Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 28

Tíminn - 20.01.1974, Blaðsíða 28
28 TÍMINN Sunnudagur 20. janúar 1974. bílar-bílar-bílar-bílar-bilar-bílar-bílar-bílar-bílar-bílar-bílar-bílar-bílar-bílar-bílar-bílar-bílar- Þarsem skoftunin fer fram, cr allt á kafi i snjó, eins og bezt sést á þessari mynd. Bílar borgar- búa skoðaðir í snjósköflum og hálku Viftskiptavinir bifreiðaeftirlitsins verða að byrja á þvi að láta ýta bílunum slnum yfir stærstu skaflana til að koma þeim i skoðun. ADSTADAN, sem bifreiðaeftir- litsmenn Keykjavíkur hafa til að skoða bíla borgarbúa og annarra og leggja blessun sina yfir þá, liefur löngum vakið furðu manua. A litlum bletti inni við Korgartún l'er öll þcssi starfsemi fram. I>ar eru bilar skoðaðir undir beruin himni og i hvernig veðri sein er. A sumrin má segja, að sæmilega viðunandi sé að vera þarna, nema i rigningu, en þá þurfa eftirlitsmennirnir að skriða undir bilana i öllum pollunum, sem myndast á þessu litla svæði, sem þeir hafa til að framkvæma skoðunina, og er það allt annað en skemmtilegt, eins og menn geta imyndað sér. Ekki batnar aðstaðan hjá þessum ágætu mönnum að vetrinum, þegar allt er á kafi i snjó og hálkan er slik, að aðeins fimustu mönnum er óhætt úti á skoðunarsvæðinu. Við slikar aðstæður efast maður um réttmæti þessarar skoðunar og veltir fyrir sér, hvort nokkurt gagn sé að þvi að skoða bila á þessum stað. Þegar við komum þarna i siðustu viku, var hálkan slik, að skoðunarmennirnir gátu með engu móti fundið út, hvort bilarnir, sem þeir voru að skoða, voru bremsulausir eöa ekki. Bilarnir runnu til, ef komið var við bremsurnar, og ekki var hægt að sjá, hvort hjólin læstu sig eða runnu með. Ekki var þvi um annað að ræða en að veita skoðun á bilana, nema ef eitthvað stórvægilegt var að, sem sjáanlegt var berum augum. Aðstaða viðskiptavinanna, sem skipta þúsundum á hverju ári, er litið betri þarna i Borgartúninu. Ef veður er vont, geta þeir að visu hlaupið i skjól inn i skúr, sem þarna ér. Þar er fátt við að vera fyrir „gestina” annað en að góna upp i loftið, horfa á klukkuna og bölva seinaganginum við skoðunina, á milli þess sem þeir furða sig á þvi, að nokkur maður fáist til að vinna við þessar aðstæður. —klp — ...Og svo er að athuga, hvort bremsurnar eru i lagi, en það er allt annað en þægilegt i glerhálku. Skoðunarmiðinn fyrir árið 1974 settur i frainrúðuna etir „langa og stranga" skoðun á bilnum. (Timamvndir: GE)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.