Tíminn - 20.12.1973, Síða 19
Fimmtudagur 20. desember 1973.
TÍMINN
19
IiIIHmI,,,
VIRKJUNARMOGULEIKAR
í SKJALFANDAFLJÓTI
VERÐI RANNSAKAÐIR
Þingsdlyktunartillaga Jónasar Jónssonar
Jónas Jónsson hefur lagt fram
á Alþingi tillögu til þingsályktun-
ar um rannsóknir á virkjunar-
möguleikum i Skjálfandafljóti við
Aldeyjarfoss og tshólsvatn.
Tillaga Jónasar er svohljóð-
andi:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að láta þegar á árinu
1974 hefja forrannsóknir og hag-
kvæmniskönnun á virkjunar-
möguleikum i Skjálfandafljóti við
Aldeyjarfoss og tshólsvatn.
t greinargerð segir:
Það hefur komið fram, að ef
næsta virkjun fallvatns á að
verða utan Þjórsársvæöisins,
verður að hraða verulega for-
rannsóknum og hagkvæmnisat-
hugunum á virkjunarmöguleik-
um i öðrum landshlutum.
Undirbúningur framkvæmda við
næstu virkjun verður að hefjast
sem allra fyrst og alls ekki siðar
en 1976 (að talið var, áður en
orkukreppan, sem nú ógnar okk-
ur sem öðrum skall yfir). Þá
verður forrannsóknum til hag-
kvæmnisathugana að vera lokiö.
Fyrir þvi má færa mörg og gild
rök, að næsta vatnsvirkjun verði
ekki Hrauneyjarfossvirkjun eða
önnur virkjun á Þjórsársvæðinu,
heldur verði hún i öðrum lands-
hluta og þá frekast á Norðurlandi.
Til að forðast endurtekningu skal
hér aðeins vitnaö til greinargerð-
ar með tillögu til þingsályktunar
,,um undirbúning að næstu stór-
virkjun”, þskj. 49. flm.
Steingrimur Hermannsson o.fl.
Þó að allt bendi til þess nú, að
næsta virkjun á Noröurlandi
verði 55 MW gufuvirkjun i Náma-
fjalli eða Kröflu, og flm. þessarar
tillögu styðji það eindregið, að
þeirri virkjun verði hraðað svo
sem frekast er mögulegt, breytir
það ekki þvi, að hraða verður
undirbúningi að vatnsvirkjun á
Norðurlandi.
Að þessu hefur verið talið, að
álitlegustu vatnsvirkjunarstaðir
á Norðurlandi væru i Jökulsá á
Fjöllum, Blöndu eða jafnvel
Jökulsá eystri og vestri i Skaga-
firði.
t siðustu skýrslu frá Orkustofn-
un til iðnaðarráðuneytisins, dag-
settri i sept. 1973, er m.a. að finna
eftirfarandi umsögn um
Skjálfandafljót:
„Orkustofnun hefur látið gera
athugun á ýmsum tilhögunum við
virkjun Skjálfandafljóts. Um
þessar athuganir hefur verið
samin sérstök skýrsla, sem send
hefur verið fjölmörgum aöilum,
þ.á.m. Laxárvirkjun. t stuttu
máli sagt eru niðurstöður þessara
athugana neikvæöar, þar eð þær
sýndu orkuverð frá væntanlegum
virkjunum i Skjálfandafljóti, sem
er mjög miklu hærra en sambæri-
legar áætlanir um aðra
virkjunarstaði sýna. Af þeim sök-
um telur Orkustofnun ekki rétt að
verja fé og mannafla til frekari
rannsókna við Skjálfandafljót,
meöan fjölmargir aörir álitlegri
staöir biða”.
Þaö, sem veldur þvi, að þrátt
fyrir framangreint álit Orku-
stofnunar er lögð á það mikil
áhersla, að virkjunarmöguleikar
i Skjálfandafljóti verði kannaðir
rækilega, er það, að nú liggja fyr-
ir niðurstöður á nýrri og nákvæm
ari könnun á málinu. Þær niður-
stöður benda svo ótvirætt i þá átt,
að finna megi svo hagkvæma
virkjunaraðstöðu i Skjálfanda-
fljóti við Aldeyjarfoss og við
tshólsvatn, að teljast mætti glap-
ræði að kanna það ekki nánar.
