Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 30

Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 20. janúar 1974. „Vita-parcours” brautirnar eru ekki dýrar. t skóginum cr nóg af viöi tii aö nota viö æfingarnar. Hér eru magavöövarnir teknir fyrir. Hvernig á aðhalda sér bezf í þjálfun? Fæturnir eru kyrrir á sama staö, en bolnum er snúiö i hring. Liökandi fyrir mjaömir og maga. Hópæfingar eru skemmtilegar. Þeim fylgja vinsamleg samkeppni og glaöværö. Hér er veriö aö æfa fót- leggina. bað er engin trygging gegn hjartasjúkdómum að vera mjaðmamjór roeð stinna vöðva. Skilyrði fyrir góðu likamsþreki er að lungu og hjarta starfi vel. bað er ekki lengur i tizku að skeyta engu um heilsu og likam- lega velliðan. Nú þykir sjálfsagt að karlmenn segi istrunni strið á hendur og konur bosamiklum afturenda. í allsnægtaþjóðfélaginu þykir engum sómi að þvi að vera i hópi hóglifisseggja, þeirra sem hreyfa sig ekki nema i bil, skrif- stofuþræla, átvagla, bjórþambara, sjónvarps- sjúklinga o.s.frv. f Vestur-býzka- landi hefur iþróttasambandið gengizt fyrir „trimmaherferð,” svo sem einnig hefur verið gert hér á landi. bjóðverjar „trimma” á marg- vislegan hátt. beir hlaupa á sér- stökum útivistarsvæðum, sem iþróttasambandið hefur komið upp, þeir taka hópum saman þátt i viðavangshlaupum, m.a. ótrú- legur fjöldi ungra og roskinna kvenna, og þeir þjálfa á svo- kölluðum „Vita-parcours” braut- um, sem liftryggingafélag eitt hefur komið upp og rekur. En veit allt þetta fólk hvernig almenning- ur getur bezt gætt heilsu sinnar? Ráðin, sem gefin eru, úr öllum áttum — i dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi, heilsuræktarstöðvum, leikfimiskólum og bæklingum um heilsurækt — eru ótrúlega mis- munandi. Hverju i ósköpunum á almenningur aö fara eftir? bað er sorglegt en satt, að sér- fræðiþekking um áhrif ýmiskonar likamsræktar er ekki á hverju strái. Sumir álita mjóar mjaðmir og stinna vöðva öruggan vitnis- burð um gott heilsufar. En dr. Kenneth H. Cooper, bekktur bandariskur iþróttalæknir og þjálfari geimfara, hefur skýrt frá þvi, að hjartasjúkdómar hafi oft á tfðum fundizt við rannsóknir á iþróttamönnum. Menn eiga erfitt með að trúa þvi, að samfara vöðvastyrk og snerpu sé ekki alltaf gott likamsþrek almennt. Cooper segir, að úthald sé órækasti votturinn um mikið þrek, en hann hefur árum saman rannsakað áhrif iþrótta á hreysti manna, og hafa 5.000 yfirmenn i flotanum tekið þátt i rannsóknum hans. Sá sem er þrekmikill getur reynt á sig um langan tima án þess að á honum verði vart þreytumerkja. bessi hæfileiki byggist aftur á að hjartað, blóðrásin, lungun og yfirleitt öll hringrás i likamanum starfi vel, en er að litlu leyti kominn undir vöðvaafli. Súrefni er lykillinn að likamsþreki. beir sem vilja vera þrekmiklir og nota fyrir- byggjandi aðferðir til að halda góðri heilsu, verða að koma sér upp likamsræktarkerfi, sem tryggir að smæstu og fjarlægustu frumur likams fái súrefni reglu- lega. Frá þessu sjónarhorni ber að lita á fyrirbrigði eins og „trimm” herferðir og „Vita-parcours” brautir með gagnrýni. Erfiðar æfingar fyrir handleggina kunn að styrkja armvöðvana, en þær styrkja hvorki hjarta- og lungun né örva blóðrásina. beir sem mesta þörf hafa á að örva blóðrásina, eru ibúar iðnaðar- svæða, en engu að siður á þetta við um mikinn hluta nútima- manna. Sú aðstaða, sem fyrir hendi er til heilsuræktar, er góð út af fyrir sig, en hana þarf að hota meira en gert er fyrir þolæfingar. Hlaup, hjólreiðar sund og þess konar greinar, eru þær iþróttir, sem eru heilsusamlegastar. tþróttasambandið i Vestur- býzkalandi hefur i ljósi þessara staðreyna látið gera 3.000 metra þrekþjálfunarbraut i náttúrulegu umhverfi. Slikar brautir má gera á einfaldan og ódýran hátt. Er- lendis er mælt með að útbúa brautir i skóglendi að þjálfa á, eða bara að taka á sprett út i skógi. þótt sérstök braut hafi ekki verið rudd. Betri þjálfun verður ekki fengin segja þeir i býzka- landi. Og hér á tslandi eru hæg heimatökin þótt viðast hvar sé enginn skógurinn. Nóg er af auð- um svæðum, og islenzkar heiðar gefa i engu eftir erlendum skógi. En þótt efla megi þrek sitt á ódvran hátt. evddum við stórfé i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.