeins dæmi þess hversu þekking og skilningur á myndlist er skammt á veg komiö meö þjóðinni. En nú er aö biöa þess, sem næstu mánuðir skola á fjörur les- andi manna i landinu. Sitthvað forvitnilegt er á döfinni, að þvi er ætla má. Fitjað hefur veriö upp á nýjungum i útgáfu fræöirita, og má til viöbótar við það sem áður var taliö minna á Lærdómsrit Bókmenntafélagsins, sem aö likindum verður þarflegur bóka- flokkur. Ennfremur kann að mega binda vonir við nýjan flokk þýðinga á klassiskum skáldrit- um, sem Menningarsjóöur hefur sett á laggirnar. Og á næsta ári er þess að vænta aö sjáist til Is- landssögunnar miklu, sem hópur manna vinnur nú að á vegum þjóöhátiðarnefndar. Viö hljótum aö vona i lengstu lög aö ekki fari um þá framkvæmd eins og hátiöarljóðið góða sem aldrei var ort, — þrátt fyrir viðleitni hálfs fjórða tugar skáldmenna. Gunnar Stefánsson. Fulbright-styrk- ir árið 1972-73 SAMKVÆMT upplýsingum menntastofnunar Bandarikjanna á tslandi (Fulbright-stofnunar- innar) hlutu eftirtaldir tslending- ar styrki til náms i Bandarikjun- um á vegum stofnunarinnar skóiaárið 1972-73: Andrés Arnalds i landbúnaðar- fræðum. Bergþór Konráðsson i viðskipta- fræði. Egill Halldórsson i bókasafns- fræði. Guðmundur Vigfússon i stærðfræði. Guðný Sveinsdóttir i efnaverk- fræði. Marianna Alexandersdóttir i fiskifræði. Ragnheiður Isaksdóttir i við- skiptafræöi. Sveinn borgrimsson i jarðfræði. bórólfur bórlindsson i félags- fræði og borsteinn Karlsson i matvæla- fræði. Sama skólaár hlutu tveir Bandarikjamenn styrki til náms i islenzkum fræðum við Háskóla íslands þeir Dennis A. Hill og Fritz Heinemann. Auk þess kost- aði stofnunin dvöl prófessors Williams P. Nagel hér á landi, en hann starfaði sem gistiprófessor i vistfræði við liffræðiskor raunvisindadeildar Háskóla Is- lands. Frá undirritun samningsins um námsmannaskipti milli Islands og Bandarikjanna, hinn 13. febrú- ar 1964, hafa 255 Islendingar og 58 Bandarikjamenn hlotið ýmiss konar styrki fyrir milligöngu stofnunarinnar. I dag eru sambærilegar menntastofnanir starfandi i 50 löndum viðsvegar um heim. Hafnarf jörður Skorað er á þá gjaldendur, sem skulda fasteignagjöld og gangstéttagjöld að gera skil nú þegar. Innheimta Hafnarfjarðarbæjar. Bændur - Stáltunnur Höfum til sölu nokkuð magn af stáltunnum með smelltu loki. Tunnurnar eru um 175 litrar. Hreinar og þvi heppilegar undir fóðurblöndu og fleira. Borgarplast h/f Borgarnesi, simi 93-7370. Mælingamcður Bæjarsjóður Keflavíkur óskar eftir að ráða nú þegar mælingamann á Tæknideild bæjarins. Nánari upplýsingar um starfið veitir undirritaður eða bæjartæknifræðingur. Umsóknum sé skilað til undirritaðs i siðasta lagi, mánudaginn 24. þ.m. Bæjarstjórinn i Keflavik.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.