Þær forrannsóknir þyrfti að
gera svo fljótt og svo itarlega, að
bera mætti niöurstöðurnar saman
við rannsóknir á öðrum mögu-
leikum til vatnsvirkjana á
Norðurlandi, þegar virkjunar-
staöur verður endanlega valinn.
Skal nú skýrt nánar frá þessum
nýjum athugunum og tildrögum
þeirra.
Verkfræðifyrirtækin Virkir h/f i
Reykjavik og Electro-Watt i
Zurich i Sviss hafa lagt fram
„þjónustuboð um verkfræði-
störf”, þar sem er skýrsla þeirra
um athuganir á virkjunarmögu-
leikum i Skjálfandafljóti.
Fyrir hvatningu manna i
héraðinu o.fl. og eftir að hafa
kynnt sér aöstæður sjálfir ákváðu
forráðamenn þessara fyrirtækja
að láta fara fram rannsóknir og
mælingar á staðnum á eigin
kostnað og ábyrgð. Bréf Virkis
h/f fylgir hér meö sem fylgiskjal
II.
Af skýrslu Virkis og EWI kem-
ur skýrt fram, að niðurstöður
þeirra eru allt aðrar og jákvæöari
fyrir virkjun á þessu svæði en
niðurstööur af atgunum verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen,
sem gerð var að ósk Orkustofnun-
ar. Að sjálfsögðu er hér ekki lagt
mat á verkfræöivinnu þessara
tveggja fyrirtækja. En á þaö skal
bent, að áætlanir Virkis og EWI
byggjast á nýjuVn athugunum og
mælingum verkfræðinga, sem
gerðar voru á s.l. sumri. Aætlanir
verkfræðistofu Sigurðar Thor-
oddsen byggjast eingöngu á
uppdráttum, gerðum af ameriska
hernum (svonefndum USAMS
uppdráttum). Þessir uppdrættir
munu viða hafa reynst ónákvæm-
ir. Erfitt er að gera tölulegan
samanburð á niðurstöðum þess-
ara tveggja athugana. Hin fyrri
er miðuð við verðlag ársins 1971,
en hið siðari við núgildandi verð-
lag, þ.e. á siðari hluta árs 1973. t
ætlun Virkis og EWI eru
notaðar sömu tölur um einingar-
verð og við Sigölduvirkjun, en
Virkir og EWI önnuðust hönnun
hennar. t niðurstöðum verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen er
stofnkostnaður á orkueiningu
áætlaður 5.4 kr./kWh/ári borið
saman við 3.45 kr/kWh/ári á
Þjórsársvæðinu.
t niðurstöðum Virkis og EWI er
stofnkostnaður á orkueiningu
áætlaður á bilinu 5—6.6
kr/kWh/ári eða lægri en hann er
nú áætlaður við Sigölduvirkjun,
um 7 kr/kWh/ári (fylgiskjal II).
Það virðist þvi auðsætt, að við
nánari athuganir og rannsóknir á
staðháttum hafi siðari verkfræði-
fyrirtækið komið auga á aðra og
hagkvæmari leið en hið fyrra
byggði sinar niðurstöður á, eða að
mælingar hafi leitt það i ljós að
aðstæður séu þarna hagkvæmari
en kortin sýna.
Þessa virkjunarmöguleika
verður að kanna nánar og láta
fara fram fullkomnar for-
rannsóknir og hagkvæmnisat-
huganir, þannig að hægt verði aö
velja þann vikjunarstað fyrir
næstu vatnsvirkjun, sem hag-
kvæmastur telst aðöllu athuguðu.
Það skal skýrt tekið fram, að
með þessu er siður en svo verið að
gera þvi skóna, að ekki verði
gerðar jafnitarlegar rannsóknir á
öðrum hugsanlegum virkjunar-
stöðum, svo sem við Dettifoss, og
þeim hraðað svo sem tök eru á.
A þaö skal að lokum bent, að
lega Ishólsvatnsvirkjunar yrði
slik, aö hvergi yrði um skemmri
leiö að ræða, ef tengja á saman
stórvirkjanir, sem eru sin i hvor-
um landshluta. Frá tshóisvatni að
Sigöldu eru um 200 km.
tshólsvatnsvirkjun yrði fast við
hugsanlega linu yfir hálendið um
Sprengisandsleið og tengdi
saman orkuveitusvæði Norður- og
Suðurlands. Á sama hátt lægi
virkjunin nánast á krossgötum
þeirra lina, sem tengdu hugsan-
Íegar stórvirkjanir á Austurlandi
— i Jökulsá á Fjöllum, við
virkjanir Þjórsársvæðisins. Enn
má benda á, að við tshólsvatn og
á Króksdal (við Hrafnabj.) eru
óvenju heppilegar aðstæður til
þess að gera veruleg miðlunar-
Íón, og er ekki vitað um marga
staði jafnheppilega til sliks, án
þess að raska þurfi byggð og eyða
nytjalöndum eða núttúruverö-
mætum.
