Tíminn - 13.09.1973, Side 21

Tíminn - 13.09.1973, Side 21
Fimmtudagur 13. september 1973 TÍMINN Frá Tatra-ky nningunni. — Torfærutrölliö fór léttilega meö 11 tonn um þessar torfærur. Stolt tékkneska iðnaðarins í VOR KYNNTI Tékkneska bifreiðaumboðið á Is- landih.f. Tatra torfærutröllið, bifreið sem mun eiga sér fáa jafningja i að komast yfir hverskonar tor- færur, hvort sem um er að ræða ójafnt landslag, aurbleytu, vatn eða þvi sem næst hvaða torfæru sem er. Til að gefa lesendum blaðsins, sem ekki komust á sýninguna kost á að kynnast þessu trölli, snerum við okkur til Tékkneska bifreiðaumboðsins og feng- um eftirfarandi upplýsingar um bifreiðina. t áratugi hafa TATRA verk- smiöjurnar sérhæft sig I fram- leiöslu vörubifreiöa til notkunnar i torfærum og þar sem aöstæöur eru erfiöar, en TATRA verk- smiöjurnar eru nú meöal fremstu bifreiöaverksmiöja i framleiðslu á slikum bifreiöum. TATRA vagnaverksmiöjurnar voru stofnaöar 1852, fyrstu bif- reiðina framleiddu verk- smiöjurnar áriö 1872. Arið 1898 framleiddu TATRA verk- smiðjurnar fyrstu vörubifreiðina, sem framleidd var i allri Mið-Evrópu. Nú framleiðá TATRA verksmiðjurnar yfir 20.000 torfæruflutningabifreiðar árlega, en um 70% framleiðslunn- ar fer til útflutnings, þar af um 25% til Vestur-Evrópu, en TATRA-bifreiðar eru nú fluttar til yfir 50 landa. Frábær reynsla Bifreið sú, sem hér er kynnt, er af gerðinni TATRA T-148, sem er mikið styrkt og endurbætt gerð af hinni vel þekktu TATRA T-138 bifreið, en af þeirri gerð voru framleiddaryfir 60.000 bifreiðar á þeim 12 árum, sem bifreiðin var i framleiðslu. Hlaut sú gerð TATRA-bifreiða frábæra reynslu i öllum heimsálfum. Meira en 20.000 bifreiðar hafa nú verið framleiddar af TATRA T-148, á þeim tveimur árum sem bifreiðin hefur verið i framleiðslu og þykir þessi gerð bifreiða, án nokkura tvimæla, ein hentugasta torfæru- flutningabifreiðin á markaðnum. TATRA T-148, er knúinn 212 h.a. (DIN) 8 strokka loftkældri TATRA 2-928-1 diesel vél, en TATRA-vélar hafa hlotið frábæra reynslu, jafnt við hitabeltis- sem heimskautaloftslag. Fjölblaöa hverfilvifta annast kælingur.a, sem er algjörlega sjálfvirk og tryggir fullkomna kælingu við mismunandi hitastig og vinnu- álag. Eldsneytisinnspýting með blöndunarhólfi i hverjum strokki, sjá vélinni ávallt fyrir mjög ná- kvæmri eldsneytisblöndu við öll gangstig vélarinnar og tryggja þannig ávallt fullkomna nýtingu eldsneytis. Hlutar vélarinnar hafa verið staðlaðir eins og frek- ast er unnt, en vélin samanstend- ur af sjálfstæðum strokkum, sem gerir aljt viðhald mun hagkvæm- ara, enda kostnaður við endur- byggingu vélarinnar mun minni en við aðrar sambærilegar vélar, og er TATRA 2-928-1 vélin nú talin ein fullkomnasta sinnar tegundar á markaðnum. Hvert hjól hefur sjálfstæða fjöðrun TATRA T-148, er fáanlegur ipeð þremur „hásingum” og (og með tveimur sem dráttarbifreið) og eru drif á þeim öllum (6x6)'. Læsanlegt mismunadrif er á hverri hásingu, og framhjóladrif- ið er frátengjanlegt með einu handtaki frá stjórnklefa. Enn- fremur er mismunadrif milli afturhásinganna, sem eykur mjög slitþol hjólbarðanna. Hvert hjól hefur sjálfstæða fjöðrun, en fjöðrunarútbúnaðurinn er einn af helztu kostum bifreiðarinnar viö torfæruakstur, þar sem hvert hjól getur gengið lóörétt allt aö 40 sm., þegar ekið er yfir ójafnan jarðveg og hefur hvert hjól þvi fullkomið grip við jafnvel erfiðustu aðstæð- ur. Hraðstigin eru 5 áfram og 1 afturábak, með niðurfærzlustig- um (lággir), sem eru fjarstýrð, og eru 2. til 5. gir alsamhæföir. Ennfremur er fáanlegt aflúrtak úr girkassa, bæði með og án dælu, fyrir aukahluti með þremur mis- munandi hraöahlutföllum. Mikið hefur verið upp úr þvi lagt, aö störf bilstjórans væru sem léttust og eru mismunadrifs- lægingar, niðurfærzluhraðar og framhjóladrif fjarstýrð. Bifreiðin hefur vökvastýringu, vökvatengi og lofthemla (tvöfalt hemlakerfi auk vélarhemils og handhemils) sem útiloka öll átök viö stjórn bif- reiðarinnar. Stjórntækjum öilum er mjög haganlega fyrir komiö og eru þau öll aflknúin og fjarstýrð. Reynsl- an hefur leitt i ljós, að hinn frá- bæri fjöðrunarbúnaöur tekur sér- lega vel við öllum ójöfnum til stóraukinna þæginda fyrir öku- manninn. Okumannssætið er enn- fremur sérstaklega hannaö til að falla vel aö likamanum og hefur bæöi lóörétta og lárétta stillingu. Ennfremur er fjöörun þess still- anlega að ósk ökumannsins. Stjórnklefinn er vel hljóð- einangraður og vel er séö fyrir loftræstingu og hita, en bifreiðin hefur sjálfstæða oliumiðstöð með hitastilli. Margar gerðir Bifreiðin, sem hér er kynnt, TATRA-148 S3, er vöruflutninga- bifreið með hliðar- og endasturt- um og 15 tonna burðarþoli. — TATRA T-148, eru hinsvegar fá- anlegir i mörgum mismunandi gerðum, t.d. meö grjótpalli, sem tankbifreiðar, dráttarbifreiðar, flutningabifreiðar, steypubif- reiöar, slökkvibifreiðar, stigabif- reiðar, kranabifreiðar, til jarö- borunar og ennfremur sem grind eingöngu. Grindin er þannig úr garöi gerö, aö mjög auðvelt er að útbúa bifreiðina til að þjóna margvislegum hlutverkum. A TATRA T-148 S3, er sturtun- um stjórnaö úr stjórnklefa og er endalokan á pallinum sjálfvirk. Aætlað verð á TATRA T-148 S3, ,nálægt kr. 3.000.000,00 með sturtum og p^lli og að fullu tilbúin til notkunnar!' Hvert hjól hefur sjálfstæða fjöðrun.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.