Tíminn - 20.12.1973, Blaðsíða 10
10
TIMINN
Fimmtudagur 20. desember 1973.
Sigurjón Pétursson í borgarstjórn:
Lausn húsnæðisvandans
fólgin í byggingu leigu-
húsnæðis í auknum mæli
Sigurjón Pétursson gerði
grein fyrir tillögu minni-
hlutaflokkanna i borgar-
stjórn um húsnæðismál á
síðasta fundi borgar-
stjórnar, en tillagan var
svohljóðandi:
Borgarstjórn Eeykjavikur
samþykkir að fela borgarráði að
gera þriggja til fimm ára áætlun
um ibúðabyggingar. Áætlunin
miðist við, að byggðar séu árlega
100-150 ibúðir á vegum borgar-
innar. Miðað verði við, að bygg-
ingarframkvæmdir geti hafizt á
árinu 1975.
A. Kygging leiguibúða
1. Byggðar verði litlar tveggja
og þriggja herbergja ibúðir, sem
eingöngu verði leigðar ungu
fólki, sem er að stofna heimili.
leigutimi verði takmarkaður.
2. Byggðar verði tveggja,
þrigg^a og fjögurra herbergja
ibúöir, sem leigðar verði efnalitlu
fólki, sem er i húsnæðis-
vandræðum.
3. Leitað verði samvinnu við
verkalýðshreyfinguna um bygg-
ingu leiguibúða sérstaklega
ætluðu efnalitlum meðlimum
verkalýðsfélaga.
4. Aætlanir verði gerðar um
byggingu ibúöa fyrir aldraða,
auk þess sem hraðað verði bygg-
ingu þeirra ibúða, sem þegar hafa
verið ákveðnar við Furugerði.
tbúðir samkvæmt töluliðum 1,
2 og 4 verði eign Byggingarsjóðs
Reykjavikurborgar, en ibúðir
samkvæmt töluliði 3 eftir sam-
komulagi aðila.
B. Aðrar ibúöir
1. Byggðar verði ibúðir sérstak-
lega ætlaðar öldruðum og
öryrkjum, einhleypingum og
hjónum. t búðir þessar verði sér-
staklega ætlaðar þvi fólki, sem nú
býr i eigin húsnæði, sem hentar
þvi ekki lengur. Reykjavikurborg
hafi forkaupsrétt að ibúðunum
við endursölu.
2. B yggingarsjóður borgar-
innar veiti árlega eigi færri en 100
lán út á ibúðarhúsnæði með sömu
kjörum og tiökast hefur að
undanförnu. Lán þessi verði að
upphæð kr. 200 þús og eingöngu
veitt út á ibúðir, sem falla undir
lánareglur Byggingarsjóðs rikis-
ins.
Þá leggur borgarstjórn áherzlu
á að efla byggingu verkamanna-
bústaða m.a. með þvi að hafa
jafnan fyrirliggjandi með nægum
fyrirvara hentugar lóðir.
Með hliðsjón af ofangreindri
byggingaáætlun samþykkir
borgarstjórn að skora á Alþingi
að breyta ákvæðum laga um
tekjustofna sveitarfélaga þannig,
að heimild til þess að innheimta
aðstöðugjöld verði miðuð viö 65%
af þeirri upphæð, sem áður var i
lögum.
Sigurjón gat þess, að engar
tölur væru yfrir hendi um hús-
næðisskortinn. Þó væri hægt eftir
ýmsum leiðum að sanna að hús-
næðisskorturinn væri mikill og að
hann virtist lara vaxandi. Sem
dæmi um það er vaxandi
eítirspurn eftir ibúðum á vegum
borgarinnar og hjá Fram-
kvæmdanefnd byggingaáætlun-
ar.
Reykjavikurborg átti um
siðustu áramót 649 leiguibúðir. Af
þeim voru 490 til frambúðar og
159 til skemmri tima. A þessu ári
bættust borginni 60 nýjar ibúðir
úr Framkvæmdanefnd
byggingaáætlana. Frambúðar-
ibúðum hefur þvi fjölgað um 60,
en hins vegar fækkaði
skammtima-ibúðum aðeins um 17
á árinu.
Þannig er aðeins hægt að nota
tæpt 1/3 af nýjum leiguibúðum
borgarinnar til útrýmingar á
bráðabirgðahúsnæði en 2/3
ibúðanna fara i að mæta brýnni
og vaxandi þörf þess fólks, sem
ekki hefur einu sinni bráða-
birgðahúsnæði að búa i.