Virkjunin yrði i byggð, en
miðlunarlón i óbyggðum.
Enn skal það itrekað, að eins og
ástatt er i orkumálum má hvergi
slaka á i frumathugunum og for-
rannsóknum á virkjunarmögu-
leikum og að tillaga þessi er flutt
i þvi trausti, að unnið verði af
fullum krafti að rannsóknum á
öðrum virkjunarmöguleikum á
Norðurlandi, og einnig i trausti
þess, að unnið verði af alefli að
undirbúningi og siðan fram-
kvæmd Námafjalls- eða Kröflu-
virkjunar.
Sem fylgiskjal með frumvarp-
inu fylgir m.a. tillaga Virkis h.f.
um virkjun Skjálfandafljóts við
tshólsvatn. Fer hún hér á eftir:
„VIRKIR HF.
Reykjavik, 16.11. 1973.
Orkumál á Norðurlandi.
Á vegum Verkfræðifyrirtækj-
anna Electro-Watt og Virkis leyf-
um við okkur hér með að senda
yöur stutta skýrslu um athugun
okkar á mögulegri virkjun
Skjálfandafljóts við Ishólsvatn.
Byggt á niðurstöðum úr
mælingarferÖ á staðinn siðsum-
ars hefur okkur tekist aö afla
gagna til mats á hinum geysilegu
möguleikum til beislunar vatns-
orku, sem þetta svæði býr yfir.
Frumniðurstöður þessa mats er
aö finna i hjálagðri skýrslu.
Sé haft i huga ástand i
orkumálum Norður- og Austur-
lands i dag, er skoðun okkar sú,
að tshólsvatni verði að gefa náinn
gaum i leit aö úrbótum.
Helstu niðurstöður athugana
okkar eru sem hér segir:
— Hið margbreytta landslag
staðarins gefur fjölmarga mögu-
leika á valkostum um stærð og
tilhögun virkjunar.
— Orkuframleiöslugeta hinna
mismunandi valkosta virðist vera
frá 170.10/L.kwh/ári af ódýrri
grunnorku upp i 480.10/. :kwh/ári.
— Stofnkostnaður þeirra val-
kosta, sem hér hafa verið at-
hugaðir, viröist vera á bilinu
5—6.6 kr/kwh/ári, eða lægra en
við Sigölduvirkjun (um 7
kr/kwh/ári).
Tilgangur bréfs þessa er að
bjóöa þjónustu okkar viö frekari
rannsóknir og áætlanir til geröar
á heildarhagkvæmnisathugun
fyrir svæðið.
Enn fremur er mælt með þvi
að nauðsynlegur undirbúningur
slíkrar athugunar hefjist hið allra
fyrsta.
Frekari upplýsingar um þessa
athugun vora eru fyrir hendi, ef
óskað er.
Virðingarfyllst,
Guömundur Gunnarsson.
(sign.)
Finnur Jónsson.
(sign.)
Tillaga að áætlun um
virkjun Skjálfandafljóts
við íshólsvatn
1. Inngangur
Um nokkurt skeið hafa verk-
fræðifyrirtækin Electro-Watt og
Virkirgert könnun á virkjunarað-
stööu við tshólsvatn. t september
siðastliðnum dvöldust 3 af verk-
fræðingum fyrirtækjanna nyrðra
og framkvæmdu umfangsmiklar
mælingar á væntanlegum stiflu-
og skurðstæðum. Byggt á niður-
stöðum þessara mælinga hefur
verið kleift að útbúa áætlun um
virkjunartilhögun við lshólsvatn.
Athuganir þær, sem skýrsla
þessi gefur til kynna, hafa sýnt,
að geysimiklir möguleikar á
beislun vatnsorku eru fyrir hendi
á svæðinu umhverfis tshólsvatn.
