Fréttablaðið - 21.11.2004, Side 17

Fréttablaðið - 21.11.2004, Side 17
SUNNUDAGUR 21. nóvember 2004 17 Ráðamenn hafa komist upp með að sniðganga lög um málefni fatlaðra og lengja biðlistana í lífi þessa fólks af því að umræðan hefur ekki verið nógu kröftug og lýðræðisvitundinni hefur verið sniðinn þröngur stakkur um heil- brigt fólk og allt sem er venjulegt og eðlilegt. Af fréttum má ráða að við viljum frekar reisa mann- virkjanir en manninn sjálfan.“ Að eldast misjafnlega Sigmundur segir tilfinningasam- band við langveikt barn gerólíkt því sem gerist gagnvart heilbrigð- um börnum og hann hefur svo sannarlega reynsluna, því alls á hann sex börn. „Maður er annað foreldri við fatlað barn sitt en þau börn sem þroskast eðlilega. Það er þessi eilífa, stöðuga væntum- þykja sem ríkir í huga manns gagnvart langveiku barni. Maður þroskast með hinum börnunum sínum og þroskast síðan frá þeim – en stendur í stað gagnvart veiku barni sínu. Þess vegna eldist mað- ur misjafnlega og verður eigin- lega misþroska. Tíminn ýmist stendur í stað eða stekkur frá. Svona börn hverfa ekki úr huga manns og maður er í raun- inni alltaf fullur sjálfsásakana yfir því að geta ekki hjálpað nógu mikið. Það er ekkert erfiðara en að tapa barni sínu inn í óþekktan sjúkdóm og sjá það missa af öllum helstu lífsmöguleikum sínum. Fyrir vikið situr eilíflega í manni ásökun um að maður hafi ekki staðið sig. Þetta er viðvarandi til- finning og það er eins og maður sé læstur inni í búri eilífrar bernsku á meðan tíminn hendist áfram þar fyrir utan. Ég hef oft spurt sjálfan mig hvernig ég verð gamall maður með þetta barn í lífinu, þegar ég verð sjötugur og barnið mitt enn- þá þriggja ára; hvort það reynist mitt yngingarlyf og lífs elixír eða hvort ég verði ennþá með sjálfs- ásakanir um að ég hefði getað reynst betri faðir.“ Hefði frekar viljað staðna eðlilega Þótt bókin sé ákaflega skemmti- leg lýsir hún mjög harkalegu lífi. Þegar upp er staðið finnst manni engu að síður að faðirinn hafi öðl- ast dýrmæta reynslu sem fáum er gefin. Sigmundur viðurkennir að þetta sé óvenjulegasta lífsreynsla sem foreldrar geta orðið fyrir en jafnframt sú fjölbreytilegasta. „Þessi lífsreynsla er kannski óvenjuleg fyrir þær sakir að þarna er fjallað um eina óvenju- legustu þroskalínu sem ég veit um,“ segir hann. „Það er í sjálfu sér óhemju þroskandi að taka þátt í lífi sem er eins ófyrirséð og hugsast getur – en jafnframt er það svekkjandi að maður taki þennan þroska sinn út á þroska- hömlun annarrar manneskju. Ég hefði frekar viljað staðna eðlilega í þroska og fá að sjá dóttur mína blómstra.“ Barn að eilífu á vissulega er- indi við okkur öll og í henni eru að sjálfsögðu skilaboð til allra for- eldra. „Skilaboðin til þeirra sem eign- ast heilbrigð börn eru þau að þakka af heilum huga fyrir venju- lega daga, venjulegar nætur, venjulegt líf,“ segir Sigmundur. „Heilbrigði er lykillinn að allri lífsþátttöku og sú tilfinning að leika og starfa með heilbrigðum börnum sínum á að vera sterkasta upplifun hverrar manneskju. Okkur finnst þetta hins vegar svo sjálfsagt að við gleymum því. Sjálfur hef ég grátið í hvert sinn sem ég sé mín heilbrigðu börn ná völdum á litlu reiðhjólunum sín- um. Sjálfur veit ég hvernig það er að geta aldrei hjólað. Allt líf okkar er svo sjálfhverft. Okkur finnst svo sjálfgefið að komast í buxurn- ar og skóna að við gleymum því auðveldlega hvað sú athöfn er í rauninni mikill árangur og vitni að miklum þroska.“ Ívið óþolinmóður gagnvart dyntum Það er líklega algengara en við gerum okkur grein fyrir að for- eldrar fatlaðra barna séu spurðir hvort þeir þori að eignast fleiri börn. Sigmundur á sem fyrr segir sex stykki, þar af fimm heilbrigð, og nýtur því mikils barnaláns. Næsta spurning hlýtur því að vera hvort hann sé taugaveiklaðri en gengur og gerist í að fylgjast með þroska þeirra. „Já, maður verður hæfilega taugaveiklaður gagnvart öðrum börnum sínum, en jafnframt ívið óþolinmóður gagnvart dyntum þeirra og hversdagslegum kröf- um. Hamingjan er nefnilega ekki fólgin í nýjum leikföngum, heldur í því að geta leikið sér.“ sussa@frettabladid.is Ég hef oft spurt sjálfan mig hvernig ég verð gamall maður með þetta barn í lífinu, þegar ég verð sjötugur og barnið mitt ennþá þriggja ára; hvort það reynist mitt yngingarlyf og lífs elixír eða hvort ég verði ennþá með sjálfsásak- anir um að ég hefði getað reynst betri faðir. ,, Skilaboðin til þeirra sem eignast heil- brigð börn eru þau að þakka af heilum huga fyrir venjulega daga, venjulegar nætur, venjulegt líf. ,, AFTURFÖR Sigmundur segir það fyrirséð að afturför dóttur sinnar fái ekkert afstýrt. 16-17 Helgarefni 20.11.2004 20:26 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.