Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 17
Sunnudagur 20. janúar 1974.
TÍMINN
17
T OYOTA - 3. STÆRSTU
BÍLASMIÐJUR HEIMS
TQYOTA UMBOÐIÐ
HÓFÐATÚNI 2
SÍMAR 25111 & 22716
TOYOTA
Toyota Corolla leynir nokk á sér.
Kynntu þér veröiö á honum og taktu svo
vel eftir: Corolla er einn af fáum bílum í
heiminum, sem eru í fremstu röö um
öryggisbúnað. Corolla er vel búinn þægind-
um. Vinsældir hans má marka af því, aö
þegar hafa selst næstum 2 milljönir Toyota
Corolla. Og bensínnotkunin var mæld s.l. sumar
á leiöinni Reykjavík-Noröurland. Hún reyndist
aöeins 6,5 lítrar á hundraðið!
Haltu fast um budduna og kauptu
þér Corolla.
Komnir á götuna og ryövaröir kosta þeir:
Corolla Sedan 2ja dyra kr. 420 þús. 4ra dyra kr. 437 þús.
Corolla Station & Corolla Coupé:kr. 450 þús.
Haltu fast um budduna og
kauptu þér Corolla
Úr Listasafni Reykja-
vikurborgar
Kjarvalsstaðir
Þótt leitað væri dyrum og
dyngjum finndist seint sá gagn-
rýnandi. eða listrýnir, sem væri
fær um að setja kúf á listvið-
burð, er nær máli sem slikur.
Hin hlið málsins að sýna
mönnum brestina i verkum
sinum, að svo miklu leyti sem
nokkur er þess umkominn,
fylgir ekki einasta nokkuð hark.
þegar að venju lætur, heldur
orkar slikt alltaf tvimælis, ef af-
staðan er svo nervös, að hún
unnir ekki vissri tiltrú i forhönd.
Þá er þetta eitt af þeim fyrir-
bærum, sem þykja sjálfsagður
hlutur i rikara mæli en svo, að
ekki hvarfli að manni að undir
niðri séu eiginlega allir hálf-
leiðir á öllum, hvað þetta
snertir, þvi þótt öðru hverju
heyrist raunverulega ergilegt
bofs, er samt eins og eitthvað
sinnuleysi liggi i loftinu báðum
megin viglinunnar. Nú þarf
engan að undra, að sýning, sett
saman með verkum úr Lista-
safni Reykjavikurborgar, sé
jafnbetri en til dæmis réttar og
sléttar einkasýningar að ekki sé
talað um, þegar einn meistarinn
puntar upp við hlið hins næsta.
En sýningin gefur lika svolitla
innsýn i þróun nútimamynd-
listar i breiðum skilningi. Það
er talið sjáifsagt markmið að
vera persónulegur og hafa sin
sérkenni i einhverju formi og er
sizt ástæða til að tortryggja
slikt. Og fátt virðist liklegt til að
leysa þetta viðhorf af hólmi. Ef
mig misminnir ekki þvi ver,
birtist viðtal við ekki ómerkari
mann en Gunnlaug Scheving i
Lesbók Morgunblaðsins fyrir
nokkrum árum, þar sem kvað
samt við nokkuð annan tón, en
hann drepur þar á gildi þess
frjóvgandi afls, er fólgið sé i
gagnkvæmum áhrifum og hag-
nýta sér reynslu genginna
meistara. Þótt fæstir vildu vist
vera óskyldir Gunnlaugi i hugs-
unarhætti, má sjá þess merki,
að listin verður æ meir að ein-
hvers konar athafnasemi, sem
þó hangir i lausu lofti og virðist
sem slik ein sér eiga að vera
nokkurs konar friðlýsing
eigin tilveru með það meðal eitt
tiltækt að riða slig á arfteknar
hugmyndir um list.
Við fyrsta augnatillit gerum
við þá frumkröfu, að mynd sé
trúverðug. Á sýningunni eru að
visu forvitnileg verk, sem
virðast gera þetta að þversögn.
Kennisetningih um nauðsyn
byltingar i skoðun myndverka
er i raun ekki eins knýjandi og
látið er i veðri vaka. Ég fæ ekki
betur sé en að abstraktmyndir
Svavars, Valtýs eða Kristjáns
Daviðssonar séu meira eða
minna klassiskar i myndbygg-
ingu og ekki gat ég merkt, að
mér yrði hverft við frammi
fyrir mynd Magnúsar Kjartans-
sonar (no. 37), sem bjargast
raunar aðeins fyrir beitingu
litarins. (Hér má skjóta þvi inn
að „symmetria” er lfkast til
fyrsta uppgötvun hins vitiborna
manns á sviði myndbyggingar.
En hún er svo vandmeðfarin, að
þótt öllu sé kostað til að brugga
sæmilegan metal, virðist eins og
útkoman verði næstum ævin-
týralega návatn. Samt virðist
hér um harla vinsælt myndefni
að ræða). Það má segja að eldri
kynslóð islenzkra myndiistar-
manna beri sýninguna uppi og
það fer mjög að vonum, að
Húsdýraáburður
T Ti til sölu
Upplysingar 1 sima
1-59-28 eftir kl. 6
Brandur Gíslason
garðvrkjumaður
yngra listafólkið haldi ekki
ávallt til jafns við þá. Málverk
Jóns Stefánssonar, Asgrims og
Gunnlaugs Scheving eru alltaf
jafnmikið augnavndi. í verk
slikra manna sækir maður hvild
um leið og þau opna manni leið
til að minnast við gamalt og nýtt
i senn, liðna tið og nútimann.
opinskáan og öfgafullan. Svo er
raunar um fleiri verk á
sýningunni.
Mynd Þorvaldar Skúlasonar
greinir frá heilli heimsstyrjöld,
hversu skýra grein. sem menn
nú gera sér fyrir sliku og liku
máli gegnir um verk Kjartans
Guðjónssonar eða Snorra Arin-
bjarnar. Þeir eru það vand-
fýsnir i verkum sinum, að það
er af og frá, að nokkur fagurkeri
dreymi sig ekki inn i þann veru-
leika myndbygginar, sem er
aðall og jarðsamband þeirra.
Að ganga eftir sýningarsalnum
er einatt áþekkt þvi að blaða i
riti, þar sem hver sértækur
kapitulinn tekur við af öðrum i
bland við furður næstliöinna
ára, augnabiiksins, sem er að
liða. Og sem slik rifjar sýningin
upp heilræðið: Skósmiður, haltu
þér við leistann þinn.
VARIÐ LAND
Fundur á mánu dag á Hótel Sögu
Allir þeir seni vilja styðja undirskriftasöfnunina til aö mótmæla kröfum um uppsögn
varnarsamningsins og brottvisun varnarliðsins, eru boðaðir til fundar i
Súlnasal Hótel Sögu mánudaginn 21. janúar kl. 17.30.
Flutt verða stutt ávörp. A fundinum liggja frammi undirskriftalistar og þargeta þeir.sem
vilja safna undirskriftum, fengiö eyðublöð. Einnig er þar tekið á móti framlögum til skrif-
stofu söfnunarinnar. — VARIÐ I.AND.
Frá Happdrætti
Framsóknarflokksins
Vinningsnúmerin i Happdrættinu verða birt i Timanum
þriðjudaginn 22. janúar Þeim.sem enn eiga eftir að gera skil, gefst
kostur á að greiða miða sina fram að þeim tima. Skrifstofan að
Hringbraut 30 er opin til kl. á morgun, mánudag.