Þeir valkostir, sem hér eru sýnd-
ir, eru ekki endilega hinir hag-
kvæmustu. Til að finna hag-
kvæmustu lausn eða nálgun i
áföngum að hagkvæmustu tilhög-
un þarf að framkvæma heildar-
hagkvæmnisathugun á svæðinu.
Þess ber einnig að geta, að
þessar athuganir hafa leitt i ljós,
aö á svæðinu er unnt að beisla
annaðhvort ódýrt grunnafl með
framleiðslugeta 200.10/6kwh/ári
eða allt að 430.10/6kwh/ári með
grunnafl með framleiðslugetu
200.10/6kwh/ári eða allt að
430.10/6kwh/ári meö grunnafli
fyrir nokkru hærra verö. Sé
varaafl meðreiknað getur
heildarframleiðslugeta orðið um
480.l0/6kwh/ári.
Til einföldunar verður hér að-
eins lýst hélstu þáttum þess val-
kosts, er hefur framleiðslugefu*
allt að 480.10/6kwh/ári, og er gerð
tillaga að áfangaskiptum fyrir þá
tilhögun. Enn fremur er sýnd til-
laga að minni virkjun,
svokallaðri Aldeyjarfossvirkjun.
Tölulegar upplýsingar um
helstu þætti verksins eru i við-
auka hér að aftan.
2. Virkjun við íshólsvatn
— Lýsing á áfangaskipt-
um
2.1 Áfangi I.
Aætlað er að stifla Skjálfanda-
fljót um 1 km neðan við. Hrafna-
björg. Þannig myndast litið lón
með vatnsborði i hæð 378 m. Stifl-
an yrði búin botnloku. A sömu
slóðum yrði Suðurá veitt um
skurð inn i áðurnefnt lón. Nú yrði
sameinuðu rennsli beggja áa veitt
gegnum skurð inn i sjálft tshóls-
vátn, þar sem Merkilágar heita.
Vatnsborð tshólsvatns, sem i
dag er mjög stöðugt i hæð 365 m,
mun hækka upp i hæð 378 m. Til
þess arna verður að stifla af-
rennsli vatnsins_Fiská, svo og lág
norðan vatnsins. Þessar tvær
stiflur hafa verið nefndar Fiskár-
stifla og tshólsvatnsstifla.
Innrennsli úr Skjálfandafljóts-
lóni i tshólsvatn verður stýrt með
lokuvirki i Merkilágaskurði. Með
þessu móti má minnka ráðstafan-
ir gegn flóðum i tshólsvatni, þar
eð stýring fæst á innrennsli flóð-
vatns inn i miðlunarlónið.
Aðalyfirfal! þessarar tilhögun-
ar yrði við austurenda
Skjálfandafljótsstiflu i hæö 378 m.
Með þessu móti er yfirfallsvatni
veitt i farveg Skjálfandafljóts aft-
ur og mundi ekki óhreinka önnur
vatnsföll á svæðinu.
Til þess að nýta fallhæðina frá
tshólsvatni i hæð 378 m niöur fyrir
Aldeyjarfoss i hæð 264 m yrði
grafinn aðrennslisskurður til
norðurs úr vatninu eftir hæöar-
linu 380 m i stefnu á Aldeyjarfoss.
Þessum skurði væri lokaö meö
steinsteyptu inntaki fyrir þrýsti-
vatnspipur, sem lægju niður hlfð-
ina .aö stöövarhúsinu. Stöðvar-
húsiö yröi staösett i árkrikanum
neðan viö Aldeyjarfoss. Þannig
næst 115 m fallhæð fyrir fyrri 35
MW aflvélina, sem sett væri upp i
áfanga I.
2.2. Áfangi II.
Til frekari jöfnunar á lág-
rennsli Skjálfandafljóts er áform-
að að gera miðlun ofar i fjótinu
með þvi að stifla það efst i gljúfr-
inu við Hrafnabjörg. Vatnsborð-
inu yrði lyft i hæðina 400 m„ og
við það myndast 15 ferkm lón upp
með fljótinu. Enn fremur yrði á
sama stað að grafa veituskurð
fyrir fljótið. t þeim skurði væri
komið fyrir steinsteyptu loku-
virki, sem stýrði rennsli úr lóninu
til virkjunarinnar. Yfirfalli i hæð
400 m væri komið fyrir i hrauninu
austan stiflustæðisins.
