Tíminn - 20.12.1973, Page 21
Fimmtudagur 20. desember 1973.
TÍMINN
21
Ums|ón: Alfreð Þorsteinssonj
ÍSLENZKA
LANDSLIÐ-
INU
BOÐIÐ TIL
RÚSSLANDS
Rússneski landsiiðsþjálfarinn í handknattleik bauð fslenzka
landsliðinu i handknattleik að taka þátt I alþjóðlegu handknattleiks-
móti, sem fer fram i Rússlandi I janúar. Hann var staddur 1
Austur-Þýzkaiandi til að fylgjast með mótinu, sem island tók þátt I.
Rússneski þjálfarinn var mj ög hrifinn af skotkrafti þeirra Axeis
Axelssonar og Einars Magnússonar. [
Rússar halda mót i janúar og áttu Norðmenn upphaflega að
taka þátt i mótinu, sem er æfingamót fyrir HM i handknattleik.
Eftir að útséð var, að Norðmenn kæmust ekki i úrslitakeppnina, af-
þökkuðu þeir boðið.bess vegna losnaði sætið, sem rússneksi þjálf-
'arinn bauð Islendingum. Boðið var afþakkað af þvi að það verður
nóg að gera fyrir islenzku handknattleiksmennina hér heima. ts-
landsmotið verður i fullum gangi, og þá verða einnig leiknir tveir
landsleikir i Laugardalshöllinni, gegn Ungverjum 12. og 13. janúar.
„Allir áhorfend
ur voru með
okkur gegn
Rúmenum
rv
— sagði Páll Jónsson, landsliðsnefndarmaður í handknattleik.
Lætin voru meiri á áhorfendapöllunum, heldur en hér heima,
þegar við lékum gegn Frökkum
,,Við áttum allt húsið, þegar við
iékum gegn Rúmenum. bað voru
miklu meiri læti á áhorfendapöll-
unum, heldur en þegar við lékum
gegn Krökkum hér heima i
undankeppni 11 .VI i handknatt-
leik”....sagði báll Jónsson, lands-
liðsnefndarmaður i handknatt-
MARTEINN GEIRSSON.. sést hér skjóta að marki I landsleik gegn Færeyjum á Laugardalsvellinum
Island tekur þátt í
Evrópukeppni lands-
liða í knattspyrnu
Búið að ákveða tvo landsleiki næsta sumar, gegn Finnum
og Færeyingum á Laugardalsvellinum. Stjórn KSI hefur
boðið Tékkum að koma hingað
„Við blðum eftir að það
verði dregið i Evrópukeppni
landsliða”.... sagði Bjarni
Felixson, ritari KSÍ, þegar
við spurðum hann um verkefni
landsliðsins i knattspyrnu
næsta keppnistiambil. Hann
SAAAVIRKI
Barmahlíö 4ASími 15-4-60
Framleiðslu
samvinnufélag
RAFVIRKJA
annast allar
almennar
raflagnir
og viðgerðir
sagði, að stjórn KSl væri búin
að tiikynna þáttöku I Evrópu-
keppninni og væri það i fyrsta
skiptið, sem tsland tæki þátt I
Evrópukeppni landsliða. baö
yrði dregið I riðla i janúar i
keppninni og þvi væri vont að
fara að semja um landsleiki
núna, þvi að það þýddi ekkert
að fara að hrúga niöur lands-
leikjum, þegar ekki er vitað,
með hvaða löndum tsiand
mundi lenda i riðli.
Bjarni sagði, að nú væri
þegar búið að ákveða tvo
landsleiki, gegn Finnum og
Færeyingum, en þeir yrðu
báðir leiknir á Laugardals-
vellinum. Þá hefur stjórn KSl
haft samband við Tékka og
boðiö þeim að koma hingað og
leika landsleik. Stjórn KSl
hefur einnig haft samband
við fleiri þjóöir, en það verður
ekkert ákveðið fyrr en búið er
að draga i Evrópukeppninni.
Þa getur farið svo, að Island
leiki sex landsleiki i Evrópu-
keppninni. Að öllum likindum
fer þvi eitthvað af þeim fram á
næsta sumri. Ef Island lendir
i riðli með þjóðum, sem hafa
ekki unnið sér rétt til að leika i
úrslitakeppni HM i knatt-
spyrnu i Vestur-Þýzkalandi
næsta sumar, þá má búast
við að leiknir verði nokkrir
landsleikir i riðlinum fyrir 1.
ágúst 1974.
N’ú er bara að biða og sjá i
hvaða Nðli Island lendir. Það
getur farið svo að við lendum i
riðli með núverandi Evrópu-
meisturum Vestur-Þýzka-
landi, Englandi, Skotlandi eða
einhverjum öðrum stjórþjóð-
um i knattspyrnu. Og fá þá is-
lenzkir knattspyrnuunnendur
væntanlega að sjá marga af
beztu knattspyrnumönnum
heims, leika á Laugardals-
vellinum.
SOS.
leik, þegar viö spjölluöum viö
hann i gær. T.d. um það, hvað
hávaöinn var inikill, þá ætlaði
Reynir rtlafsson að tala inn á
segúlband og leggja á minnið
mistök Islenzka liðsins. Hann hélt
magnaranum alveg upp að
munninum, en þurfti að hætta
fljótlega, þvi að lætin voru svo
gifurleg i áhorfendum, scm voru
allir á bandi islands.