Meö sama hlutfalli þyrfti aö
byggja um 400 leiguibúðir til að
hægt sé að útrýma þeim 142
bráðabirgðaibúöum, sem borgin
á nú.
Þegar Framkvæmdanefnd
byggingaráætlana auglýsti til
umsókna 112 fjögurra herbergja
ibúðir nú i haust, þá sóttu um þær
ibúðir 457 fjölskyldur, eða liölega
4 um hverja ibúð. Þó voru
umsóknir bundnar við fjögurra
inanna fjölskyldu eða stærri.
Á siðasta ári auglýsti Fram-
kvæmdanefnd byggingaáætlana
90 ibúðir. Um þær ibúðir sóttu 345
fjölskyldur, eða tæplega 4 um
hverja ibúð. A þessu má sjá, að
þörfin fyrir leiguibúðir minnkar
ekki heldur eykst hún frá ári til
árs.
Hverjir leigja — Hvað er
leigt
Það fólk, sem aðallega leigir,
er efnalitið fólk með stóra
fjölskyldu, fólk, sem býr við
félagsleg vandamál, fólk með
skerta starfsgetu og ungt fólk,
sem er aö hefja búskap.
Þær ibúðir, sem eru á almenn-
um leigumarkaði, má flokka i
þrennt.
1. Þær 649 ibúðir, sem borgin á
og leigir á mjög viðráðanlegum
leigukjörum.
2. tbúðir, sem fjársterkir aðilar
hafa keypt i fjárfestingarskyni og
leigja út.
3. Kjallara og risibúðir i húsi
leigusala. Leigukjör á ibúðum
eru mjög misjöfn, en oftast eru
þau sem næst þvi hámarki, sem
leigumarkaðurinn getur greitt.
Leigutaki hjá einkaaðila býr
við fullkomið öryggisleysi. Hann
býr við sihækkandi húsaleigu og
getur stöðugt búizt við að verða
sagt upp húsnæðinu.
Lausn á húsnæðisvandanum
hlýtur þvi að vera fólgin i þvi, að
byggja mikinn fjöla leiguibúða,
þar sem húsaleigu er stillt i hóf,
og þar sem fólk getur búið án ótta
við yfirvofandi uppsögn.
Það verður að stuðla að
aukinni tilfærslu milli ibúða i
eldri hverfum borgarinnar, en
þar er algengt að fullorðið fólk
býr i alltof stórum ibúðum, og það
er einnig nauðsynlegt, á meðan
húsnæðismálin hafa ekki verið
leyst á félagslegan hátt, að að-
Björgvin Guðmundsson í borgarstjórn:
Sjólfstæðisflokkur hefur
ávallt þvælzt fyrir til-
lögum um endurbætur BÚR
Björgvin Guðmundsson
talaði fyrir tillögu minni-
hlutaflokkanna i borgar-
stjórn um Bæjarútgerð
Reykjavíkur/ og ræddi um
nauðsyn þess, að efla
hana. I ræðu sinni sagði
hann m.a.:
Eitt af þeim atriðum, sem hvað
mest er deilt um i stjórnmálum er
rekstrarform fyrirtækja, þ.e. af-
staðan til rekstrarformanna, og
skiptir mönnum i flokka. Þeir
flokkar, sem leggja mesta
áherzlu á einkarekstur fyrirtækja
eru hægri flokkar eða ihalds-
flokkar, en þeir, sem beita sér
fyrir opinberum rikisrekstri eða
bæjarrekstri eru vinstri sinnaðir
eða róttækir.
Avegum Reykjavikurborgar er
rekiö mikið og öflugt atvinnu-
fyrirtæki, þar sem Bæjarútgerö
Reykjavikur er. Það var á sinum
tima stofnað fyrir frumkvæði Al-
þýöuflokksins, og það hafa verið
minnihlutaflokkarnir i borgar-
stjórn, sem siðan hafa haft for-
göngu um eflingu Bæjarútgerðar-
innar. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur hins vegar ávallt þvælzt fyrir
öllum tillögum um eflingu BÚR
eins lengi og hann hefur séð sér
fært. Og ekki eru mörg ár siðan
núverandi borgarstjóri, Birgir
fsl. Gunnarsson, lét orð falla hér i
borgarstjórn þess efnis, að hann
teldi að til greina kæmi að leggja
BÚR niður sem borgarfyrirtæki.