Viö tilkomu þessarar miðlunar
er áætlað að 10 m/3/sek, rennsli
fáist til viðbótar i 140 daga. Enn
fremur væri nú sett upp 35 MW
aflvelin, þannig að grunnafl yxi i
50 MW og varaafl 20 MW.
Afangaskipting sú, sem hér er
gert ráð fyrir, er ekki nauðsynleg,
heldur möguleiki, sem bent er á,
þannig að aðlaga megi fram-
kvæmdir eftir orkuþörfinni. Að
öllum likindum væri ódýrara að
framkvæma báða áfanga
samtimis, ef orkunnar væri þörf
strax.
3. Aldeyjarfossvirkjun
Aætlað er að stifla Skjálfanda-
fljótum 1 km ofan við Ingvarfoss.
A sömu slóöum er Suðurá stífluð
og veitt um skurö inn i
Skjálfandafljótslón. Norðurbakki
skurðarins veröur sprengdur i
hæð 335 og myndar þannig hluta
yfirfallsins, sem verður i þeirri
hæö.
Aðalstiflan verður útbúin botn-
loku, sem sprengd verður niður i
hrauniö i hægri bakka fljótsins.
Fljótinu yrði veitt þar i gegn, á
meöan á byggingu aöalstiflunnar
stendur.
Grafinn verður skurður úr lón-
inu I stefnu á Aldeyjarfoss i hæð-
inni 340 m. Skurðurinn er grafinn
á hrauni sennilega eldri árfar-
vegi, en liklega þarf að þétta
skurðinn að hluta til. Enda
skurðarins yrði lokað með stein-
steyptu inntaksmannvirki, sem
veitti vatninu um þrýstivatnspip-
ur að stöðvarhúsi, það yrði stað-
sett i árkrikanum neðan við
Aldeyjarfoss. Með þessu móti
fæst71 m fall og uppsett afl allt 10
MW.
Frárennsli er beint út i farveg
fljótsins aftur. Jafnvel má hugsa
sér þessa einföldu tilhögun
byggða I tveimur áföngum, þ.e.
uppsetning á einni 10 MW aflvél i
byrjun og frestun á Suðurárveitu.
Enn fremur má auka fram-
leiðslugetu þessarar virkjunar
með miðlun við Hrafnabjörg og
e.t.v. veitu smærri áa.
Þessari ódýru tilhögun með
marga möguleika á stækkun i
áföngum ætti að veita nána at-
hygli.
4. Lokaorð
Athuganir þær, sem gerðar
hafa verið af EWI og Virki á
virkjunarmöguleikum við tshóls-
vatn hafa leitt i ljós fjölmarga
möguleika á beislun vatnsorku
þar.
Hið breytilega landslag staðar-
ins þarfnast heildar-hagkvæmnis
athugunar með tilliti til hinna
mörgu möguleika á stiflu- og
veituskurðastærðum. Engu siður
hafa athuganirnar sýnt, að orku-
framleiðslugeta hinna ýmsu val-
kosta virðist vera á bilinu
200.10/6kwh/ári af ódýru grunn-
afli upp i 480.10/6kwh/ári heildar-
afls, sem hentað gæti stórneyt-
anda.
Næsta skref i þessu verki væri
að gera áætlun um jarðfræöi- og
landslagsmælingar á heildar-
svæðinu. Þvi fyrr sem þessi
undirbúningur hæfist, þeim mun
betra.
Sú virkjunartilhögun, sem hér
er gert ráð fyrir, orsakar litla
röskun á umhverfinu. Litil nýtileg
svæði færu undir vatn eöa yrðu
eyöilögð öðruvisi, sem nema við
suðurenda tshólsvatns.
Minni háttar röskun á núver-
andi vatnsföllum svæðisins á sér
staö. Veita hinnar köldu Suðurár
yfir i Skjálfandafljót kann að hafa
bætandi áhrif á Svartá meö tilliti
til fiskiræktar. Meðalhitastig
Svartár mundi hækka verulega.
Röskun á núverandi fiskiræktar-
aöstööu i tshólsvatni þarf að at-
huga sérstaklega.
Eftir sem áður ber aö lita á
skýrslu þessa sem niðurstööur
tæknilegrar athugunar, sem mið-
ar að þvi að lýsa virkjunarmögu-
leikum staöarins. Aður en lengra
er haldið, er þvi nauðsynlegt að
taka upp viðræður og samninga
við alla aðila, sem hlut eiga að
máli og hafa hagsmuna að gæta i
sambandi við virkjunarfram-
kvæmdir við tshólsvatn”.