Tíminn - 06.10.1974, Qupperneq 3
Sunnudagur 6. október 1974.
ItMINN
3
þegar hund-
urinn kom
— Ég get ekki sagt, aö hér sé
einmanalegt. Siðan við komum
hingað 6. ágúst, hafa liðið lengst
fimm dagar milli þess að við höf-
um fengið heimsókn. Framanaf
komu hér oft margir bilar á dag
og stundum fullsetnir rútubilar.
Engin ástæða er þvi til að kvarta
yfir þvi, að ekki sé hér félags-
skapur, þótt nú sé orðið strjálla
milli þess, að einhver kemur.
Þetta sagði Bergþóra Helgadótt-
ir, sem ásamt manni slnum
Stefáni Jónssyni dvelur á veður-
athugunarstöðinni á Hveravöll-
um, er Timinn hafði tal af henni.
— Og þótt komið sé fram i októ-
ber, fáum við enn gesti. Siðast
kom bill hingað I fyrradag og i
dag eigum við von á öðrum bil,
sem kemur hingað á vegum Veð-
urstofunnar með vistir til vetrar-
ins.
— Hér á staðnum er lika góður
félagsskapur, við hjónin og hund-
ur, sem segja má, að sé heimilis-
fastur á Hveravöllum, þvi hjónin,
sem voru hér undan okkur, tóku
hann hingað, þegar hann var
hvolpur, og hér er hann enn og
kann greinilega vel við sig.
— Áður en hundurinn kom var
hér nokkuð af tófu, og kom hún
heim að veðurathugunarstöðinni
og át það sem fyrir hana var lagt,
en eftir að hundurinn kom lætur
lágfóta ekki sjá sig, en hún býr
hér i nágrenninu og við vitum um
nokkur greni. Hér uppi á hálend-
inu er talsvert af fugli. Mikið er af
hrafni og gefum við krumma
matarögn annað veifið og þiggur
hann það með þökkum. Einnig er
mikið hér af snjótittlingi og tals-
vert af rjúpu.
Hjónin á Hveravöllum eru bæði
25 ára gömul. Bergþóra er frá
Egilsstöðum á Fljótsdal, en Þor-
valdur frá Blönduósi. Aðspurð
sagði Bergþóra, að þau hefðu sótt
um þetta starf, þegar það var
auglýst til að fá svolitla tilbreyt
ingu i tilveruna og kunna þau
bæði prýðilega við sig svo fjarri
byggð. Undanfarna daga hefur
verið gott veður á Hveravöllum
þýða, en svolitil föl á jörðu.
Sambyggður plötuspilari og 2x10 sinus watta magnari — 2 stk.
CR 100 hátalarar, 20 wött — PC 30 Picup — 3ja ára ábyrgð —
Verð kr. 69.800 — Góðir greiðsluskilmálar
& :
á
Þorvaldur og Bergþóra með hundinn sem heimilisfastur er á Hvera-
völlum. Fyrri eigendur hans, sem störfuðu i veðurathugunarstööinni
urðu að skilja hann eftir er þau fluttu suður en uppi á háiendinu amast
enginn við honum nema tófan, sem ekki hefur iátið sjá sig heima við
hús slðan hundurinn kom. Þau hjónin eru nú búin að vera tvo mánuði á
Hveravöllum og kunna vistinni hið bezta. Mynd Stefán Nikulásson.
Ung hjón tekin við starfi ó Hveravöllum:
Tófan hvarf
IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS ?
tilkynnir hluthöfum:
Sá frestur er hluthöfum var
veittur, með bréfi bankans dags. 1.
júni s.l. til að skrá sig fyrir kaupum
á nýju hlutafé, framlengist til 15.
okt. n.k.
JL Hluthöfum, er hafa skráð sig fyrir
kaupum á nýju hlutafé, er bent á,
if^ a& gjalddagi 1. greiðslu hluta-
' fjárins var 1. okt. s.l.
PIOIMEER
CS-RIOO
A new high-performance speaker system featuring outstanding transient characteristics,
linear response, low distortion and wide dispersion.
ÞRÁTT FYRIR ALLT OG ALLT
erlendar verðhækkanir, gengisfellingu og
söluskattshækkun — getum við ennþá boðið hin
frábæru Pioneer hljómtæki
Á HAGSTÆÐU VERÐI
PIOMEER'
C-4500
Compact stereo system with high-performance stereo tumtable
and low-distortion amplifier.