En þær fyrirætlanir hans og ann-
arra ihaldsmanna fóru út um þúf-
ur. Og i dag stendur BÚR traust-
um fótum i atvinnulifi Reykja-
vikurborgar.
Þegar hinn nýi skuttogari,
Snorri Sturluson, kom til Reykja-
vikur, hélt borgarstjóri ræðu i
veizlu um borð i skipinu. I þeirri
veizlu var margt starfsmanna
BÚR, en nú fór borgarstjóri lof-
samlegum orðum um Bæjarút-
gerðina og þýðingu hennar fyrir
atvinnulif Reykjavikur, og ræddi
meira að segja um nauðsyn þess,
að BÚR eignaðist nýtt frystihús.
— Áður vildi hann leggja fyrir-
tækið niður, nú vildi hann efla
það.
Ég vil fagna þessum sinna-
skiptum borgarstjóra, og vænti
þess, aö sá áhugi, er hann sýndi
Búr um borð i Snorra Sturlusyni
sé einlægur, en það mun koma i
ljós, þegar tillaga sú um eflingu
Bæjarútgerðarinnar, sem hér
liggur fyrir og er flutt af borgar-
fulltrúum minnihlutaflokkanna,
verður tekin til atkvæða, en hún
er svohljóðandi:
Borgarstjórn Reykjavíkur telur
að stórefla þurfi Bæjarútgerð
Reykjavikur. Borgarstjórn sam-
þykkir þvf eftirfarandi:
1. Italdið verði áfram endurnýjun
togaraflota BÚR og stefnt að
þvi að endurnýja alla togara
útgerðarinnar. Gömlu togar-
arnir verði seldir, er nýir ber-
ast. Hafinn veröi nú þegar
undirbúningur að kaupum á 4.
skuttogaranum fyrir BÚR, og
samin áætlun um frekari
togarakaup á næstu árum.
2. Athugað veröi, hvort ekki er
hagkvæmt fyrir BÚR aö eign-
ast fiskibáta af heppilegri
stærö.
3. llafin veröi nú þegar hönnun á
nýju frystihúsi fyrir BÚR og
fjármangs- og fjáröflunaráætl-
un gerö. IIiö nýja frystihús skal
búið fullkomnustu vélum og
tækjum og viö þaö miðaö, aö
það geti fullbúiö unnið úr um
21)0 tonnum af ferskum fiski á
dag. Borgarráð úthluti BÚR
þegar heppilegri lóö undir hið
nýja frystihús.
4. Keypt veröi ný og fullkomin is-
framleiöslutæki fyrir BÚR.
Ég vil leyfa mér að gera nokkra
grein fyrir þessari tillögu.
1 1. lið tillögunnar segir, að
stefna skuli að þvi að endurnýja
alla togara BÚR. Bæjarútgerðin
átti 8 togara, þegar mest var, en i
dag rekur BÚR aðeins 5 skip, þar
af eru að visu tveir nýir skut-
togarar, sem smiðaðir voru á
Spáni, Bjarni Benediktsson og
Snorri Sturluson. Þremur gömlu
togaranna var lagt á þessu ári, en
þeir þrir, sem enn eru gerðir út,
eru mjög dýrir i rekstri og við-
haldsfrekir, t.d. mun tapið á Þor-
móði Goða nema um 14 millj.
kr. á þessu ári. Er mjög mikil
nauðsyn á þvi að fá ný skip á
næstu árum fyrir gömlu skipin,
en þeim ber að leggja, er ný skip
bætast við.
Hefja þarf þegar undirbúning
að kaupum á 4. skuttogarans fyrir
BÚR, enda þótt ekki verði unnt á
næsta ári að verja neinum fjár-
munum til kaupa á þvi skipi. Má
nota næsta ár til að undirbúa
kaupin og athuga hvar ætti að
láta smiða næsta skip. T.d. finnst
mér ekki sjálfgefið, að það verði
keypt frá Spáni, þegar hafðir eru
i huga þeir gallar, sem fram hafa
komiðá Spánartogurunum. Þó vil
ég benda á i þessu sambandi, aö
ekki hefur enn verið tekin ákvörö-
un um það, hvaða aðilar kaupi
skuttogara þá, sem Útgerðaráð
Akureyrar hafði pantað frá
Spáni. Þau skip munu nú vera
laus.
