Tíminn - 20.12.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Fimmtudagur 20. desember 1973.
"'W'W-
v S
T«» *<>'.,í,\'
,l**»<«.;V-., s.
Wor>»J
i; M «.,*«*»
!**.«««
i**r*««í
híwhÆ
Hér sjáum við þrjá glaðlega
menn, sem voru heimsfrægir
fyrir nokkrum árurn, og flestir
kannast við nöfn þeirra ennþá. Á
myndinni eru þeir með tilburði,
sem eiga að sýna i hverju frægð
þeirra lá. Sá með tennisspaðann
heitir l’ancho (ion/.alc/. og er
fyrrverandi heimsmeistari i
tennis, — nú leiðbeinir hann
hótelgestum á Caesars Palace
Hotel I Las Vegas i tennis og
skipuleggur kennslu og kapp-
leiki i þeirri iþrótt. Johnny
Wcissmuller er i miðjunni.
Hann virðist vera aö taka sund-
tökin, enda er hann frægur
sundkappi og leikari. Þótt ótrú-
legt sé, er hann 72 ára. Hann
varð Olympiu-meistari i 100
metra sundi árið 1924, fyrir
nærri 50 árum. Hann hefur leik-
iö i mörgum Tarzanmyndum og
sjónvarpsþáttum um Frum-
skóga-Jim. Hann er ráðinn á
sama hótel sem móttökustjóri
gesta. Hjá Johnny stendur Joe
I.ouis með tröllboxhanzka á
annarri hendi, og það á að tákna
fyrrverandi tign hans sem
heimsmeistara i hnefakeik.
Hann tekur einnig á móti gest-
um á þessum fina stað, og sagt
er, að fólki þyki það gaman að
fá að taka i hönd hans, en hann
kemur vanalega á móti gestun-
um, brosandi með útréttan.stór-
an og sterklegan hramminn og
segir: ,,Hæ. Eg er Joe Louis,
verið velkomin hingað til okk-
ar”. Stjórnendur hótelsins eru
mjög stoltir af þvi að hafa þessa
frægu menn i þjónustu sinni og
héldu blaðamannafund til að
kynna þá.og þá var þessi mynd
af þeim tekin og þeir kallaðir
„Hiö fræga Las Vegas trló’’.
. Prinsessan
^ lærir hjúkrun
Þessi ungi hjúkrunarnemi er
Marie Astrid prinsessa, dóttir
stórhertogafrúarinnar Jose-
phine-Charlotte og stórhertog-
ans Jean af Luxemborg. Hún er
mjög áhugasöm við námið, og
vinum hennar finnst ekkert
merkilegt að hafa preinsessu
sér við hlið i hjúkrunarskólan-
um, og auðvitað er það það
heldur ekki. Slikt er gamaldags
hugsunarháttur nú til dags, þeg-
ar kóngafólk er ekki annað en
venjulegt fólk, venjulegir
borgarar.
Þeir voru einu sinni frægir
Jólabaðið hennar |
1 gamla daga var stundum talað
um jólabaöiö, sem skylt þótti að
fólk færi i fyrir hátiðina, — en
svo var kannski ekki verið með
svoleiöis pjattaðra tima ársins.
En það er ekki aðeins
mannfólkið, sem vill þrifa sig
fyrir jólin. Hér sjáum við
skjaldbökuna hana Agötu
gömlu, sem á heima i Astraliu.
Þar er sól og sumar og mesti
hitatimi ársins um jólin, og þá
er ekki amalegt að láta skrúbba
vel á sér bakið upp úr köldu
vatni. Hún nærri brosir af vel-
liðan!
DENNI
DÆMALAUSI
Þetta er nú sokkur i lagi.