Ferðin heppnaðist mjög vel i
alla staði og móttökurnar voru
frábærar. Við lærðum margt nýtt
i keppninni i llostock. Það, sem
var bezt við ferðina, var, að
nokkrir leikmenn, sem hafa verið
i öldudal upp á siðkastið, náðu sér
á strik i Austur-Þýzkalandi og
sýndu sitt bezta. Leikmenn eins
og Gunnsteinn Skúlason, sem
skoraði sex mörk úr sjö lilraun-
um, Björgvin Björgvinsson, sem
er kominn upp úr þeim öldudal,
sem hann var kominn i, Einar
Magnússon, sem sjaldan hefur
veriðbetri, lék sina beztu lands-
leiki i Austur-Þýzkalandi. Þá er
Sigurbergur Sigsteinsson kominn
i sitt gamla góða form. Viðar
Simonarson, lék mjög vel alla
leikina. Hann er hugsandi leik-
maður, og það er óhægt að segja,
að hann hafi aldrei verið betri.
Ólafur Benediktsson stóð fyrir
sinu i markinu, að undanskildum
fyrsta leiknum, og Axel Axelsson
var stórhættulegur með sin góðu
langskot. Hann var t.d. tekinn úr
umferð ikeppninni. En þjálfarar
hinna landsliðanna voru hrifnir af
skotkrafti Axels og Einars.
Við báðum Pál að segja okkur
frá landsliðunum, sem islenzka
liðið lék gegn i keppninni i Austur-
Þýzkalandi, i stuttu máli:
— Viðþekktum flesta leikmenn
liðanna. Þau eru byggð i kringum
sama kjarnann og hefur verið i
liðunum undanfarin ár. Tékkarn-
ir eru skemmtilegastir. Þeir leika
frábæran handknattleik. Það var
stundum eins og maður væri
staddur á sýningu, þegar maður
horfði á þá. Þá leika Rúmenar
alltaf skemmtilegan handknatt-
leik. Þeir eru alltaf góðir — já,
ofsalega góðir. Austur-Þjóðverj-
ar eru mjög sterkir likamlega,
geysilegir jakar og harðir. Hrað-
upphlaupin hjá þeim eru stór-
kostleg. Það er ekki einn maður,
sem tekur þátt i hraðupphlaupi,
eins og hér heima, heldur eru allir
leikmenn liðsins komnir uppað
punktalinunni á augnabliki.
Ungverjarnir, sem okkur hefur
alltaf gengiö illa með, virðast lé-
legri, en þeir hafa verið. Þegar
viö lékum gegn þeim siðasta leik-
inn, voru okkar menn orðnir
LANDSLIÐIÐ
KOMIÐ HEIM
islenzka körfuknattleiks-
landsliðið, sem hefur verið á
k e p p n i s f e r ð a 1 a g i um
Bandarikin, kom heim úr
hinni erfiðu keppnisferð i gær.
Liöiö lék fimmtán ieiki I
Bandarikjunum á mánuöi.
Crslitfimm síöustu ieikja liðs-
ins, urðu þessi:
Island—Hamline
tsland—Macalester
Island—Luther
Island—Simpson
Island—Wartburg
76:65
88:57
103:77
97:77
82:58
Nánar verður sagt frá leikj-
unum i blaðinu á morgun.
PALL JrtNSSON
þreyttir og uppgefnir eftir hina
hörðu keppni, þvi að leikirnir i
keppninni voru stundum hrein-
lega slagsmál. Það hefði verið
gaman að háfa tvo islenzka dóm-
ara meðí ferðinni. Þeir hefðu get-
að lært mikið af innáskiptingum.
Það var ekki tekið hart á þeim.
T.d skiptu þeir Arnar Guðlaugs-
son og Axel Axelsson oft inn á.
Arnar lék i vörninni og Axel i
sókn. Um leið og skiptingar urðu
á leiknum, þá var nóg fyrir þá að
hlaupa beint að bekknum og
skipta þannig.
Að lokum spurðum við Pál,
hvað hefði komið honum mest á
óvart 1 keppninni?
— Það kom mér margt á óvart.
T.d.kom þaðmér nokkuð á óvart,
þegar tékkneski þjálfarinn kom
til okkar eftir leikinn gegn Tékk-
um og þakkaði okkur fyrir og
sagði, að þetta hefði verið góður
ieikur hjá islenzka liðinu. Siöan
bætti hann við, ykkur vantar tvo
beztu leikmennina, og átti hann
þar við Geir Hallsteinsson og Ólaf
Jónsson. Við sögöum aldrei frá
þvi i keppninni, að við kæmum án
okkar tveggja beztu leikmanna.
En Tékkarnir þekkja Islenzka
landsliðið eins vel og við, ef ekki
betur. Það var greinilegt, að
tékkneski þjálfarinn hafði sagt
frá þessu, þvi að eftir leikinn gegn
Tékkum, vorum við oft spuröir,
hvort það vantaði tvo beztu leik-
mennina i liðið.
— sos.
Fyrstir á
morgnana