Eðlilegt má teljast, að samin
verði þegar áætlun um endurnýj-
un togara BÚR, þ.á.m. fjármögn-
unaráætlun. t sambandi við slika
áætlun þarf að athuga, hvort BÚR
myndi henta að fá togara af minni
gerðum einnig, en auk þess þarf
sérstaklega að athuga, hvort ekki
sé nauðsynlegt fyrir BÚR að
eignast einhverja fiskibáta eins
og gert er ráð fyrir i 2. lið tillög-
unnar. Það er mjög slæmt að
minu áliti fyrir BÚR að þurfa að
reiða sig algerlega á báta frá öðr-
um aöilum. BÚR hefur ávallt
reynt að semja við nægilega
marga bátaeigendur um að þeir
legðu upp afla sinn hjá Fiskiðju-
veri BÚR, en það hefur gengið
misjafnlega vel. Þaö væri áukið
öryggi fyrir BÚR, ef fyrirtækið
ætti sjálft einhverja báta.
Þá segir i tillögunni, lið 3, að
hefja þurfi þegar hönnun á nýju
frystihúsi fyrir BÚR. Það er nú
liðið eitt ár siðan ég flutti hér i
borgarstjórn tillögu um að reist
yrði nýtt frystihús fyrir BÚR,
fullkomið frystihús, sem gæti
unnið úr 200 tonnum fiskjar á dag.
Þegar ég hreyfði þessari til-
lögu fyrir ári, sagði talsmaður
meirihlutans, að ekki væri unnt
stoða einstaka húsbyggjendur i
formi lánsfyrirgreiðslu.
Að þessu miðar tillagan.
Siðanrakti framsögumaður til-
löguna lið fyrir lið og rökstuddi
hfern lið fyrir sig. Að lokum sagði
Sigurjón:
„Skortur á ibúðahúsnæði er
félagslegt vandamál, og það er
fátt, sem eykur meira á efnalegt
misrétti en ibúðaskortur. I þeim
efnum má með sanni segja, að
þeir verði að lúta þvi lakasta,
sem minnst mega sin.
Borgin viðurkennir skyldur
sinar i þessum efnum með þvi að
eiga nú þegar nær 650 leigu-
ibúðir, auk þess, sem mikill hluti
af starfi Félagsmálastofnunar
borgarinnar fer i að greiða úr
húsnæðisvandræðum fólks, þó þvi
fari viðs fjarri, að það takist
alltaf.
Til að leysa þetta vandamál
þarf stórátak — raunár stærra en
hér er lagt til.
Verði þessi tillaga samþykkt og
framkvæmd, þá hefur þó vandi
mikils fjölda verið leystur. Það
skal undirstrikað, að þegar talað
er um að byggja 100-150 ibúðir á
vegum borgarinnar i tillögunni,
þá er ekki átt við byggingar
verkamannabústaðar né
byggingar i samvinnu við verka-
lýðshreyfinguna, heldur eingöngu
þær ibúðir, sem borgin sjálf
byggir og leigir út.
aö taka slika ákvörðun, án þess,
að fyrir lægi kostnaðar- og fjár-
magnsáætlun. Af þeirri ástæðu og
vegna þess, að Sjálfstæðisflokk-
urinn var á móti þvi að reisa nýtt
frystihús BÚR, var tillögu minni
visað til útgerðarráðs og borgar-
ráðs. Nú, ári siðar, hefur orðið
breyting á afstöðu Sjálfstæðis-
flokksins til þessa máls, a.m.k. á
afstöðu borgarstjóra, ef marka
má orð hans um borð i Snorra
Sturlusyni. Og væntanlega hefur
árið verið notað til þess að gera
kostnaðaráætlun og fjár-
mögnunaráætlanir. Ég er þvi
bjartsýnn á, að tillaga okkar
minnihlutaflokkanna um bygg-
ingu nýs frystihúss verði sam-
þykkt nú. Útgerðarráð BÚR hefur
mikinn hug á, að reist verði nýtt
frystihús fyrir fyrirtækið, enda er
gamla fiskiðjuverið úrelt og úr
sér gengið og fullnægir ekki leng-
ur kröfum timans. Hefur út-
gerðarráð þegar sótt um lóð undir
nýtt frystihús, og sýnir það út af
fyrir sig, að útgerðarráð treystir
á það, að borgarstjórn samþykki
byggingu nýs frystihúss.
Fjórði og siðasti liður tillögunn-
ar er um það, að keypt verði ný
isframleiðsluvél fyrir BÚR, Tæki
þau, sem nú eru i notkun hjá
BÚR, eru orðin gömul og mjög
dýr i viðhaldi, en unnt er að fá
mun fullkomnarir ögafkastameirt
Framhald á 20. siðu.